Um 64 prósent nýrra íbúðalána í fyrra voru verðtryggð

Alls voru um 64 prósent nýrra íbúðalána sem tekin voru á árinu 2014 verð­tryggð. Það er mikil breyting frá árinu 2013 þegar 38 prósent nýrra íbúðalána voru verð­tryggð. Þetta kemur fram í skýrslu Seðla­banka Íslands um fjármála­stöðugleika sem birt var á miðvikudag.

Alls nam fjárhæð nýrra íbúðalána á síðasta ári 123,3 milljörðum króna. Þegar úið var að taka tillit til uppgreiðslna á lánum nam hrein fjárhæð þeirra 42,8 milljörðum króna. Báðar tölurnar eru nánast þær sömu og þær voru árið 2013.

Í skýrslunni segir að raun­vextir verð­tryggra lána hafi framan af ári verið lægri en á óverðtryggðum lánum. Það geti að einhverju leyti skýrt aukna eftir­spurn eftir verð­tryggðum lánum. „Hins vegar hefur dregið saman með raun­vöxtum verð­tryggðra og óverðtryggðra lána á síðustu mánuðum en ekki er að sjá að það hafi slegið á eftir­spurn eftir verð­tryggðum lánum. Auk þess hefur fasteigna­verð hækkað meira en laun og ráðstöfunar­tekjur síðustu misseri og þar sem greiðslu­byrði verð­tryggðra lána er lægri í upphafi láns­tímans sækja einstaklingar í verð­tryggð lán.“

Í skýrslunni er sérstak­lega tekið fram að vægi 40 ára verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána hafi aukist og sagt að það geti verið leið heimila til að mæta hækkun fasteigna­verðs. Einnig sé líklegt að auknar vinsældir 40 ára verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána hafi stuðlað að hækkun fasteigna­verðs þar sem svigrúm til lántöku verður meira með slíkum lánum.

Framsókn ætlaði að afnema verðtryggingu


Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar 2013 kom skýrt fram að flokk­ur­inn ætl­aði sér að afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lánum. Undir þeim lið sagði: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­trygg­ingar neyt­enda­lána. Skipaður verði starfs­hópur sér­fræð­inga til að und­ir­búa breyt­ingar á stjórn efna­hags­mála sam­hliða afnámi verð­trygg­ing­ar­innar, meðal ann­ars til að tryggja hags­muni lán­þega gagn­vart of miklum sveiflum á vaxta­stigi óverð­tryggðra lána. Starfs­hóp­ur­inn skili nið­ur­stöðum fyrir árs­lok 2013.“

Í stefnu­yfirlýsingu ríkis­stjórnar Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks var fjallað nokkuð mikið um verð­tryggingu. Þar kom meðal annars fram að leiðrétta ætti verð­tryggð lán sem hefðu orðið fyrir verðbólgu­skoti og að samhliða þeirri skulda­leið­réttingu ætti að „breyta sem flestum verð­tryggðum lánum í óverðtryggð“.

Starf­hópur um afnám verð­tryggingu skilaði af sér í fyrra og komst að þeirri niður­stöðu að ekki ætti að afnema verð­tryggingu.

Vilja banna vinsælustu lánin


Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í sam­tali við Frétta­blaðið á mið­viku­dag að ekki standi til að afnema verð­trygg­inga. Þess í stað skoði rík­is­stjórnin að lengja lág­marks­tíma verð­tryggra lána í tíu ár og stytta hámarks­tíma þeirra úr 40 árum í 25 ár. Unnið sé að frum­varpi um breyt­ingar á verð­tryggðum lánum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og mögu­legt er að það verði lagt fram á haust­þingi.

Samkvæmt skýrslu Seðla­bankans um fjármála­stöðugleika eru verð­tryggð lán til 40 ára, sem ríkis­stjórnin vill banna, þau lán sem eiga mestri vinsældar­aukningu að fagna á meðal íslenskra íbúða­eigenda.

Alls eru verð­tryggð húsnæðislán Íslendinga um 1.200 milljarðar króna. Í lok síðasta árs hóf ríkis­stjórnin að greiða hluta þeirra Íslendinga sem voru með verð­tryggð húsnæðislán á árunum 2008 og 2009 um 80 milljarða króna úr ríkis­sjóði vegna verðbólgu þeirra ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár