Boðaði gerandann á fund: „Ekki lengur hrædd“

Björk Brynjars­dóttir mælti sér mót við manninn sem braut á henni í æsku og fékk hann til að horfast í augu við gjörðir sínar. „Ég bind vonir mínar við að hann leiti sér hjálpar, enda óskin sú að út úr þessari tragík komi tveir þroskaðir og heil­brigðir einstak­lingar.“

Björk Brynjars­dóttir, einn af stofn­endum tíma­ritsins Blævar, steig fram í fyrra og sagði frá kynferðis­ofbeldi sem hún varð fyrir 6 ára gömul. Gerandinn var 14 ára gamall fjölskyldu­vinur sem fékk að gista á heimili hennar. Björk lýsti því í viðtali við Frétta­tímann hvernig drengurinn fékk hana inn í herbergi til sín og bauðst til að kenna henni svolítið. „Ég var á þeim aldri að ég vildi læra allt í heiminum svo ég fór með honum,“ sagði hún og lýsti því hvernig drengurinn braut á henni kynferðis­lega. „Hann ítrekaði að þetta væri litla leyndar­málið okkar.“

Í dag segir Björk frá því í stöðu­uppfærslu á Facebook hvernig hún boðaði gerandann til fundar við sig og fékk hann til að horfast í augu við gjörðir sínar. Í byrjun febrúar á þessu ári hitti hún manninn. „Ég hafði ekki hugmynd hvað fundurinn myndi leiða í ljós en þetta snerist fyrst og fremst um að ég gæti endur­heimt líf mitt aftur og horfst í augu við minn stærsta ótta. Það er skemmst frá því að segja að þennan dag tók maðurinn sem beitti mig ofbeldi í fyrsta sinn ábyrgð á verknaðinum,“ skrifar Björk og bætir því við að hún geti ekki talað fyrir hönd gerandans en leyfi sér þó að fullyrða að samtalið hafi ekki aðeins verið léttir fyrir sig heldur einnig hann.

„Að hafa beitt ofbeldi er þung byrði að bera með sér og það er mikilvægt að hann fái líka rými til að vinna úr þeim pakka. Ég bind vonir mínar við að hann leiti sér hjálpar, enda óskin sú að út úr þessari tragík komi tveir þroskaðir og heil­brigðir einstaklingar.“

Stundin ræddi við Björk og fékk leyfi til að birta frásögn hennar í heild hér að neðan:

Mamma segir stundum að ég þurfi að passa að standa vörð um sjálfa mig. Ég á það til að deila of miklu og treysta of mörgum. Mamma var ogguponku stressuð í fyrra þegar ég ákvað að fara í viðtal og segja frá kynferðis­ofbeldi sem ég var beitt sex ára gömul. En stundum er það að standa vörð um sjálfan sig að berskjalda sig fyrir umheiminum, því lífið verður miklu bjartara þegar maður dregur gardínurnar frá.
____________
Það voru tveir hlutir sem ég vissi fyrir víst að myndu fylgja viðtalinu. Í fyrsta lagi myndi öryggis- og stuðnings­netið mitt sjöfaldast á örstuttum tíma og ég myndi ekki lengur þurfa að burðast með afleiðingarnar ein og í laumi. Ég á þessu ríkidæmi sem vinir mínir eru, svo gríðar­lega mikið að þakka. Þekkjandi sjálfa mig vissi ég hins vegar líka að viðtalinu myndi fylgja ákveðið bakslag, þó grunaði mig ekki hversu stórt það yrði né hvenær það kæmi.

Bakslagið kom í lok ágúst­mánaðar í fyrra en þá áttaði ég mig loks á því hversu lítið Ísland er. Fyrr en síðar myndi ég hitta á geranda í partýi eða þurfa að afgreiða ofan í hann kaffi­bolla. Á komandi mánuði stig­magnaðist stressið og hræðslan um að ég myndi rekast á hann. Ég var aldrei róleg, hvorki í vinnu né skóla og þegar ég lagðist upp í rúm í lok dags fór ég beint í fight or flight mode. Ég hélt mér því vakandi og upptekinni eins lengi og ég gat eða drakk nokkra bjóra til að auðvelda leiðina inn í drauma­land. Þar dreymdi mig hins vegar hverja martröðina á fætur annarri. Að lokum hætti ég að geta sofið og orkan silaðist hægt og rólega úr mér. Ég grét og reiddist þar til tárin voru búin og drakk mig meira og minna fulla allan desember­mánuð. 

Alveg komin á þröskuld uppgjafar leitaði ég til fagaðila og fékk þar að heyra ískaldann sann­leikann: að eina lausnin við þeirri bugandi hræðslu að hitta á manninn sem beitti mig ofbeldi, væri að hitta manninn sem beitti mig ofbeldi. 

Eftir svefn­lausa nótt í janúar tók ég því upp símtólið og hringdi í geranda. Ragnhildur vinkona hélt í höndina á meðan ég kynnti mig sem "Björk Brynjars, stelpuna sem þú beittir kynferðis­ofbeldi árið 2000" og þurrkaði tárin í spennu­fallinu að símtali loknu. Símtalið var ótrúlegur sigur, þó bara smávægilegur miðað við það sem koma skyldi, því við höfðum mælt okkur mót að mánuði liðnum.

Það var því í byrjun febrúar sem ég flaug með gubbuna í maganum af stressi norður á fyrir­áætlaðan fund. Ég hafði ekki hugmynd hvað fundurinn myndi leiða í ljós en þetta snerist fyrst og fremst um að ég gæti endur­heimt líf mitt aftur og horfst í augu við minn stærsta ótta. Það er skemmst frá því að segja að þennan dag tók maðurinn sem beitti mig ofbeldi í fyrsta sinn ábyrgð á verknaðinum.

Ég get ekki talað fyrir hönd geranda en leyfi mér þó að fullyrða að samtalið var líka léttir fyrir hann. Að hafa beitt ofbeldi er þung byrgði að bera með sér og það er mikilvægt að hann fái líka rými til að vinna úr þeim pakka. Ég bind vonir mínar við að hann leiti sér hjálpar, enda óskin sú að út úr þessari tragík komi tveir þroskaðir og heil­brigðir einstaklingar.

Í sumar gerði ég að lokum þá kröfu um að hann myndi segja fjölskyldu­meðlimum sann­leikann um það sem raun­verulega gerðist fyrir fimmtán árum. Í kjölfar þess fór ég aðra ferð norður og ræddi við fólkið hans. Í því fólst ótrúleg hreinsun því kynferðis­afbrot snerta yfirleitt fleiri en bara geranda og brotaþola.

Síðastliðið ár hef ég meðvitað reynt að troða kynferðis­ofbeldi inn í allar samræður í þeirri von að einn daginn muni fólki ekki bara þykja umræðan sjálfsögð heldur auðveld líka. Því þögnin lamar, ekki bara brotaþola heldur samfélagið allt. 

Við eigum það til að "velja lið" þegar kemur kynferðis­ofbeldi. Í því skyni langar mig minna á að rétt eins og við erum með fullu fólki í liði þegar við tökum af því bíllyklana eftir partí, erum við í liði með gerendum þegar við hjálpum þeim að taka ábyrgð á gjörðum sínum. 
________
Kynferðis­ofbeldi er ekki eitthvað sem maður fyrir­gefur og í svona málum er voða litlu réttlæti að ná. En maður lærir að lifa með þessu. Ég er búin að endur­heimta svefninn og orkuna og í fyrsta sinn er ég hamingjusöm á nokkurra skilyrða. Ég er ekki lengur hrædd því þegar maður hefur haldið á tarantúlu hræða litlar köngulær mann ekki lengur (ég er samt ennþá hrædd við köngulær en einn daginn mun ég halda á tarantúlu og þá verð ég queen of the universe).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár