Yfir hundrað látnir í Ankara

Valda­ráns­tilraunin er sögð hafa verið brotin á bak aftur.

Að minnsta kosti 104 úr röðum uppreisnar­manna eru sagðir látn­ir eft­ir átök í An­kara, höfuðborg Tyrk­lands í kvöld og í nótt. Valda­ráns­tilraunin er sögð hafa verið brotin á bak aftur, en hópar innan tyrkneska hersins eru sagði hafa staðið á bak við hana.

For­sæt­is­ráðherra lands­ins, Binali Yild­irim, sagðist í gærkvöldi hafa fyr­ir­skipað að herþotur í notk­un upp­reisn­ar­manna verði skotn­ar niður. Þá sagði hann jafn­framt að upp­reisn­ar­menn­irn­ir hafi skotið á al­menna borg­ara án þess að hika.

Rúm­lega 120 manns voru hand­tekn­ir í tengsl­um við vald­aránstilraun­ina í gærkvöldi, að sögn fjölmiðla í Tyrklandi. Fjöldinn er nú kominn upp í meira en 1.500, eftir atburði næturinnar.

Starf­semi á Ataturk flugvelli hófst í nótt, en nokkurn tíma mun þó taka að koma öllu fastar skorður, enda flug­völlur með mikil­vægari flug­völlum í Evrópu, þegar kemur að tengi­flugi til Asíu og Mið-Austur­landa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár