Verðbólgan mögulega vanmetin

Seðla­bankinn telur að meiri líkur séu á því að spáð verðbólga á næstu mánuðum sé vanmetin frekar en ofmetin, samkvæmt grein í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Verðbólga verður töluvert þrálátari en áður var spáð og vísbendingar eru um að væntingar um verð­hækkanir til framtíðar séu byrjaðar að hækka. Meiri líkur eru á að núverandi spár vanmeti verð­bólguna frekar en ofmeti.

Þetta kemur fram í grein Karenar Á. Vignis­dóttur, aðstoðar­framkvæmda­stjóra hagfræði- og peninga­stefnu­sviðs Seðla­bankans í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem kom út á föstu­daginn. Í henni fer Karen yfir verðbólgu­horfur næstu missera, auk þess sem hún útskýrir hvers vegna verð­bólgan á þessu ári hefur reynst meiri og þrálátari en vænst var, þrátt fyrir hækkandi gengi krónunnar.

Skipsstrand og fasteignamarkaðurinn

Samkvæmt henni eru það bæði innlendir og erlendir þættir sem vega á móti gengis­styrkingunni. Innanlands hefur eftir­spurnin verið meiri en búist var við, sem sjá má í miklum hækkunum launa og húsnæðis­verðs. Auk þess hefur verð á hrávörum hækkað og kostnaður innfluttra vara sömuleiðis vegna framboðs­truflana í kjölfar farsóttarinnar og skips­strands flutninga­skipsins Ever Given í Súesskurðinum í mars.

Áhrif þessara framboðs­truflana voru vanmetin í fyrri spám Seðla­bankans, en kostnaður við gáma­flutninga milli landa er nú orðinn þrefalt meiri en hann var að meðaltali fyrir tveimur árum síðan. Karen telur að það taki nokkurn tíma að vinda ofan af þessum frambooðstruflunum og gætu áhrifin af þeim varað fram eftir ári.

Væntingar hækka og kjölfestan veikist

Eftir því sem verð­bólgan hefur reynst þrálátari hafa verðbólgu­væntingar til skemmri tíma einnig hækkað, en nú búast flestir við 3-4 prósenta verðbólgu á næstunni. Heimili búast svo við að verð­bólgan verði 3 prósent næstu fimm árin, auk þess sem skuldabréfa­eigendur búast við svipaðri verðbólgu næstu tíu árin.

Samkvæmt Karen gæti þessi þróun bent til þess að kjölfesta verðbólgu­væntinga við markmið hafi veikst að undan­förnu.

Mikil óvissa um verðbólguhorfur

Seðla­bankinn spáir nú að verðbólga mælist að meðaltali 4,4 prósent í apríl, maí og júlí, en lækki svo nokkuð á haust­mánuðunum. Ekki er búist við að verð­bólgan verði komin í markmið bankans fyrr en um mitt næsta ár, aðallega vegna verð­hækkunar innfluttrar vöru og þjónustu. Þó segir Karen að mikil óvissa sé um verðbólgu­horfur, sem ráðast af krafti efnahags­batans og langtíma­áhrifum farsóttarinnar. „Talið er að meiri líkur séu á að verðbólga á næstunni sé vanmetin í spánni en að hún sé ofmetin,“ skrifaði Karen.

Hægt er að gerast áskrifandi að Vísbendingu með því að smellla hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár