Lífeyrissjóður verzlunarmanna útilokar fjárfestingu í 138 fyrirtækjum

Boeing, Shell og Airbus eru á meðal 138 alþjóðlegra fyrir­tækja sem komin eru á nýjan útilokunar­lista Lífeyris­sjóðs verzlunarmanna, vegna stefnu sjóðsins um útilokun fjár­festingar­kosta með tilliti til ábyrgra fjár­festinga.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna er búinn að setja 138 fyrirtæki á útilokunarlista hvað fjárfestingar varðar.
Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er búinn að setja 138 fyr­ir­tæki á úti­lok­un­ar­lista hvað fjár­fest­ingar varðar. Mynd: Úr safni.

Lífeyris­sjóður verzlunarmanna (LV) segir frá því í dag að sjóðurinn hafi sett alls 138 fyrirtæki á útilokunar­lista og að þegar hafi verið seldar eignir að virði rúmlega þriggja milljarða króna úr eigna­söfnum sjóðsins vegna útilokunarinnar.

Ástæðan fyrir útilokuninni er sú að starfsemi fyrir­tækjanna uppfyllir ekki skilyrði um sjálfbærni og ábyrgar fjár­festingar, samkvæmt nýrri heildar­stefnu stjórnar LV um ábyrgar fjár­festingar.

Listi yfir fyrir­tækin 138 hefur verið birtur á vef sjóðsins, en þar er ekki eitt einasta íslenskt fyrirtæki að finna.

Þar má hinsvegar finna flugvéla- og hergagna­fram­leiðendur, tóbaks­fram­leiðendur, fyrirtæki sem stunda námu­vinnslu og fram­leiðslu jarðefnaeldnseytis og fleiri – mörg hver heims­þekkt fyrirtæki á sínu sviði.

Þar má til dæmis finna bandaríska flugvéla­fram­leiðandann Boeing, sem er á útilokunar­listanum vegna fram­leiðslu fyrir­tækisins á svokölluðum klasa­sprengjum, hollenska félagið Royal Dutch Shell, sem er á listanum vegna brots á alþjóða­samningum og flugvéla­fram­leiðandann Airbus, sem er á lista vegna aðkomu að fram­leiðslu kjarnorku­vopna.

Horft til leiðandi sjóða á Norðurlöndum

„Stefna um útilokun er leiðar­ljós við stýringu eigna­safna LV. Útilokunin varðar fyrirtæki sem framleiða tilteknar vörur eða teljast brotleg við tiltekin alþjóðleg viðmið um mann­réttindi og viðskipta­siðferði,“ segir í frétta­tilkynningu frá sjóðnum í dag, en sjóðurinn segir litið til fyrir­mynda frá leiðandi lífeyris­sjóðum á Norður­löndum hvað þetta varðar.

Í tilkynningu segir að á grund­velli stefnunnar séu 88 fyrirtæki sem vinna kol, olíusand og olíuleir, 13 fyrirtæki í tóbaks­framleiðslu, 22 fyrirtæki sem framleiða umdeild vopn (e. controversial weapons) og 15 fyrirtæki sem teljast brjóta gegn „UN Global Compact“ komin á útilokunar­listann.

Jafnframt segir frá því að innleiðing stefnunnar muni taka tíma og að því verði „enn um sinn að finna fyrirtæki í eigna­söfnum LV sem eru á útilokunar­lista.“ Ástæðan er sögð sú að enn sem komið er hafi sjóðurinn „takmarkaða möguleika til að tjá skoðanir um útilokun þegar sjóðurinn fjár­festir í erlendum eignum s.s. hlutabréfa­sjóðum.“

Útilokun fjár­festinga í þessum 138 fyrir­tækjum er sögð hluti af „víðtækri stefnu­mótun stjórnar sjóðsins varðandi ábyrgar fjár­festingar“ og að afrakstur af því starfi sé meðal annars tvær nýjar stefnur sem styðja eigi við ábyrga langtíma­ávöxtun eigna, sjálfbærni og aðgerðir í loftslags­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár