Níu handteknir vegna hryðjuverkanna í Túnis, minnst 23 látnir

Búið er að handtaka níu manns í tengslum við hryðju­verkin í Túnis í gær. Fjórir eru sagðir hafa tekið þátt í hryðju­verkunum og fimm hafa tengsl við hryðjuverka­selluna sem framkvæmdi árásina.

Að minnsta kosti 23 hafa látið lífið vegna skot­árásarinnar sem var gerð á Bardo þjóð­minjasafnið í Túnis, höfuðborg Túnis, í gær. Tuttugu erlendir ferðamenn eru meðal hinna látnu. Lögreglan skaut tvo árásar­menn til bana á staðnum í gær eftir að þeir höfðu haldið fólki í gíslingu í safninu í nokkrar klukku­stundir. Greint hefur verið frá því að annar mannanna hafi verið þekktur hjá lögreglunni. Hann hét Yassine Laabidi og hinn maðurinn sem var drepinn hét Hatem Khachnaoui.

Breska ríkis­útvarpið BBC greinir frá því að Al-Kaída hryðjuverka­samtökin hafi sagt að árásarennirnir tveir hafi dvalið með íslömskum öfga­mönnum í þjálfunar­búðum í Líbíu. Þá hefur einnig verið sagt frá því að mennirnir hafi upphaf­lega ætlað að ráðast á þinghúsið í Túnis, sem er skammt frá safninu. Þeir hafi hins vegar hörfað þaðan vegna mikillar öryggis­gæslu lögreglu­manna.

Fyrr í dag fundust þrír einstaklingar á lífi inni í safninu, tveir spænskir ferðamenn og einn starfs­maður safnsins. Þau höfðu falið sig í safninu og ekki þorað að hreyfa sig af ótta við að árásinni væri ekki lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár