Brenndu 13 ára dreng til dauða

„Margir krakkar hérna á svæðinu hrökkva upp á nóttunni við martraðir um dróna”

Fylgst með árás
Fylgst með árás Barack Obama Banda­ríkja­for­seti fylgist með árás úr fjar­lægð. Mynd: Public Domain

Þann 26. janúar greindi New York Times frá því að þrír menn, sem grunaðir væru um aðild að Al-Kaída-samtökunum, hefðu látið lífið í drónaárás CIA, bandarísku leyni­þjónustunnar. Þetta var haft eftir ónafn­greindum embættis­mönnum í Washington og enginn fyrirvari settur við frásögn þeirra. Einn hinna látnu hét Mohammed Toiman al-Jahmi og var jemenskur unglingur, en árið 2011 voru faðir hans og bróðir drepnir í sams konar árás.

Jahmi var aðeins 13 ára gamall daginn sem hann var drepinn. Nokkrum mánuðum áður hafði unglingurinn greint Guardian frá því að hann „lifði í stöðugum ótta við dauða­maskínurnar“ sem þá höfðu orðið föður hans og bróður að bana meðan þeir voru að smala saman kamel­dýrum fjöl­skyldunnar. Sömu örlög biðu Jahmi sem tekinn var af lífi í lok janúar ásamt mági sínum og vini. „Hann var ekki al-kaída-liði, hann var bara krakki,“ er haft eftir Maqded, bróður Jahmi. „Þeir voru saklaust fólk. Við erum veikburða og fátækt fólk. Við höfum ekkert með þetta að gera. Við lifum við ranglæti.“

Talið er að á fjórða hundrað barna hafi látist í sams konar árásum Bandaríkja­hers og CIA undan­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár