Afkoma A-hluta Reykjavíkur 3,3 milljörðum verri en lagt var upp með í áætlun

Sá hluti rekst­urs Reykja­vík­ur­borgar sem er fjár­magn­aður með skatt­tekjum, hinn svo­kall­aði A-hluti, var rek­inn með 2,8 millj­arða króna halla á síð­asta ári. Fjár­hags­á­ætlun hafði gert ráð fyrir að sá þessu hluti rekst­urs borg­ar­innar myndi skila 488 millj­óna króna afgangi. Því var nið­ur­staðan 3,3 millj­örðum krónum verri en lagt var upp með. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar sem var lagður fram í borg­ar­stjórn í gær.

Rekst­ar­nið­ur­staða sam­stæðu borg­ar­innar var jákvæð um 11,1 millj­arða króna. Sam­stæðan sam­anstendur af A og B hluta. Sú jákvæða nið­ur­staða er ein­vörð­ungu vegna B-hlut­ans, en til hans telj­ast fjár­hags­lega sjálf­stæð fyr­ir­tæki sem að hálfu eða meiru eru í eigu borg­ar­innar. Þar munar lang mest um Orku­veitu Reykja­víkur, sem skil­aði 8,9 millj­örðum króna í hagnað í fyrra, og þeirra áhrifa sem lækk­andi fjár­magns­gjöld hafa á rekstur hennar. Auk þess skipti tekju­færsla vegna mats­breyt­inga fjár­fest­inga­eigna hjá Félags­bú­stöðum tölu­verðu máli. Þessar tekju­færslur hafa hins vegar ekk­ert með grunn­rekstur Reykja­vík­ur­borgar að gera.

Mikill viðsnúningur


Rekstur A-hlut­ans hefur verið með ágætum und­an­farin tvö ár. Árið 2012 skil­aði hann 154 millj­óna króna hagn­aði og árið 2013 heilum 3,2 millj­örðum króna. Því er um gríð­ar­legan við­snún­ing að ræða í því sem mætti kalla grunn­rekstri borg­ar­innar, eða sú starf­semi sem er fjár­mögnuð með skatt­tekjum okkar. Undir þá starf­semi falla m.a. öll fag­svið borg­ar­innar og þar af leið­andi öll þjón­usta sem hún veitir þegnum sínum í staðin fyrir útsvarið sem þeir láta af hendi í hverjum mán­uði.

Fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar gerði ráð fyrir því að tekjur borg­ar­innar yrðu 83,8 millj­arðar króna á síð­asta ári. Þar munar lang­mest um skatt­tekjur, sem áætl­aðar voru 64,4 millj­arðar króna. Inni í þeim lið eru líka fram­lög frá jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga og „aðrar tekjur“. Tekju­á­ætl­unin stóðst að mestu leyti, en tekjur voru um 300 millj­ónum krónum lægri en lagt var upp með.

Útgjöldin voru hins vegar mun hærri en fjár­hags­á­ætl­unin gerði ráð fyrir. Alls eyddi borgin 86,7 millj­örðum króna í fyrra, eða 3,4 millj­örðum króna meira en áætl­unin gerði ráð fyrir. Nið­ur­staðan er því halli upp á 2,8 millj­arða króna. Þann halla verður því að fjár­magna með örðum hætti en þeim tekjum sem Reykja­vík­ur­borg inn­heimti í fyrra. Það verður hins vegar ekki gert með því að hækka útsvar á borg­ar­búa, enda er það í lög­bundnu hámarki.

"Mikilvægt að bregðast við þessum aðstæðum"


Í skýrslu Fjár­mála­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar vegna upp­gjörs­ins kemur fram að lak­ari rekstr­ar­nið­ur­staða skýrist að mestu vegna launa­hækk­ana opin­bera starfs­manna sem samið var um í fyrra. Laun og launa­tengd gjöld voru tæpum millj­arði króna hærri en lagt var upp með og líf­eyr­is­skuld­bind­ingar hækk­uðu um millj­arð króna, einkum vegna mik­illa launa­hækk­ana.

Auk þess voru tekjur af sölu bygg­inga­réttar mun lægri en áætlað var. Í fjár­hags­á­ætlun var gert ráð fyrir að slík sala myndi skila borg­inni 1,6 millj­örðum króna en hún skil­aði henni á end­anum ein­ungis 407 millj­ónum króna.

Í til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar til Kaup­hallar vegna upp­gjörs­ins segir: „Að teknu til­liti til ofan­greindra frá­vika er rekstr­ar­nið­ur­staða A-hluta jákvæð um 335 mkr.“.

Í skýrslu Fjár­mála­skrif­stofu borg­ar­innar er orða­lagið hins vegar aðeins svart­ara. Þar segir: „Rekstr­ar­nið­ur­staða A hluta hefur versnað tals­vert milli ára. Laun og annar rekstr­ar­kostn­aður var 123% í hlut­falli af skatt­tekjum en var 120% árið 2013. Nið­ur­staða fyrir fjár­magnsliði versnar um 3,6 makr ef gjald­færsla líf­eyr­is­skuld­bind­ingar er frá talin. Mik­il­vægt er að bregð­ast við þessum aðstæðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár