„Þessir strákar höfðu allt valdið í höndum sér“

Í skýrslu vegna kynferðis­ofbeldis­mála sem tengst hafa leik­mönnum í karla­landsliðum Íslands er birt bréf frá fyrr­verandi vinkonu tveggja lands­liðsmanna í fótbolta, þar sem hún biður konu afsökunar á að hafa ekki staðið með henni á sínum tíma en þegar fréttist að hún ætlaði að kæra hafi vinahópur lands­liðs­mannanna farið á fullt að reyna að koma í veg fyrir það til að verja mannorð þeirra. Tengda­móðir brotaþola vinnur hjá KSÍ og sendi stjórn og starfs­fólki bréfið ásamt lýsingu tengda­dóttur sinnar á atburðinum fyrir ellefu árum.

Baðst afsökunar á að hafa tekið afstöðu með þeim
Baðst afsök­unar á að hafa tekið afstöðu með þeim Í bréfi sem fyrr­ver­andi vin­kona Arons Einars og Eggerts skrif­aði er því lýst hvernig þeir hvöttu vina­hóp­inn gegn kon­unni í til­raun til að verja mann­orð sitt. Segir vin­konan að þeir hafi haft allt vald í höndum sér, verið ríkir og frægir, um leið og hún biðst afsök­unar á að hafa tekið afstöðu með þeim. Mynd: Stundin / JIS

„Ég er búin að skrifa þessi skilaboð cirka 100 sinnum og stroka út því ég veit í rauninni ekkert hvað ég get sagt. Ég trúi samt á það að viðurkenna mistök sín og taka ábyrgð og ætla þess vegna að henda þessu til þín. Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar ég fékk símtal frá vini mínum út af þessu atviki sem þú lentir í 2010.“

Þannig hefst bréf sem barst konu sem kærði þá Aron Einar Gunnarsson landsliðs­fyrirliða og Eggert Gunnþór Jónsson, fyrr­verandi lands­liðsmann, fyrir kynferðis­brot. Þar segir fyrr­verandi vinkona lands­liðs­mannanna að þeir hafi att vina­hópnum gegn konunni með það að marki að koma í veg fyrir kæruna og verja mannorð sitt. 

Þar segir: „Þetta voru vinir mínir sem gerðu þér þetta. Það hafði spurst út að þú ætlaðir að kæra þá og vina­hópurinn átti að fara á fullt að reyna að koma …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það ætti að mega gera því skóna að landsliðferli Arons Einar Gunnarssonar sé lokið með skömm.
    0
  • Katrin Eyjólfsdóttir skrifaði
    Ég er áskrifandi að netblaðinu og hef verið það lengi, svo ég skil ekki hversvegna það virðist breytt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár