HBO frumsýnir stiklu úr sláandi heimildamynd um Vísindakirkjuna - myndband

Bandaríska sjónvarps­stöðin HBO frumsýndi í gær stiklu úr væntanlegri heimilda­mynd óskars­verðlauna­leik­stjórans Alex Gibney um Vísinda­kirkjuna. Myndin heitir „Going Clear: Scientology and the Prison of Belief,“ og er byggð á samnefndri bók Lawrence Wright sem olli miklu fjaðra­foki þegar hún kom út árið 2013. Gibney er einna þekktastur fyrir að hafa skrifað og leikstýrt heimilda­myndinni um Enron.

Mikil eftir­vænting ríkir vegna myndarinnar, en hún ku hlaðin hneykslis­málum samkvæmt blaða­mönnum sem börðu hana augum á Sundance kvikmynda­hátíðinni á dögunum. Kjarninn greindi frá frásögnum blaða­mannanna 26. janúar síðastliðinn.

Í heimilda­myndinni er sagt frá því hvernig Vísinda­kirkjan vann markvisst að því að fá stór­stjörnuna Tom Cruise til að skilja við þáverandi eiginkonu sína Nicole Kidman.

Tom Cruise
Tom Cruise

Margir hafa beðið spenntir eftir að berja myndina augum, og ekki minnkaði eftir­væntingin þegar fréttist af því að HBO hefði ráðið um 160 lögfræðinga til að rýna í myndina fyrir frum­sýningu hennar, til að forðast lögsóknir. Svo uggandi er Vísinda­kirkjan yfir viðbrögðum almennings við myndinni að hún keypti heilsíðu­auglýsingu í dagblaðinu New York Times á dögunum, þar sem trúverðug­leiki myndarinnar er dreginn í efa og leik­stjórinn gagn­rýndur fyrir að gefa kirkjunni ekki nægilegt tækifæri til að svara fyrir sig.

Heimilda­myndin um Vísinda­kirkjuna verður frumsýnd á HBO sjónvarps­stöðinni 29. mars næst­komandi, en hægt er að horfa á stikluna úr myndinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár