Ný heimildamynd um Vísindakirkjuna hlaðin hneykslismálum

Heimilda­myndin „Going Clear: Scientology and the Prison of Belief“ sem fjallar um Vísinda­kirkjuna var frumsýnd á Sundance kvikmynda­hátíðinni á sunnu­daginn. Myndin verður tekin til sýninga á HBO sjónvarps­stöðinni í mars, en í henni er rætt við marga fyrr­verandi háttsetta meðlimi Vísinda­kirkjunnar.

Margir hafa beðið spenntir eftir að berja myndina augum, og ekki minnkaði eftir­væntingin þegar fréttist af því að HBO hefði ráðið um 160 lögfræðinga til að rýna í myndina fyrir frum­sýningu hennar, til að forðast lögsóknir. Svo uggandi er Vísinda­kirkjan yfir viðbrögðum almennings við myndinni að hún keypti heilsíðu­auglýsingu í dagblaðinu New York Times á dögunum, þar sem trúverðug­leiki myndarinnar er dreginn í efa og leik­stjórinn gagn­rýndur fyrir að gefa kirkjunni ekki nægilegt tækifæri til að svara fyrir sig.

Heimilda­myndin er byggð á samnefndri bók eftir Pulitzer-verðlauna­hafann Lawrence Wright, en bókin olli miklu fjaðra­foki þegar hún kom út árið 2013. Leik­stjóri myndarinnar er Alex Gibney sem er gríðar­lega afkasta­mikill kvikmynda­gerðarmaður á sviði heimilda­mynda. Gibney skrifaði og leik­stýrði meðal annars heimilda­myndinni um Enron, og hlaut óskars­verðlaunin árið 2009 sem fram­leiðandi að heimilda­myndinni „Taxi to the Dark Side“ sem hann leik­stýrði einnig en myndin fjallar um pyntingar Bandaríkja­hers á föngum í Afganistan, Írak og Gúantanamó fanga­búðunum.

Hvert hneykslismálið á fætur öðru


Gestir á frum­sýn­ingu mynd­ar­innar á Sundance kvik­mynda­há­tíð­inni á sunnu­dag­inn, risu upp úr sætum og hylltu leik­stjóra mynd­ar­innar með dynj­andi lófa­klappi eftir að henni lauk. Nú ber­ast fréttir af þeim hneyksl­is­málum sem myndin ku vera nokkuð rík af. Frétta­mið­ill­inn Business Insider greinir frá nokkrum þeirra.

Samkvæmt blaða­manni The Daily Beast, sem var viðstaddur frum­sýningu heimilda­myndarinnar á sunnu­daginn, kemur fram í myndinni hvernig Vísinda­kirkjan neyddi kvikmynda­stjörnuna Tom Cruise til að skilja við þáverandi eigin­konuna sína, kvikmynda­stjörnuna Nicole Kidman. Í myndinni segir Marty Rathbun, sem var um tíma næst hátt­settasti maður Vísinda­kirkjunnar, hvernig honum var falið af kirkjunni að stuðla að skilnaði kvikmynda­stjarnanna.

Vísinda­kirkjunni fannst stafa ógn af Kidman og hafði áhyggjur af því að hún hefði óæskileg áhrif á Cruise sem var og hefur verið einn áhrifa­mesti talsmaður kirkjunnar út á við. Þá hafði kirkjan áhyggjur af áhrifum Kidman á Cruise, þar sem faðir hennar starfar sem sálfræðingur en Vísinda­kirkjan er mikill andstæðingur sálfræði og geðlækninga. Í myndinni er greint frá þeim fjölmörgu aðferðum sem kirkjan beitti til að skilja að Cruise og Kidman, sem leiddi til þess að parið skildi árið 2001. Þá er greint frá því í myndinni hvernig ættleidd börn hjónanna voru heila­þvegin af Vísinda­kirkjunni til að snúa þeim gegn Kidman og tryggja Cruise forræðið yfir þeim.

John Travolta kúgaður til fylgni


Vís­inda­kirkjan hefur frá stofnun lagt mikið upp úr því að fá stór­stjörnur til liðs við sig. Í heim­ilda­mynd­inni kemur fram til hvaða aðferða kirkjan grípur til að halda stjörn­unum innan sinna vébanda.

Vísinda­kirkjan hefur víst vitneskju um svæsnustu leyndarmál John Travolta og hefur hótað honum að opinbera þau gangi hann úr söfnuðinum.

Vísindakirkjan hefur víst vitneskju um svæsnustu leyndarmál John Travolta og hefur hótað honum að opinbera þau gangi hann úr kirkjunni.
Vís­inda­kirkjan hefur víst vit­neskju um svæsn­ustu leynd­ar­mál John Travolta og hefur hótað honum að opin­bera þau gangi hann úr kirkj­unni.

Samkvæmt umfjöllun frétta­miðilsins The Vulture er töluvert fjallað um tengsl Vísinda­kirkjunnar við kvikmynda­stjörnuna John Travolta, sem er annað krúnu­djásn kirkjunnar ásamt áður­nefndum Tom Cruise. Í heimilda­myndinni er sagt frá því hvernig Vísinda­kirkjan kúgar John Travolta til fylgni við sig með því að hóta honum að gera ella opinber fjölmörg leyndarmál sem Travolta hefur trúað kirkjunni fyrir.

Vísinda­kirkjan komst yfir leyndarmál Travolta með svokallaðri „andlegri endur­skoðun“ þar sem sóknar­börn segja frá öllum sínum dýpstu leyndar­málum sem kirkjan skrásetur og notar svo til að veita viðkomandi „hvatningu.“

Samkvæmt fleiri heimildum er sömuleiðis fjallað um það marg­víslega líkamlega og andlega ofbeldi sem Vísinda­kirkjan beitir meðlimi sína í myndinni, og hvernig kirkjan hefur sankað að sér hátt í milljarð Bandaríkja­dala á undan­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár