Pundið fellur og fellur – Kostar nú 142 krónur

Hags­muna­sam­tök í Bret­landi hafa kraf­ist þess að stjórn­völd í Bret­landi semji um áfram­hald­andi gott við­skipta­sam­band við Evr­ópu­markað.

Pundið veikt­ist mikið gagn­vart helstu við­skipta­myntum í gær, eftir sex pró­sent fall við opnun markað í Asíu, en fallið var meðal ann­ars tengt við nei­kvæðar fréttir Financial Times þar sem Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, sagði að Bretar myndu ekki fá neina silki­með­ferð við útgöng­una úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Frá því að almenn­ingur í Bret­landi kaus með Brexit í júní síð­ast­liðnum hefur pundið veikst mikið. Gagnvart krón­unni nemur veik­ingin tæp­lega 30 pró­sentum. Í fyrra kost­aði það 206 krónur en nú er það komið niður í 142 krónur.

Á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC segir að hags­muna­sam­tök fyr­ir­tækja í bresku atvinnu­lífi, berj­ist nú fyrir því að bresk stjórn­völ tryggi áfram­hald­andi hag­stæða við­skipta­samn­inga við Evr­ópu­lönd, sem séu með sam­bæri­legum ákvæðum og fylgja Evr­ópu­sam­bands­að­ild og sam­starfi á innri mark­aði sam­bands­ins. Miklir hags­munir eru sagðir í húfi, og mik­il­vægt sé að tryggja þá vel í þágu bresku þjóð­ar­innar.

Veiking punds­ins hefur mikil áhrif á útflutn­ing frá Íslandi til Bret­lands, en um tólf pró­sent af vöru­út­flutn­ingi Íslands er til Bret­lands. Það eru einkum sjáv­ar­af­urðir sem fara til Bret­lands.

Þá koma um 19 pró­sent af erlendum ferða­mönnum frá Bret­landi, en í fyrra voru þeir 241 þús­und. Þeim hefur fjölgað um 30 pró­sent það sem af er ári, þrátt fyrir að Ísland sé nú orðið dýrar í pundum talið en það var í fyrra, og gera flestar spár ráð fyrir því að ferða­mönnum muni halda áfram að fjölga.

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur boðað að form­legt útgöngu­ferli Bret­lands hefj­ist á næsta ári, en óljóst er hversu langan tíma það mun taka að semja um útgöng­una í smá­at­riðum og for­sendur hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár