FME auglýsir eftir fólk sem gæti verið skipað í bráðabirgðastjórnir fjármálafyrirtækja

Fjár­mála­eft­ir­litið vill fá áhuga­sama sér­fræð­inga til að gefa kost á sér til að taka að sér afmörkuð verk­efni fyrir sína hönd, komi slík upp. Þeir sem vinna hjá eft­ir­lits­skyldum aðilum eins og bönkum eða öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækjum koma ekki til greina.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) aug­lýsti í gær eftir áhuga­sömum sér­fræð­ingum utan stofn­un­ar­innar til að taka að sér afmörkuð verk­efni, skyldu slík koma upp.

Í frétt á vef FME segir að stofn­unin hafi til að mynda heim­ild til að skipa sér­fræð­ing til að athuga til­tekna þætti í starf­semi eða rekstri eft­ir­lits­skyldra aðila, sem eru bankar og önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki, eða til að hafa að öðru leyti sér­tækt eft­ir­lit með eft­ir­lits­skyldum aðilum.

Í frétt­inni stendur enn fremur að FME hafi heim­ild til að skipa bráða­birgða­stjórn yfir eft­ir­lits­að­ila „við sér­stakar aðstæður“.

Þeir sem hafa áhuga á að sinna ofan­greindum verk­efnum fyrir FME, skyldu þau koma upp, geta skilað fer­il­skrám sínum til þess, en auk þess geta fyr­ir­tæki gefið kost á til­teknum starfs­mönnum sínum til slíkra starfa. Í frétt­inni segir að leitað sé „að ein­stak­lingum með fjöl­breytta reynslu og þekk­ingu á sviði lög­fræði, fjár­mála­mark­aða, rekst­urs og stjórn­unar. Ekki er tekið við fer­il­skrám þeirra sem starfa hjá eft­ir­lits­skyldum aðilum.“

FME getur vikið stjórn fjármálafyrirtækis frá

Heimild FME til að skipa bráða­birgða­stjórn yfir eft­ir­lits­skyldum aðila byggir á inn­leið­ingu til­skip­ana Evr­ópu­sam­bands­ins í íslenskan rétt á síð­asta ári. Samkvæmt þeim getur FME vikið stjórn lána­stofn­unar eða verð­bréfa­fyr­ir­tækis frá í heild eða hluta, sem og fram­kvæmda­stjóra þess, hafi fyr­ir­tækið brotið alvar­lega gegn lögum eða stjórn­valds­fyr­ir­mælum eða ef alvar­lega athuga­semdir hafi verið gerðar við stjórnun þess.

Telji FME að brott­vikn­ing stjórnar og fram­kvæmda­stjóra sé ekki full­nægj­andi til að rétta af fjár­hags­lega stöðu við­kom­andi fyr­ir­tækis þá getur stofn­unin skipað bráða­birgða­stjórn­anda eða eftir atvikum -stjórn. Skip­un­ar­tími slíkra skal að hámarki vera eitt ár en við sér­stakar aðstæður er hægt að fram­lengja skip­un­ar­tím­ann. Það er FME sem leggur mat á hæfi þess sem skip­aður er í stjórn­ina.

Bráða­birgða­stjórn­andi sem FME skipar er ein­ungis ábyrgur fyrir tjóni sem hann veldur í störfum sínum af ásetn­ingi eða stór­kost­legu gáleysi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár