Þurfa að framvísa gögnum sem staðfesta raunverulegan eiganda

Íslensk félög hafa rúman mánuð til skila inn upp­lýs­ingum til skatt­yf­ir­valda um raun­veru­lega eig­endur sína. Lögum var breytt í fyrra til að kalla fram raun­veru­legt eign­ar­hald þar sem það er mögu­lega falið. Það var liður í auknum vörnum gegn pen­inga­þvætti.

Raunverulegir eigendur félaga sem starfa hérlendis hafa átt auðvelt með að felast. Það á ekki lengur við.
Raun­veru­legir eig­endur félaga sem starfa hér­lendis hafa átt auð­velt með að fel­ast. Það á ekki lengur við. Mynd: Pexels

Öll skrán­ing­ar­skyld félög á Íslandi þurfa að upp­lýsa um nafn, lög­heim­ili, kenni­tölu (eða TIN-númer ef um erlendan rík­is­borg­ara er að ræða), rík­is­fang eig­enda sinna til rík­is­skatts­stjóra, sem ný er hluti af hinni nýju stofnun Skatt­inum, fyrir 1. mars næst­kom­andi. Auk þess þurfa þeir sem skrán­ingin á við að gera grein fyrir eign­ar­hlut, teg­und eign­ar­halds og atkvæða­vægi við­kom­andi auk þess sem það þarf að fram­vísa gögnum sem stað­festa þær upp­lýs­ingar sem veittar eru og „sýna fram á að við­kom­andi sé raun­veru­legur eig­andi“.

Þetta kemur fram í frétt á vef rík­is­skatt­stjóra þar sem minnt er á að skrá­setn­ing raun­veru­legra eig­enda hefur loks verið fest í lög. Þar segir enn fremur að lög­að­ilar sem lögin ná til séu sjálfir ábyrgir fyrir því að afla upp­lýs­inga um raun­veru­lega eig­endur sína. „Leiki vafi á því hver telst raun­veru­legur eig­andi skrán­ing­ar­skylds lög­að­ila skal leita ráða hjá utan­að­kom­andi fag­að­ila, s.s. lög­manni, lög­giltum end­ur­skoð­anda eða end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki.“

Lög sem flýttu fresti sem félög hafa til þess að upp­lýsa um raun­veru­lega eig­endur sína til 1. mars næst­kom­andi voru sam­þykkt skömmu fyrir síð­ustu jól. 

Flýtt vegna gráa listans

Þegar voru í gildi kvaðir um að upp­lýsa um raun­veru­lega eig­endur þegar nýtt félag er stofnað. Þær hafa verið í gildi frá 30. ágúst síð­ast­liðnum og frá 1. des­em­ber hefur verið hægt að senda upp­lýs­ingar um hverjir þeir eru með raf­rænum hætti til rík­is­skatt­stjóra.

Upp­haf­lega stóð til að gefa öðrum félögum, þ.e. þeim sem þegar eru í rekstri, frest til 1. des­em­ber 2019 til að koma upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur til emb­ættis rík­is­skatt­stjóra. hefði sá frestur haldið ætti rík­is­skatt­stjóri því að vera kom­inn með allar upp­lýs­ingar um eig­endur félaga sem starfa á Íslandi, ef allir fylgdu lög­unum.

Ákveðið var að flýta þeim frest eftir að alþjóð­legur vinnu­hópur um um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, Financial Action Task Force (FATF), setti Ísland á gráan lista fyrir að bregð­ast ekki nægi­lega vel við fjöl­mörgum athuga­semdum sam­tak­anna um brotala­mir í vörnum gegn pen­inga­þvætti á Íslandi.

Ein af athuga­semd­unum sem FATF gerði sneri að því að ekki þurfti að greina frá raun­veru­legum eig­endum félaga á Íslandi.

Brotalamir í eftirliti banka

Á Íslandi hefur verið hægt að kom­ast upp með það að fela eign­ar­hald félaga, með ýmsum leið­um. Ein sú algeng leið var fólgin í því að láta félög, t.d. eign­ar­halds­fé­lög eða rekstr­ar­fé­lög, vera í eigu erlendra félaga, sem voru síðan í eigu ann­arra erlendra félaga, sem voru í eigu sjóða í skatta­skjólum þar sem engar eða litlar kröfur voru gerðar um skrán­ingar og skil á gögn­um. Þannig hefur verið verið hægt að fela hver raun­veru­legur eig­andi félaga er.

Hér á landi hefur slíkt eft­ir­lit aðal­lega verið á hendi banka. Í kjöl­far þess að FATF gerði úttekt á Íslandi, og skil­aði þeirri nið­ur­stöðu vorið 2018 að eft­ir­lit Íslands með pen­inga­þvætti fengi fall­ein­kunn, þá hóf Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) að gera athug­anir á íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum og getu þeirra til að verj­ast pen­inga­þvætti.

Nið­ur­staðan, sem birt var helg­ina fyrir jólin 2019, var sú að Fjár­mála­eft­ir­litið gerði athuga­semdir við mat allra íslensku við­skipta­bank­anna á upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur fjár­muna eða félaga sem eru, eða hafa verið, í við­skiptum við þá. Í nið­ur­stöðum eft­ir­lits­ins á athugun eft­ir­lits­ins á pen­inga­þvætt­is­vörnum þeirra voru gerðar athuga­semdir við þeir hafi ekki metið upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur með sjálf­stæðum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár