Tveir landsréttardómarar sækja um embætti landsréttardómara

Þrír þeirra sem sækja um stöðu Lands­rétt­ar­dóm­ara eru á meðal þeirra fjög­urra sem Sigríður Á. Andersen fjar­lægði af lista sem hæf­is­nefnd hafði lagt fyrir. Tveir aðrir umsækj­endur eru á meðal þeirra fjög­urra sem Sigríður bætti á list­ann.

Ásmundur Helgason og Ragn­heiður Braga­dóttir, tveir þeirra fjög­urra lands­rétt­ar­dóm­ara sem hafa ekki fengið að dæma í málum frá því að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu var birt, eru á meðal umsækj­enda um emb­ætti lands­rétt­ar­dóm­ara sem aug­lýst var fyrir skemmstu.

Á meðal umsækj­enda eru einnig Ástráður Har­alds­son, Eiríkur Jónsson og Jón Hösk­ulds­son, þrír þeirra fjög­urra sem færðir voru af lista yfir dóm­ara sem skip­aðir voru í Lands­rétt á sínum tíma, en hæf­is­nefnd hafði metið á meðal 15 hæf­ustu.

Alls eru umsækj­end­urnir átta tals­ins. Hinir eru Friðrik Ólafsson vara­þing­maður, Guð­mundur Sig­urðs­son pró­fessor og Jónas Jóhanns­son lög­maður.

Ásmundur og Ragn­heiður eru á meðal þeirra fjög­urra dóm­ara við Lands­rétt sem hafa ekki fengið að taka þátt í dóm­störfum frá því að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í máli Guðmund­ar Andra Ást­ráðs­sonar gegn Íslandi frá 12. mars síð­ast­liðnum féll. Auk þeirra tveggja hafa Arn­fríður Ein­ars­dóttir og Jón Finn­björns­son ekki fengið að taka þátt í störfum rétt­ar­ins.

Í nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins kom fram að Ísland hefði brotið gegn 6. grein mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu sem fjallar um rétt til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir dómi í mál­inu. Ástæðan er sú að mað­urinn fékk ekki rétt­láta máls­með­ferð fyrir Lands­rétti vegna þess að Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, sem er dóm­ari við rétt­inn, hafi ekki verið skipuð í hann með lög­mætum hætt­i.

Ást­ráður og Eiríkur voru á meðal þeirra fjög­urra sem urðu af dóm­ara­sæti þegar Sig­ríður Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­­­­nefndar um skipun fimmtán dóm­­­­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað að til­­­­­­­nefna fjóra ein­stak­l­inga dóm­­­­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­­­­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­­­­ustu. Alþingi sam­­­­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Tveir umsækj­end­anna sem metnir höfðu verið á meðal fimmtán hæf­ustu af hæfn­is­nefnd­inni, Ást­ráður og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, stefndu rík­­­­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­ar. Hæst­i­­­­réttur komst að þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu í des­em­ber að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­­­­­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­­­nefnd­­­­ar­inn­­­­ar.

Þeir voru báðir starf­andi lög­­­­­­­­­menn og lögðu ekki fram nein gögn sem gátu sýnt fram á fjár­­­­­hagstjón vegna ákvörð­unar ráð­herra. Skorað var á þá fyrir dómi að leggja fram skatt­fram­­­­­töl og þar með upp­­­­­lýs­ingar um tekjur sínar þannig að unnt væri að taka afstöðu til þess hvort þeir hefðu beðið „fjár­­­­­tjón vegna þeirra ákvarð­ana dóms­­­­­mála­ráð­herra sem um ræðir í mál­in­u“. Hvor­ugur þeirra gerði slíkt og þess vegna var íslenska ríkið sýknað af við­­­­­ur­­­­­kenn­ing­­­­­ar­­­­­kröfu um fjár­­­­­tjón. Íslenska rík­­­­inu var hins vegar gert að greiða þeim miska­bæt­­­­ur.

Ást­ráður var síðar skip­aður dóm­ari við hér­aðs­dóm Reykja­vík­ur.

Tveir aðrir stefndu rík­inu

Tveir aðrir menn sem voru á lista dóm­­­­­nefndar yfir þá sem átti að skipa dóm­­­­­ara höfð­uðu ekki slík mál. Annar þeirra, Jón Hösk­­­­­ulds­­­­­son hér­­­­­aðs­­­­­dóm­­­­­ari, sendi hins vegar kröfu á íslenska ríkið eftir að dómur Hæsta­réttar lá fyrir þar sem hann krafði það um skaða- og miska­bætur vegna skip­unar í Lands­rétt. Þeirri kröfu var ekki svarað og í kjöl­farið höfð­aði Jón mál.

Jón krafð­ist þess að fá bætt mis­­­­­mun launa, líf­eyr­is­rétt­inda og ann­­­­­arra launa­tengdra rétt­inda dóm­­­­­ara við Lands­rétt ann­­­­­ars vegar og hér­­­­­aðs­­­­­dóm­­­­­ara hins veg­­­­­ar. Jón krafð­ist þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár. Lands­rétt­­­­­ar­­­­­dóm­­­­­arar fá 1,7 millj­­­­­ónir króna í laun á mán­uði en hér­­­­­aðs­­­­­dóm­­­­­arar 1,3 millj­­­­­ónir króna.

Eiríkur Jóns­son ákvað að fylgja í fót­­­spor Jóns snemma á síð­asta og stefndi rík­­­inu. Í lok októ­ber í fyrra komst hér­aðs­dómur að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið þyrfti að greiða Jóni og Eiríki bætur vegna ólög­mætra athafna Sig­ríðar Á. And­er­sen við skipan dóm­ara í Lands­rétt.

Hér­­aðs­­dómur Reykja­víkur dæmdi Jóni fjórar millj­­ónir króna í skaða­bæt­­ur, 1,1 milljón króna í miska­bætur auk þess sem ríkið greiddi 1,2 milljón króna máls­­kostnað hans.

Dóm­­ur­inn féllst á bóta­­skyldu rík­­is­ins gagn­vart Eiríki en hann þurfti að höfða skaða­­bóta­­mál til að inn­­heimta þá bóta­­skyldu. Ríkið greiddi 1,2 milljón króna máls­­kostnað hans.

Ríkið áfrýj­aði dómn­um.

Sig­ríður segir af sér

Lands­rétt­ar­málið hefur haft ýmsar aðrar afleið­ingar í för með sér. Í mars var dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða birt­ur. Bæði Sig­ríður Á. And­er­sen og Alþingi fengu á sig áfell­is­dóm fyrir það hvernig haldið var á skipan 15 dóm­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017. Sig­ríður fyrir að hafa brotið stjórn­sýslu­lög með því að breyta list­anum um til­nefnda dóm­ara frá þeim lista sem hæf­is­nefnd hafði skilað af sér, og fært fjóra dóm­ara af þeim lista en sett aðra fjóra inn á hann án þess að rann­saka og rök­styðja þá ákvörðun með nægj­an­legum hætti. Alþingi fyrir að hafa kosið um skipan dóm­ar­anna allra í einu, í stað þess að kjósa um hvern fyrir sig.

Nið­ur­staðan var skýr. Í dómnum var fall­ist á það dóm­­ar­­arnir fjórir sem bætt var á list­ann væru ólög­­lega skip­aðir og gætu þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, þar sem ólög­­lega skip­aðir dóm­­arar gætu ekki tryggt rétt­láta máls­­með­­­ferð. Ferlið sem beitt var við skipun dóm­­ar­anna við Lands­rétt hafi orðið „til þess að valda skaða á því trausti sem dóm­­stóll í lýð­ræð­is­­legu sam­­fé­lagi þarf að vekja hjá almenn­ingi og braut í bága við það grund­vall­­ar­at­riði að dóm­­stóll sé lög­­­leg­­ur, eina af meg­in­­reglum rétt­­ar­­rík­­is­ins.“

Þess­ari nið­ur­stöðu hefur verið vísað til efri deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort hún taki málið fyr­ir. Sig­ríður Á. And­er­sen sagði af sér sem dóms­mála­ráð­herra 13. mars 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár