Eru danskir stjórnmálamenn gungur?

Þessa fyrirsögn mátti sjá í einu dönsku dagblað­anna fyrr í vikunni. Tilefni hennar var sú ákvörðun danska menningar­mála­ráðherrans, Marianne Jelved, að aflýsa fyrir­huguðum fundi með Ai Weiwei einum þekktasta andófs­manni Kína. Danskir frétta­skýrendur segja stjórn­málamenn æ oftar setja viðskipta­hagsmuni ofar mann­réttindum í samskiptum sínum við stór­þjóðir og þessi ákvörðun ráðherrans sé nýjasta dæmið.

Í lok síðasta mánaðar hófst í Kína dönsk lista­hátíð sem stendur fram á mitt næsta ár. Þessi hátíð er sú lang umfangs­mesta sem Danir hafa staðið fyrir utan heima­landsins og þar verður í boði margt af því besta sem Danir hafa upp á að bjóða, á sviði tón- og mynd­listar, kvikmynda og sviðs­lista. Margir danskir listamenn hafa ásamt embættis­mönnum menningar­mála­ráðuneytisins um nokkurra ára skeið unnið að undir­búningi hátíðarinnar í samvinnu við kínverska embættis­menn. Það er þó ekki bara þessi lista­hátíð í Kína sem kínversk og dönsk stjórn­völd hafa tekið saman höndum um. Kínverska ríkið keypti nefnilega fyrir skömmu stórt hús á besta stað hér í Kaupmanna­höfn og þar verður innan nokkurra mánaða opnað kínverskt menningarhús.

Marianne Jelved, menningar­mála­ráðherra Danmerkur, ásamt kínverskum embættis­manni, við formlega opnun dönsku lista­hátíðarinnar í Kína.

Marianne Jelved, menningarmálaráðherra Danmerkur, ásamt kínverskum embættismanni, við formlega opnun dönsku listahátíðarinnar í Kína.
Marianne Jelved, menn­ing­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur, ásamt kín­verskum emb­ætt­is­manni, við form­lega opnun dönsku lista­há­tíð­ar­innar í Kína.

Þetta umrædda hús stendur skammt frá Löngubrú, hýsti áður Musikkonservatoriet, tónlistar­háskólann. Í næsta húsi er Ny Carlsberg Glyptotek, eitt þekktasta listasafn Danmerkur, Tívolí er svo þar við hliðina. Þetta nýja kínverska menningarhús er því enginn úthverfa­kofi (eins og einn þingmaður orðaði það) og þar ætla Kínverjar sér að reka öfluga menningar­starfsemi. Dönsk stjórn­völd lögðu blessun sína yfir þessar áætlanir og lýstu mikilli ánægju. Ekki munu fordæmi fyrir slíku kínversku menningar­húsi utan Kína. Kínverjar og Danir eru semsé í nánu samstarfi á menningar­sviðinu

Kínareisa Litlu hafmeyjunnar


Augljóst tákn þess hve mikla áherslu Danir leggja á sam­vinnu við Kínverja er þeir lán­uðu sjálfa Litlu haf­meyj­una á heims­sýn­ing­una í Shanghai árið 2010. Hún hafði setið á steini sínum við Löngu­línu frá því í ágúst 1913, og þrátt fyrir mörg hund­ruð beiðnir um að fá þessa þekkt­ustu mynda­styttu á Norð­ur­löndum „lán­aða“ á sýn­ingar, utan lands og innan hafði öllum slíkum beiðnum verið synjað. Þangað til Kín­verjar föl­uð­ust eftir henni. Eins og vænta mátti vakti styttan mikla athygli á sýn­ing­unni og dönsku ferða­mála­sam­tökin telja að sú athygli og umfjöllun kín­verskra fjöl­miðla eigi stóran þátt í því að kín­verkum ferða­mönnum í Danmörku hefur fjölgað mikið á síð­ustu fjórum árum. Séu Kín­verjar spurðir um Danmörku nefna þeir fyrst af öllu Litlu haf­meyj­una, svo H.C Andersen (sögur hans njóta mik­illa vin­sælda í Kína), í þriðja lagi danska hönnun og hús­gögn, þar á eftir nefna þeir vind­myllur og danska bjór­inn.

Hér má sjá þegar Litla hafmeyjan lagði af stað í langt ferðalag sitt til Kína.

"Kína er land danskra viðskiptatækifæra"


Þessi orð lét danskur ráð­herra falla í blaða­við­tali fyrir skömmu. Hann sagði að sú mikla land­kynn­ing og með­byr sem Danmörk hefði fengið í Kína væri járn sem Danir ættu sann­ar­lega að hamra meðan það væri heitt, eins og hann komst að orði. Ráð­herr­ann nefndi sér­stak­lega hús­búnað, mjólk­ur­vörur (sem Kín­verjar sækj­ast mjög eftir) og alls kyns tækni­búnað. Hann gat í þessu sam­bandi sér­stak­lega um Grundfos og Danfoss, tvö heims­þekkt dönsk fyr­ir­tæki sem sam­tals eru með nálægt fimm­tíu þús­und starfs­menn. Fyrir utan svo svína­kjötið og allt annað, bætti ráð­herr­ann við.

Allar dyr ekki lengur galopnar


Banda­ríska dag­blaðið The New York Times (NYT) fjall­aði fyrir skömmu ítar­lega um kín­versk efna­hags­mál og starf­semi erlendra fyr­ir­tækja í land­inu. Þar kemur fram að eftir að Kín­verjar fengu aðild að Alþjóða við­skipta­stofn­un­inni árið 2001 sótt­ust þeir ákaft eftir að fá erlend fyr­ir­tæki, einkum stór­fyr­ir­tæki til lands­ins. Þetta er að breyt­ast og nú standa ekki allar dyr lengur opnar, Kín­verjar gera aðrar og meiri kröfur til erlendra fyr­ir­tækja, farnir að velja vin­ina, eins og NYT orðar það. Þeir sem nú þegar eru góð­vinir Kínverja standa því mun betur að vígi segir blaða­maður NYT og þótt hann nefni engin nöfn fer ekki á milli mála að Danmörk er í góð­vina­hópnum.

Af hverju hætti ráðherrann við að hitta andófsmanninn?


Þessa spurn­ingu lögðu nokkrir danskir þing­menn fyrir Marianne Jelved. Var það vegna þess að ekki var pláss í dag­skránni eða var það kannski vegna þess að ráð­herr­ann vildi ekki styggja kín­verska ráða­menn sem eru ekki par hrifnir af Ai Weiwei?

Hér má sjá þegar Litla hafmeyjan lagði af stað í langt ferðalag sitt til Kína.
Hér má sjá þegar Litla haf­meyjan lagði af stað í langt ferða­lag sitt til Kína.

Marianne Jelved svaraði því til að þegar hún var komin til Kína og hitti þar ýmsa af æðstu ráða­mönnum landsins hefði runnið upp fyrir sér að kannski væri réttast af sér að sleppa því að hitta Ai Weiwei. Hún hefði hinsvegar rætt mann­réttindamál við kínverska ráðamenn og hitt ýmsa andófs­menn aðra. Þetta er, segja sumir danskir fjöl­miðlar, ekkert annað en undirlægju­háttur og ótti við kínversk stjórn­völd.

Síður en svo eina dæmið


Þótt hér hafi aðeins verið fjallað um sam­skipti danskra ráða­manna við Kínverja væri hægt að nefna mörg hlið­stæð mál. Fyrir nokkru var greint frá því í fjöl­miðlum að Tyrkir hefðu sleppt úr haldi manni sem talið var að hefði, í febr­úar í fyrra, reynt að skjóta danska rit­höf­und­inn Lars Hedegaard. Til­ræði­mað­ur­inn var hand­tek­inn í Istanbúl í apríl síð­ast­liðnum. Þegar það frétt­ist hingað til Dan­merkur að mann­inum hefði verið sleppt varð uppi fótur og fit, sumir þing­menn heimt­uðu að stjórn­mála­sam­bandi við Tyrki yrði slitið, farið yrði fram á refsi­að­gerðir af hálfu ESB og fleira var nefnt. Ekkert gerð­ist þó og fyrir nokkrum dögum lýsti utan­rík­is­ráð­herr­ann því yfir að góð sam­skipti við Tyrki væru mik­il­væg­ari en svo að þeim yrði stefnt í hættu út af einum manni sem sleppt hefði verið úr fang­elsi.

Lars Hedegaard.

Gunguháttur eða skynsemi?


Dag­blaðið sem varp­aði fram spurn­ing­unni sem er yfir­skrift þessa pistils bar hana undir nokkra danska stjórn­mála­menn og framá­menn í við­skipta­líf­inu. Enginn þeirra vildi taka svo djúpt í árinni að tala um gungu­hátt. Flestir sögðu sem svo að danskir stjórn­mála­menn yrðu að hafa hags­muni þess­arar smá­þjóðar að leið­ar­ljósi og stíga var­lega til jarðar hverju sinni. Það þýddi hins­vegar ekki að menn yrðu að beygja sig í duftið.

Lars Hedegaard.
Lars Hedegaard.

„Línudans er list” sagði einn sem við var rætt og bætti við „ef maður heldur ekki jafn­væginu dettur maður af kaðlinum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár