Þessi verða ráðherrar

Willum Þór Þórsson og Jón Gunnarsson verða ráðherrar í nýrri ríkis­stjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðis­flokks og Fram­sóknar sem kynnt er í dag. Guðrún Hafsteins­dóttir er sögð koma inn sem ráðherra dómsmála síðar á kjör­tímabilinu.

Ríkisstjórnin stokkast upp í dag, eftir rúmlega tveggja mánaða viðræður þriggja flokka um áframhaldandi samstarf.
Rík­is­stjórnin stokk­ast upp í dag, eftir rúm­lega tveggja mán­aða við­ræður þriggja flokka um áfram­hald­andi sam­starf. Mynd: Bára Huld Beck

Töluverð uppstokkun er í stjórnar­ráðinu samfara myndun nýrrar ríkis­stjórnar Sjálfstæðis­flokks, Vinstri grænna og Fram­sóknar. Ráðherrar flokkanna voru kynntir á þing­flokks­fundum í morgun.

Tveir nýir ráðherrar koma inn í ríkis­stjórnina. Willum Þór Þórsson verður heilbrigðis­mála­ráðherra fyrir hönd Framsóknar­flokksins og Jón Gunnarsson verður dómsmála­ráðherra Sjálfstæðis­flokksins. Guðrún Hafsteins­dóttir mun þó taka við því embætti er kjör­tímabilið verður hálfnað, að sögn RÚV.

Birgir Ármannsson verður nýr forseti Alþingis.

Fjöl­miðlar hafa annars í morgun greint frá ráðherra­skipan í öðru ráðuneyti Katrínar Jakobs­dóttur, eins og formenn stjórnar­flokkanna lýsa þeim.

Svona er ráðherralistinn:

  • Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra.
  • Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, innviða­ráðherra
  • Svandís Svavars­dóttir, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra
  • Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, utanríkis- og þróunar­samvinnu­ráðherra
  • Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningar­mála­ráðherra
  • Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamála­ráðherra
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags­mála- og vinnu­markaðs­ráðherra
  • Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra
  • Jón Gunnarsson, innan­ríkis­ráðherra (Guðrún Hafsteins­dóttir tekur svo við af honum).
  • Willum Þór Þórsson, heilbrigðis­ráðherra
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár