Vinstri græn fá sjávarútvegsmálin og Framsókn sest í heilbrigðisráðuneytið

Miklar breyt­ingar verða gerðar á stjórn­ar­ráði Íslands, ný ráðu­neyti verða til og mála­flokkar færðir. Ráð­herr­arnir verða tólf og sá sem bæt­ist við fellur Fram­sókn­ar­flokknum í skaut. Vinstri græn stýra sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­málum.

Mikil breyt­ing verður á stjórn­ar­ráð­inu með myndun nýrrar rík­is­stjórnar. Ráð­herrum mun fjölga og verða tólf og fjöl­mörg ráðu­neyti verða í raun brotin upp þar sem mála­flokkar flytj­ast á milli. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er upp­stokk­unin svo víð­feðm að sum ráðu­neytin eru ekki einu sinni komin með nafn.

En í meg­in­at­riðum verður skipt­ingin þannig að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur fimm ráðu­neytum. Hann mun halda á fjár­mála­ráðu­neyt­inu, utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og dóms­málum, sem verða í nýju inn­an­rík­is­ráðu­neyti, og fara fyrir tveimur nýjum ráðu­neytum til við­bótar.

Annað þeirra mun fara með lofts­lags- og orku­mál og hitt verður með háskóla, iðnað og nýsköpun, en núver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti verður brotið upp í nokkra hluta og mála­flokkum þess dreift.

Framsókn bætir við sig

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig einu ráðu­neyti og fær fjögur. Þar á meðal er inn­við­a­ráðu­neyti sem fær mála­flokka úr öðrum ráðu­neytum, t.d. skipu­lags­mál, en verður byggt á grunni sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins. Stóru frétt­irnar eru að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mun stýra heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu á næsta kjör­tíma­bili og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans hefur verið ákveðið að skipa sér­staka stjórn yfir Lands­spít­al­ann. Þá mun Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stýra ráðu­neyti grunn­skóla og íþrótta og sam­eig­in­legt ferða­þjón­ustu-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti.

[adspot]For­sæt­is­ráð­herra verður Katrín Jak­obs­dóttir og auk þess fær flokk­ur­inn mála­flokka sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­mála til sín í nýtt mat­væla­ráðu­neyti. Félags­mála­ráðu­neytið verður undir stjórn þess flokks og hluti inn­flytj­enda­mála flytj­ast úr dóms­mála­ráðu­neyt­inu þangað.

Ráðherrakapallinn eftir

Ekki hefur verið greint frá því hverjir verða ráð­herrar en búist er við að auk Katrínar muni Svandís Svav­ars­dóttir og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son áfram gegna ráð­herra­emb­ætti fyrir Vinstri græn.

Hjá Sjálf­stæð­is­flokknum þykir ein­boðið að Bjarni Bene­dikts­son, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son verði ráð­herrar. Lík­leg­ast þykir að fimmti ráð­herra­stóll­inn fari til Guðrúnar Haf­steins­dóttur, odd­vita í Suð­ur­kjör­dæmi, en ráð­herrakap­all­inn verður ekki kynntur fyrr en á þing­flokks­fundum í fyrra­málið.

Hjá Fram­sókn­ar­flokki verða Sigurður Ingi Jóhanns­son, Lilja Alfreðs­dóttir og Ásmundur Einar Daðason áfram ráð­herrar og senni­leg­ast bæt­ist Willum Þór Þórsson í hóp­inn.

Sáttmáli kynntur á morgun

Stjórn­ar­sátt­mál­inn verður kynntur á morgun ef flokks­stofn­anir sam­þykkja stjórn­ar­sátt­mál­ann í dag. Þing­flokkar munu síðan funda á morgun og þar verður ráð­herra­skipan kunn­gjörð.

Ein­hverjar laga­breyt­ingar mun þurfa til að breyta ráðu­neytum og þing þarf að sam­þykkja þær. Svo er hægt að ráð­ast í aðrar breyt­ingar með úrskurði for­seta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár