Vilja að refsingar vegna ærumeiðinga verði afnumdar

Verði nýtt frum­varp að lögum verða refs­ingar vegna æru­meið­inga afnumdar. Auk þess verður ómerk­ing ummæla, sem úrræði vegna æru­meið­inga, afnumin, sem og núgild­andi heim­ild til þess að dæma fjár­hæð til þess að stand­ast kostnað af birt­ingu dóms.

Nýtt frum­varp liggur nú fyrir þar sem lagt er til að sett verði ný stofn­lög um æru­meið­ingar þar sem mælt verði fyrir um einka­rétt­ar­leg úrræði til að bregð­ast við æru­meið­ingum og sam­hliða verði ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um æru­meið­ingar felld úr gildi.

Frum­varpið er komið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en umsagn­ar­frestur er til 12. nóv­em­ber næst­kom­andi. 

Verði frum­varpið að lögum verða refs­ingar vegna æru­meið­inga afnumdar. Auk þess verður ómerk­ing ummæla, sem úrræði vegna æru­meið­inga, afnumin, sem og núgild­andi heim­ild til þess að dæma fjár­hæð til þess að stand­ast kostnað af birt­ingu dóms. Þá verður felld úr gildi hin sér­staka vernd sem opin­berir starfs­menn hafa notið og einnig hin sér­staka æru­vernd sem erlend ríki, fáni þeirra, þjóð­höfð­ingi o.fl. hafa notið.

Fimm frum­vörpum til laga um umbætur á lög­gjöf á sviði tján­ingar-, fjöl­miðla- og upp­lýs­inga­frelsis hefur verið skilað til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra en sér­stök nefnd sem vann að mál­unum kynnti afrakstur vinnu sinnar í fyrri áfanga nefnd­ar­starfs­ins á blaða­manna­fundi í gær í Þjóð­minja­safn­inu.

Tvenns konar úrræði: Miskabætur og bætur fyrir fjártjón

Gert er ráð fyrir tvenns konar úrræðum í frum­varp­inu, miska­bótum og bótum fyrir fjár­tjón. Þannig heim­ila lögin að láta þann sem með sak­næmum og ólög­mætum hætti meiðir æru ein­stak­lings með tján­ingu greiða miska­bætur til þess sem mis­gert er við. Með sömu skil­yrðum skal dæma bætur fyrir fjár­tjón ef því er að skipta.

Við beit­ingu fram­an­greindra úrræða skal sam­kvæmt frum­varp­inu meðal ann­ars höfð hlið­sjón af sök, efni tján­ingar og aðstæðum að öðru leyti. Þá eru taldar upp nánar til­teknar aðstæður sem gera það að verkum að ekki kemur til bóta­á­byrgðar þegar þær eru fyrir hendi. Meðal þess­ara aðstæðna er ef sýnt hefur verið fram á að ummæli séu sann­leik­anum sam­kvæm, eða ef um er að ræða gild­is­dóm sem settur er fram í góðri trú og hefur ein­hverja stoð í stað­reyndum.

Áfram ákvæði um hatursorðræðu

Ekki er lögð til breyt­ing á þeim ákvæðum hegn­ing­ar­laga sem stundum hafa verið kennd við frið­helgi einka­lífs í þrengri merk­ingu. Þá er gert ráð fyrir að áfram verði ákvæði um hat­urs­orð­ræðu. Ekki er heldur í frum­varp­inu lögð til nein breyt­ing á reglum um það hver beri hina laga­legu ábyrgð á ummælum hverju sinni. Mun það því áfram ráð­ast af lögum um fjöl­miðla og öðrum almennum reglum.

Þá er ekki lögð til breyt­ing á b-lið 1. mgr. 26. gr. skaða­bóta­laga, sem heim­ilar meðal ann­ars miska­bætur vegna ólög­mætrar mein­gerðar gegn æru. Það ákvæði hefur víð­tækara gild­is­svið og getur tekið til æru­meið­inga sem ekki fel­ast í tján­ingu, til dæmis þegar starfs­manni er vikið úr starfi, auk þess sem umræddur b-liður er algeng­asta bóta­heim­ildin í kyn­ferð­is­brota­málum.

Verði frum­varpið að lögum er því gert ráð fyrir að það eigi við þegar æru­meið­ing felst í tján­ingu, einkum í formi ummæla og að sú vernd sem felist í frum­varp­inu komi í þeim til­vikum í stað þeirrar verndar sem hingað til hefur falist í b-lið 1. mgr. 26. gr. skaða­bóta­laga að því leyti. Ákvæði b-liðar 1. mgr. 26 gr. skaða­bóta­laga eigi hins vegar við varð­andi ann­ars konar mein­gerðir en þær sem fel­ast í tján­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár