Rakel hættir sem fréttastjóri um áramót

Rakel Þorbergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV, mun láta af störfum um áramót. Starfs­mönnum frétta­stofunnar var tilkynnt um þetta í morgun.

Hættir
Hættir Rakel hefur leitt frétta­stofu RÚV und­an­farin ár en sjálf hefur hún unnið á frétta­stofu stofn­un­ar­innar í meira en tvo ára­tugi. Mynd: RÚV

Rakel Þorbergs­dóttir hefur sagt upp störfum sem frétta­stjóri Ríkis­útvarpsins. Hún hefur gegnt starfinu síðan 2014 en áður starfaði hún sem frétta­maður hjá stofnuninni. Starfs­mönnum var tilkynnt þetta í morgun og var tilkynning send fjöl­miðlum nú fyrir skömmu. 

Heiðar Örn Sigurfinnsson vara­frétta­stjóri mun gegna starfi Rakelar frá áramótum en það verður auglýst laust til umsóknar á næsta ári. 

Í tilkynningu frá RÚV er haft eftir Rakel að árin á RÚV hafi verið lærdómsrík, krefjandi og skemmtileg. „Ákvörðun mín var því ekki auðveld, frétta­stofan er frábær vinnu­staður en það er öllum hollt að breyta til og takast á við nýjar áskoranir,“ segir hún í tilkynningunni.

„Allar mælingar staðfesta að frétta­stofa RÚV er sá miðill sem þjóðin reiðir sig á, treystir og leitar til, sérstak­lega þegar mikið liggur við. Ég er gríðar­lega stolt af frammistöðu okkar fólks og það hefur verið heiður að fá að stýra þessari öflugu og rótgrónu frétta­stofu síðustu ár. Ég kveð með söknuði og hlýju í garð minna góðu félaga á RÚV.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Almáttugur. Hún er svo ákveðin og réttsýn og lætur engan vaða yfir sig. Nú munu Sjálfstæðismenn eyðileggja endanlega RUV frettastofu. Hefur einhver þrýstingur verið á Rakel bak við tjöldin?
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Er Bogi Ágústsson ekki líka að hætta á næsta ári ?

    Fróðlegt verður að sjá hverja sjálfstæðisflokkurinn velur í störfin ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár