Bandarískur framtakssjóður á nú meirihluta í Creditinfo

Reynir Grét­ars­son, stofn­andi Creditinfo Group, er ekki lengur meiri­hluta­eig­andi félags­ins, heldur banda­ríski fram­taks­sjóð­ur­inn Levine Leichtman Capital Partners.

Paul Randall, nýr forstjóri Creditinfo Group
Paul Randall, nýr for­stjóri Creditinfo Group Mynd: Aðsend

Fram­taks­sjóð­ur­inn Levine Leichtman Capital Partners LLC hefur keypt meiri­hluta hluta­fjár í Creditinfo Group, móð­ur­fé­lags Creditinfo á Íslandi og hefur félagið fengið nýjan for­stjóra. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem barst fjöl­miðlum fyrr í dag.

Levine Leichtman er banda­rískur sjóður sem ein­beitir sér að fyr­ir­tækjum í mið­mark­aðs­stærð. Sjóð­ur­inn var stofn­aður fyrir 37 árum síðan og starfar bæði vest­an­hafs og í Evrópu. Eignir í stýr­ingu sjóðs­ins nema nú um 7,8 millj­örðum Banda­ríkja­dala, sem jafn­gildir tæpri billjón króna.

Nýr forstjóri

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu Creditinfo mun sjóð­ur­inn styðja við áfram­hald­andi vöxt og starf­semi félags­ins á alþjóða­vett­vangi. Paul Randall, sem hóf störf hjá Creditinfo árið 2007, er nýráð­inn for­stjóri Creditinfo Group og kemur til með að vinna náið með Reyni Grét­ars­syni, stofn­anda félags­ins, sem heldur sæti í stjórn þess og er annar stærsti hlut­haf­inn.

Creditinfo rekur núna yfir 30 útibú um heim allan, en sér­hæfir sig í miðlun fjár­hags- og við­skipta­upp­lýs­inga, auk ráð­gjafar tengdri áhættu­mati og áhættu­stýr­ingu fyr­ir­tækja. Fyr­ir­tækið seg­ist hafa boðið gögn, áhættu­stýr­ingu og lausnir á sviði útlána til nokk­urra stærstu lán­veit­enda, rík­is­stjórna og seðla­banka heims ára­tugum saman og þannig stuðlað að ábyrgri þátt­töku á fjár­mála­mörk­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár