Danir leita í örvæntingu að þjóðarréttinum sínum

Hver skyldi vera þjóðar­réttur Dana? Er það rauð pylsa eða kjöt­bollur? Gæti það verið purusteik eða kannski medisterpysla? Þótt allur þessi matur sé í margra augum „peru­danskur“ er enginn þeirra á meðal þeirra átta sem Danir velja nú sem þjóðar­rétt.

Á allra síðustu árum hefur mikið verið rætt um „hið norræna eldhús“ eins og það er kallað. Ekki eru það háglans­andi skápa­hurðir eða hæglokandi hljóð­lausar skúffur sem þarna er átt við þótt orðalagið gefi það ef til vill til til kynna, heldur maturinn sjálfur. Þegar svo er spurt hvað sé átt við með „hinu norræna eldhúsi“ svara sérfræðingar því til að þá séu menn að meina mat sem til verður eða aflað er á heima­slóðum en ekki fluttur yfir hálfan hnöttinn, einfaldur matur og einföld tilgerðar­laus matreiðsla. Þekktasti veitinga­staðurinn í „hinu norræna eldhúsi“ NOMA getur þó engan veginn flokkast undir þennan einfald­leika og tilgerðar­lausa matreiðslu, að ekki sé nú minnst á verðið á veitingunum, sem tæpast telst við alþýðu­hæfi.

„Ráð­herr­ann lýsti því yfir fyrir nokkru að ekki nái nokk­urri átt að Danir skuli ekki eiga einn sann­kall­aðan þjóð­ar­rétt. Danir séu miklir mat­menn, tali mikið um mat, borði mikið og dreymi jafn­vel um mat (að sagt er), en þegar spurt er um þjóð­ar­rétt­inn klóra þeir sér í koll­inum og líta hver á annan.“

Hér í Danmörku brosa margir að þessu tali um norrænan mat en allir geta líklega verið sammála um að æskilegt sé að nýta sem mest og best það sem fæst á heima­slóðum. Umræðan um allan þann mat sem endar í rusla­tunnunum hefur um nokkurt skeið verið mjög áberandi hér og matvæla­ráðherrann Dan Jörgensen hefur látið þau mál mjög til sín taka. Hann hefur líka reynt að koma af stað umræðum um hversu mikilvægt það sé að varðveita þjóðlegar matar­hefðir. Ráðherrann lýsti því yfir fyrir nokkru að ekki nái nokkurri átt að Danir skuli ekki eiga einn sann­kallaðan þjóðar­rétt. Danir séu miklir matmenn, tali mikið um mat, borði mikið og dreymi jafnvel um mat (að sagt er), en þegar spurt er um þjóðar­réttinn klóra þeir sér í kollinum og líta hver á annan. „Þessu breytum við!“ sagði ráðherrann.

Dan Jörgensen, matvæla­ráðherra Dana, á góðri stundu.

Matarkosningin mikla


Mat­væla­ráð­herr­ann lét ekki sitja við orðin tóm. Að frum­kvæði hans var settur saman listi með 24 þekktum dönskum réttum og svo gafst almenn­ingi kostur á að velja „sinn“ rétt. Landinu var skipt upp í átta svæði og skyldi sá réttur sem flest atkvæði fengi á hverju svæði kom­ast í úrslit. Tugir þús­unda tóku þátt í þess­ari kosn­ingu og rétt­irnir átta sem end­an­lega verður valið á milli eru þessir:

Dan Jörgensen, matvælaráðherra Dana, á góðri stundu.
Dan Jörg­en­sen, mat­væla­ráð­herra Dana, á góðri stundu.

Karbonaði (Krebenettur) með kartöflumús.

Brændende kærlighed (smábrytjað beikon steikt á pönnu með lauk) ásamt kartöflumús og sultuðum rauðrófum, berjum eða sveppum.

Smurt brauð (Smörrebröd) samsett að eigin vali hvers og eins.

Steikt flesk (þykkar beikon­sneiðar) steikt á pönnu, með steinselju­sósu og soðnum kartöflum.

Eplaflesk (beikon skorið í allstóra teninga) ásamt léttsteiktum epla­sneiðum og rauðlauk. Borið fram á volgu rúgbrauði.

Steikt svína­kóteletta, ásamt hvítkálsmús (stuvet) og vorlauk.

Hakkabuff (úr nauta­kjöti) með soðnum kartöflum, gulrótum og/eða rauðrófum og mjúk­steiktum lauk og spældu eggi

Steikt síld með kartöflumús, harðsoðnu brytjuðu eggi, hrárri eggjar­auðu, asíu­sneiðum og ristuðu rúgbrauði, skornu í bita.

Hvorki kjötbollur né purusteik


Á list­anum eru hvorki kjöt­bollur né pur­u­steik sem margir höfðu búist við að kæmust í úrslitin. Ekki heldur steikt rauð­spretta sem er vin­sæll réttur. Þótt spag­hetti með kjöt­sósu sé einn vin­sæl­asti hvers­dags­matur Dana bjugg­ust fæstir við að sá réttur kæm­ist á list­ann. Þekktur mat­reiðslu­maður lét hafa eftir sér að það yrði nú saga til næsta bæjar ef Danir veldu slíkt „gums“ sem þjóð­ar­rétt. Sá ótti reynd­ist sem­sagt ástæðu­laus. Danir eru ekki miklar fiskætur og þess vegna kemur það ekki sér­stak­lega á óvart að steikt síld skuli vera eini fisk­rétt­ur­inn sem kemst á blað. Það voru reyndar íbúar Borg­und­ar­hólms sem völdu síld­ina.

Flestir veðja á steikt flesk


Þessa dag­ana eru Danir að kjósa þjóð­ar­rétt­inn. Kosið er á net­inu og allir geta kosið, hver ein­stak­lingur þó aðeins einu sinni. Síðasti dagur atkvæða­greiðsl­unnar verður 16. nóv­em­ber.

Samkvæmt mjög óformlegum könnunum fjölmiðla hallast flestir að því að steikt flesk með steinselju­sósu verði fyrir valinu. Hakk­buffið hafa líka margir nefnt og einnig epla­fleskið. Þann 20. nóvember verða svo úrslitin tilkynnt.

Fastlega má búast við að „þjóðar­rétturinn“ verði áberandi á matseðlum danskra veitinga­staða á næstunni og víst má telja að mikið verði um valið fjallað í fjöl­miðlum og skoðanir örugglega skiptar. Ýmsir hafa gert góðlátlegt grín að öllu þessu „þjóðar­réttar­tilstandi“ eins og það er gjarnan kallað en þótt engar tölur hafi verið birtar um „kjör­sóknina“ enn sem komið er. Virtur blaða­maður á einu stóru blaðanna hér í Danmörku sagði í sjónvarps­viðtali að þessar kosningar væru alveg dæmi­gerðar fyrir Dani, „engri annarri þjóð hefði dottið slíkt og þvílíkt í hug.“ Bætti svo við: „verður það ekki þjóðar­drykkurinn næst?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár