Reyndur íslenskur blaðamaður um virka í athugasemdum: „Svolítið ógnvekjandi“

Fjölmiðla­fræðingurinn Birgir Guðmundsson kemst að þeirri niður­stöðu í fræði­grein um íslenska blaðamenn að þeir sjálfs­ritskoði sig til að fjalla síður um eigendur fjöl­miðlanna og að þeir láti stýrast af „stemmn­ing­unni“ í samfélaginu. Birgir fullyrðir að blaðamenn hafi látið vera að skrifa um meintan glæpa­feril Tony Omos.

Dósent í fjölmiðlafræði
Dósent í fjöl­miðla­fræði Birgir Guð­munds­son var um ára­bil frétta­stjóri á Tímanum.

Í nýrri fræði­grein fjölmiðla­fræðingsins Birgis Guðmunds­sonar kemur fram að skugga­ritstjórar hafi áhrif á störf fjölmiðla­manna og að þeir telji jafnvel athugasemda­kerfi fjöl­miðlanna vera „ógnvekjandi“. 

Þá kemur fram að upplifun blaða­manna, sem störfuðu á fjöl­miðlum í eigu stór­fyrirtækja eða annarra umsvifa­mikilla aðila, var sú að þeir settu viðkvæm mál tengd eigendunum „neðst í bunkann“.

Við gerð fræði­greinarinnar, sem nefnist Sjálfs­ritskoðun íslenskra blaða­manna, ræddi Birgir, sem er fyrr­verandi frétta­stjóri Tímans og dósent í fjölmiðla­fræði við Háskólann á Akureyri, við sex blaðamenn og spurði þá um sjálfs­ritskoðun og hvaða áhrif hún hefur á störf þeirra. Í greininni færir Birgir rök fyrir að menn svo sem Hall­grímur Helgason og Egill Helgason virki eins og nokkurs konar „skugga­ritstjórar“ á íslenska blaðamenn. Hann segir sömuleiðis að tíðarandi á samfélags­miðlum auki sjálfs­ritskoðun blaða­manna. Greinina má lesa í heild sinni hér.

Í greininni kemur fram að viðmælendurnir hafi verið fjórir karlar og tvær konur sem öll áttu það sameiginlegt að hafa starfað lengur en átta ár við blaða­mennsku og „hafa á undan­förnum árum vakið athygli í umræðu á faglegum vettvangi blaðamanna­stéttarinnar fyrir þá vinnu sem þeir hafa unnið.“

„Þeir veltu fyrir sér hvort það væru aðrar hliðar á málinu til að skoða, til dæmis glæpa­feril flótta­mannsins, en það var gegn ráðandi sjónar­miðum í umræðunni um málið.“

Segir blaðamennina hafa viljað skrifa um meinta glæpi Tony Omos

Í viðtali við Grapevine á dögunum skýrði Birgir meinta sjálfs­ritskoðun vegna tíðaranda með því að vitna í lekamálið. „Til að mynda í leka­málinu þegar innan­ríkis­ráðherra sagði af sér urðu fjöl­miðlar mjög djúpt sokknir í málið, DV sérstak­lega, sem fékk verðlaun fyrir það. Margir blaðamenn höfðu efasemdir um málið. Þeir veltu fyrir sér hvort það væru aðrar hliðar á málinu til að skoða, til dæmis glæpa­feril flótta­mannsins, en það var gegn ráðandi sjónar­miðum í umræðunni um málið. Margir vildu varpa fram spurningum sem voru eðlilegar, en umdeildar, og þeir viðurkenndu að hafa látið það vera,“ segir Birgir í viðtali við Grapevine.

Birgir ræðir um glæpa­feril Tony Omos sem nokkurs konar staðreynd án þess að skýra það nánar. Tekið skal fram að málið raunar snerist um rógburð um meint afbrot Tony Omos. Ýmsir fjöl­miðlar svo sem DV og RÚV öfluðu upplýsinga um réttar­stöðu Tony Omos svo full­yrðing Birgis um að fjöl­miðlar hafi látið vera að kanna þann anga málsins vegna þess hve umdeilt það væri stenst ekki skoðun.

„En maður fann fyrir þessari hönd, ósýnilegu hönd og eigendur fyrir­tækisins voru beinlínis tengdir þessum fyrir­tækjum.“

Fréttir um eigendur „neðst í bunkann“

Birgir fjallar um sjálfs­ritskoðun blaða­manna vegna eigenda viðkomandi fjöl­miðils og lýsa viðmælendur hans hvaða áhrif eigenda­tengsl geti haft á störf sín. „En maður fann fyrir þessari hönd, ósýnilegu hönd og eigendur fyrir­tækisins voru beinlínis tengdir þessum fyrir­tækjum,“ segir blaða­maður sem starfaði á blaði fyrir tveimur áratugum sem var í eigu aðila sem áttu „áberandi stór­fyrirtæki“.

Annar blaða­maður sem Birgir ræddi við lýsti því svo að ef hann lenti á mögulegu frétta­máli sem tengdist eigendum, þá fór það „neðst í bunkann“. „Þú rambar á eitthvað sem tengist eigendunum óbeint og þá kannski hugsarðu: já ókei þetta gæti kannski komið einhverju illa hérna. Kannski ég setji þetta neðst í bunkann og bíði aðeins og sjái hvort þetta skiptir í raun svo miklu máli,“ segir viðmælandi Birgis.

Þriðji blaða­maðurinn segist vera ánægður með að skrifa ekki viðskipta­fréttir út af þessum áhrifum: „Já ef ég væri að skrifa viðskipta­fréttir þá myndi ég eiga mjög slæma daga held ég ... Ég er ekki að skrifa slíkar fréttir, en ef ég væri að því þá held ég að ég myndi eiga erfiða daga inni á mörgum ritstjórnum.“

„Því maður er kannski taggaður við einhverja frétt og svo er hraunað yfir mann.“

Vildi „þóknast stemmingunni“

Birgir fjallar um áhrif samfélags­miðla á frétta­skrif blaða­manna. Einn viðmælenda gefur í skyn að hann forðist erfið mál til að „þóknast stemmingunni“. „Ja, það er klapp á bakið. Þú færð lof fyrir að fletta ofan af einhverju og þú heldur áfram, en ef það reynast svo einhverjar skugga­hliðar á málinu þá er mjög freistandi að skilja þær eftir og halda bara áfram. Þetta truflar mig!“ hefur Birgir eftir viðmælenda.

Annar viðmælanda segir þann hóp sem hann telur hafa áhrif á samfélags­miðlum og kommenta­kerfum vera „svolítið ógnvekjandi“. Sami viðmælanda kvartar yfir því vera vera „taggaður“ á Facebook: „Þetta hefur aukist mikið……. Og það eru þá fyrst og fremst samfélags­miðlarnir, maður fær svo ofboðs­lega mikil viðbrögð í gegnum þessar gáttir… og svo er erfitt að aðgreina sig sem blaðamann og persónu. Því maður er kannski taggaður við einhverja frétt og svo er hraunað yfir mann og það birtist bara á veggnum hjá manni við hliðina á fjölskyldu­myndunum.“

Sannfæring víki fyrir sjónarmiðum „úti í bæ“

Í umræðu­hluta fræði­greinarinnar lýsir Birgir því hvaða áhrif hann telur að „skugga­ritstjórar“ og „rétt­hugsun“ hefur á íslenska blaðamenn. „Hins vegar er mjög athyglis­vert hvernig samfélags­umræðan birtist sem meginþema rann­sóknarinnar. Í ljósi þessara viðtala er hún í raun hinn nýi skugga­ritstjóri hefð­bundinna fjölmiðla á Íslandi. Slíkt hlýtur að teljast bæði jákvætt og neikvætt fyrir faglega blaða­mennsku. Það er vissulega jákvætt að sjónarmið lesenda og fjölmiðla­neytenda hafi mikil áhrif á fréttamat og frétta­flutning og þannig má gera ráð fyrir að fjöl­miðlarnir séu að þjóna hagsmunum almennings. Hins vegar kemur líka fram að þessi áhrif umræðunnar kalla ekki endilega fram það sem almenningur þarf að vita til að vera vel upplýstur.

Í raun er þetta frekar viðbrögð við því annars vegar hvernig áhrifa­fólk og tiltekin „rétt­hugsun“ í samfélaginu nær að stjórna umræðunni og hins vegar því sem blaðamenn telja að fólk vilji heyra eða vita. Þannig mætti til dæmis segja að fólk þurfi að hafa upplýsingar um efnahags­stjórnun stjórn­valda til að geta tekið upplýstar lýðræðislegar ákvarðanir í kosningum, en að það hafi ekki endilega mikinn áhuga á slíkum upplýsingum. Hins vegar geti það haft ómældan áhuga á ástarlífi fræga fólksins, þótt slík vitneskja gagnist ekki við mat á lýðræðis­legum valkostum. Í þeim skilningi eru blaðamenn í raun að láta faglega sannfæringu víkja fyrir vinsældum og þrýstingi tiltekinna sjónar­miða „úti í bæ“,“ skrifar Birgir. Hann telur að niður­staðan af þessari þróun sé aukin hætta af sjálfs­ritskoðun og götu­blaða­væðingu (e. tabloidization). 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár