Stefán Einar hættir sem fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu – Gísli Freyr tekur við

Breytingar hafa orðið á stjórnenda­teymi Morgun­blaðsins. Stefán Einar Stef­ánsson víkur af viðskipta­deild blaðsins og einbeitir sér að þátta­stjórnun og utan­aðkomandi verkefnum. Gísli Freyr Valdórsson snýr aftur í blaða­mennsku.

Stefán Einar Stefánsson og Gísli Freyr Valdórsson.
Stefán Einar Stef­áns­son og Gísli Freyr Val­dórs­son. Mynd: Samsett

Stefán Einar Stef­ánsson, sem hefur verið frétta­stjóri viðskipta­deildar á Morgun­blaðinu frá því í september 2018, hefur látið af því starfi. Þess í stað mun hann sinna verkefnum utan fjölmiðla og halda áfram þátta­stjórnun í vefþáttunum Dagmálum á mbl.is. Stefán Einar hefur undan­farin ár flutt inn kampavín auk þess sem hann á hlut í bóka­útgáfu ásamt eiginkonu sinni og vina­hjónunum Rakel Lúðvíks­dóttur og Gísla Frey Valdórs­syni.

Á vef mbl.is í dag kemur fram að Gísli Freyr taki við sem nýr frétta­stjóri viðskipta­deildar á Morgun­blaðinu og að hann hefji störf í dag. Gísli Freyr hefur áður starfað sem blaða­maður á Viðskipta­blaðinu um tíma en hætti til að gerast aðstoðar­maður Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur þegar hún varð innan­ríkis­ráðherra 2013. Gísli Freyr hætti endanlega í því starfi í nóvember 2014 eftir að hafa játað að hafa lekið trún­að­ar­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­anda úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu til fjöl­miðla ári áður. Fyrir það fékk Gísli Freyr átta mánaða skilorðs­bundinn dóm.

Frá 2017 hefur hann starfað hjá KOM almanna­tengslum sem ráðgjafi, verið ritstjóri tíma­ritsins Þjóðmála og haft umsjón með hlaðvarps­þætti samnefndum tíma­ritinu. Gísli Freyr tók við ritstjórn Þjóðmála árið 2017 þegar fyrr­verandi ritstjóri þess, Óli Björn Kárason, settist á þing fyrir Sjálfstæðis­flokkinn.

Í frétt mbl.is segir að fram að kosn­ing­um verði Dag­mál með „um­fangs­mikla um­fjöll­un um fjölda sveit­ar­fé­laga og flest­ir þeirra þátta verða und­ir sam­eig­in­legri stjórn Stef­áns Ein­ars og Andrés­ar Magnús­son­ar, líkt og fyr­ir alþing­is­kosn­ing­ar í fyrra.“

Eigendur með tengsl við sjávarútveg og stjórnmál

Ritstjórar Morgun­blaðsins eru Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen sem hafa haldið um stjórnar­taumanna frá haustið 2009. Blaðið er í eigu útgáfu­félagsins Árvakurs sem heldur einnig úti mbl.is og útvarps­stöðinni K100.

Stærsti eig­and­i Árvakurs er Guð­­björg Matt­h­í­a­s­dóttir og börn henn­­ar, í gegnum félögin Hlyn A og Ísfé­lag Vest­­manna­eyja. Sam­an­lagt á sá hópur 25,5 pró­­sent hlut. Næst stærsti eig­and­inn eru Íslenskar Sjá­v­­­ar­af­­urð­ir, í eigu Kaup­­fé­lags Skag­­firð­inga, með 19,4 pró­­sent eign­­ar­hlut. Þorri eigenda­hópsins er með rík tengsl við íslenskan sjávar­útveg eða Sjálfstæðis­flokkinn. Á meðal annarra eigenda er Eyþór Arnalds, oddviti flokksins í Reykjavík. Stjórnar­formaður Árvakurs er Sigur­björn Magnússon, faðir Áslaugar Örnu Sigurbjörns­dóttur, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra Íslands. Á meðal annarra stjórnar­manna í Árvakri er Ásdís Halla Braga­dóttir, sem tíma­bundið gegnir stöðu ráðuneytis­stjóra í ráðuneyti Áslaugar Örnu.

Í janúar sögðust alls 19,1 pró­sent lands­manna lesa blað­ið, en vert er að taka það fram að Morg­un­­blaðið er frí­­blað einu sinni í viku, á fimmt­u­­dög­um, þegar það er í svo­­kall­aðri aldreif­ingu. Þá fær fjöldi manns sem er ekki áskrif­andi blaðið óum­beðið inn um lúg­una hjá sér. Lestur Morg­un­­blaðs­ins hjá öllum ald­­ur­s­hópum hefur rúm­lega helm­ing­­ast frá vor­inu 2009, þegar hann var 40 pró­­sent.

Sam­drátt­ur­inn er mestur í ald­­ur­s­hópnum 18-49 ára. Þar segj­­ast tíu pró­­sent lands­­manna lesa Morg­un­­blað­ið. í byrjun árs 2009, þegar nýir eig­endur komu að rekstri blaðs­ins sem réðu svo núver­andi rit­­stjóra var Morg­un­­blaðið lesið af þriðj­ungi allra lands­­manna á þessum aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár