Guðmundur í Brimi keypti þrjú þúsund bækur til að gefa í grunn- og leikskóla landsins

Útgáfu­fé­lag sem er meðal ann­ars í eigu við­skipta­rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og eig­in­konu hans gefur út bækur sem Brim hefur ákveðið að færa öllum leik- og grunn­skólum á Íslandi.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi Brims.
Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og stærsti eig­andi Brims. Mynd: Skjáskot/RÚV

Guð­mundur Krist­jáns­son, stærsti eig­andi Brim og for­stjóri félags­ins, keypti nýverið þrjú þús­und ein­tök af barna­bókum í flokknum Litla fólkið og stóru draum­arnir og ætlar að gefa í alla grunn- og leik­skóla lands­ins. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2 í gær­kvöldi og í Morg­un­blað­inu í dag.

Útgef­andi bókanna er bóka­út­gáfu­fé­lagið Stórir draumar ehf. Það er í eigu tveggja hjóna, þeirra Stefáns Einars Stef­áns­sonar, við­skipta­rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, og Söru Lind Guð­bergs­dóttir, lög­fræð­ings í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, og þeirra Gísla Freys Val­dórs­sonar, rit­stjóra Þjóðmála og rágjafa hjá almanna­tengla­fyr­ir­tæk­inu KOM, og Rakelar Lúð­víks­dóttur, kenn­ara. Útgáfan var stofnuð fyrr á þessu ári.

Í við­tali við Stöð 2 sagði Guð­mundur að hann teldi ekki óæski­legt að skilja meiri pen­inga eftir inni í fyr­ir­tækjum lands­ins svo að þau svo verji þeim í sam­fé­lags­leg verk­efni, í stað þess að fela það ein­vörð­ungu rík­is­vald­inu. Þar seg­ist hann ekki vera að kaupa sér vini. „Ég held að við útgerð­ar­kar­l­arnir, það er seint að við verðum vin­sælir hér á Íslandi.“

Mannréttindafrömuðir og báráttufólk gegn loftslagsbreytingum

Bækurnar sem um ræðir eru þýddar barna­bækur úr bóka­flokki eftir spænska rit­höf­undin Maria Isabel Sánchez Vegara. Þær fjalla um vís­inda­menn, bar­áttu­fólk fyrir mann­rétt­indum, íþrótta­fólk, lista­fólk eða annað fólk sem hefur afrekað merki­lega hluti. Þegar eru komnar út sex bækur á íslensku og í við­tali við útgef­endur í Morg­un­blað­inu í nóv­em­ber kom fram að sex titlar til við­bótar myndu koma út í febr­úar. Á meðal við­fangs­efna í þeim bókum sem komnar eru út eru mann­rétt­inda­fröm­uðir á borð við Malala Yousafzai og Rosu Parks og dýra­vernd­unar- og lofts­lags­bar­átt­u­goð­sögnin David Attenborough. Á meðal þeirra sem fjallað verður um í bók­unum sem eru vænt­an­legar er Greta Thunberg, Michele Obama og Michael Jordan.

Á heima­síðu útgáf­unnar Stórir draumar kemur fram að smá­sölu­verð á hverri bók sé 3.490 krónur. Þrjú þús­und ein­tök kosta því um 10,5 millj­ónir króna í smá­sölu.

Íslands­banki gefur líka öllum börnum sem leggja fjár­muni inn á Fram­tíð­ar­reikn­ing bank­ans ein­tak af bók­unum úr bóka­flokknum. Á heima­síðu bank­ans segir að með bóka­gjöf­inni vilji hann „hvetja unga krakka til að æfa sig í lestri en bæk­urnar eru sniðnar að þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í lestr­ar­námi.“

Frábært að falla ekki í rétttrúnaðargildruna

Guð­mundur segir í við­tal­inu við Stöð 2 að fyr­ir­tæki lands­ins séu ekki að gera nóg til að efla íslensku­kunn­áttu starfs­fólks síns sem sé af erlendu bergi brotið. Fyrir vikið fari læsi hrak­andi og aðflutt fólk sjái smut ekki ástæðu til að reyna að læra tungu­málið. Þess vegna setji hann tugi millj­óna króna í verk­efni tengd íslenskri tungu á hverju ári.

Stefán Einar, einn eig­enda útgáf­unnar Stórir draumar, tjáir sig um máli í Facebook-færslu sem hann birti í gær. Þar segir hann það vera frá­bært að menn skuli ekki falla í rétt­trún­að­ar­gildr­una. „Auðvitað er það eft­ir­sókn­ar­vert fyrir fólk sem hingað flyst að læra íslensku. Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims hefur haft for­göngu um að fyr­ir­tækið stendur nú fyrir einni stærstu bóka­gjöf í sögu lands­ins. Allir leik- og grunn­skólar lands­ins munu fá sent ein­tak af fyrstu sex titl­unum í bóka­flokknum, Litla fólkið og stóru draum­arnir. Þar er sögð saga ekki ómerk­ari ein­stak­linga en Malölu Yousafzai, David Attenbourough, Rosu Parks, Martin Luther King jr., Steve Jobs og Marie Curie.“

Markaðsvirðið 149 milljarðar króna

Brim hefur verið skráð í Kaup­höll Íslands frá árinu 2014. Það er stærsta ein­staka útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins og mark­aðsvirði þess er sem stendur 149 millj­arðar króna. Langstærsti eig­andi þess er Útgerð­­­ar­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­ur, sem á 43,97 pró­­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­­ur­­­fé­lag sitt RE-13 ehf. Það félag er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar.

Samkvæmt nýlegum útreikn­ingum Fiski­stofu hélt Brim á 13,2 pró­sent af heild­ar­verð­mæti úthlut­aðra afla­heim­ilda hér­lendis í byrjun nóv­em­ber. Það var yfir lög­bundnu hámarki á fisk­veiði­kvóta sem einn útgerð má halda á sam­kvæmt lög­um, en það er tólf pró­sent. Þar mun­aði mestu um að Brim er fékk 18 pró­sent af nýlega úthlut­uðum loðnu­kvóta, sem var stór­auk­inn milli ára. Brim hafði sex mán­uði frá byrjun nóv­em­ber til að koma sér undir kvóta­þakið. Það gerði félagið 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þegar Brim seldi aflal­hlut­deild fyrir 3,4 millj­arða króna til Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hafði fyrir þann tíma fengið úthlutað eða keypt 2,23 pró­­­sent af öllum afla­heim­ild­­um. Til við­­­bótar heldur útgerð­­­ar­­­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 0,76 pró­­­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög halda því á 16,19 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár