Að breyta svínakótelettu í nautasteik

Fólk í Taívan varð mun meðvitaðra um innihald matvara eftir að mikið matarhneyksli skól landið 2014 einn stærsti matarolíuframleiðandinn var afhjúpaður fyrir að hafa endurnýtt notaða matarolíu og selt hana sem nýja.
Fólk í Taívan varð mun með­vit­aðra um inni­hald mat­vara eftir að mikið mat­ar­hneyksli skól landið 2014 einn stærsti mat­ar­ol­íu­fram­leið­and­inn var afhjúp­aður fyrir að hafa end­ur­nýtt not­aða mat­ar­olíu og selt hana sem nýja. Mynd: EPA

Þegar pistla­skrifari var að alast upp var töfra­maðurinn og búktal­arinn Baldur Georgs, ásamt dúkkunni Konna, vinsæll skemmtikraftur. Baldur töfraði kanínur úr hatti og sýndi ýmsa galdra svo áhorf­endur stóðu á öndinni. Aldrei hefði þó hvarflað að Baldri (né Konna) að breyta svína­kótelettu í nauta­steik en það vefst hinsvegar ekki fyrir víetnömskum matvöru­svindlurum. Nokkurra mánaða aðgerð Alþjóða­lögreglunnar Interpol og Evrópu­lögreglunnar Europol gegn svindli með matvæli lauk fyrir nokkrum dögum. 

Á undan­förnum árum hafa margoft, víða um heim, komið upp mál sem tengjast svikum og prettum með matvæli. Starfsemi af því tagi tengist nær undan­tekningar­laust þeirri áráttu, sem fylgt hefur mann­kyninu frá upphafi, að fá meira fyrir minna. Græða.

Síðastliðinn áratug hafa flest slík mál, í Evrópu, með einum eða öðrum hætti tengst nautum og hrossum. Í flestum, eða öllum, tilvikum hefur verið um það að ræða að hross hefur breyst í naut, gamall dráttar­klár orðinn að úrvals tudda. Iðulega hefur þetta gerst á leiðinni gegnum hakkavélar kjöt­vinnslu­fyrirtækja. Skýringin á því að hross verður oftast að nauti en ekki öfugt liggur í því að nautakjöt er eftirsótt vara, andstætt því sem gildir um hrossa­kjöt. Þaraf leiðandi er verðið á nauta­kjötinu hærra, auk þess sem erfitt getur reynst að selja hrossa­kjöt því að í flestum Evrópu­löndum er ekki hefð fyrir neyslu þess.

Findus málið

Í febrúar 2013 var greint frá því í fjöl­miðlum víða um lönd að matvæla­fram­leiðandinn Findus hefði orðið uppvís að því að nota hrossa­kjöt í ýmsa tilbúna rétti og hamborgara, í stað nauta­kjöts eins og stóð á umbúðunum. Margt athyglis­vert kom í ljós við rannsókn þessa máls og leiðir hrossa­kjötsins á leiðinni í neytenda­pakkningar Findus bæði langar og flóknar. Milli­liðirnir reyndust margir og mjög flókið að komast að uppruna kjötsins, hvaðan gat allt þetta hrossa­kjöt komið, var spurt. Grunur beindist að Rúmeníu en nokkrum árum áður höfðu tekið þar gildi lög sem bönnuðu hesta­kerrur á vegum. Á árunum eftir að bannið tók gildi er talið að allt að sex hundruð þúsund kerru­klárum hafi verið slátrað og miklum fjölda asna sem höfðu verið notaðir til dráttar. Rúmenar harðneituðu öllum slíkum ásökunum og aldrei tókst að komast til botns í málinu. Hrossakjöts­skandallinn (eins fjöl­miðlar komust að orði) vakti mikla athygli og olli Findus fyrir­tækinu, sem er sænskt og með fram­leiðslu í mörgum löndum, miklum skaða. Þótt Findus yrði að eins konar samnefnara fyrir þetta umfangs­mikla mál tengdust því mörg önnur fyrirtæki, í mörgum löndum. Þetta mál hefur iðulega verið kallað stærsta matvæla­hneyksli Evrópu.

26 handteknir

Árið 2015, tveimur árum eftir að Findus málið komst upp voru 26 manns hand­teknir sem taldir voru tengjast umfangs­miklu smygli og svindli með hrossa­kjöt. Evrópska réttar­aðstoðin (Eurojust) og franska lögreglan skipulögðu aðgerðirnar en hand­tökurnar fóru fram í sjö löndum. Í tilkynningu Eurojust kom fram að Belgi væri höfuðpaur málsins.

Hér hafa aðeins verið nefnd tvö mál sem tengjast svindli með matvæli. Ótal mál af svipuðu tagi, ekki þó jafn umfangs­mikil, væri hægt að nefna.

Stóra rassían

Fyrir nokkrum dögum sendu Alþjóða­lögreglan Interpol og Evrópu­lögreglan Europol frá sér frétta­tilkynningu. Tilefnið var að lokið var nokkurra mánaða aðgerðum gegn ólöglegum matvæla­iðnaði. Aðgerðir lögreglunnar, sem lögregla í 57 löndum tók þátt í, áttu sér langan adraganda, undir­búningurinn hafði staðið yfir í nokkur ár. Þótt margir hafi talið sig vita að víða væri maðkur í matvæla­mysunni hefur líklega fæsta grunað að svindlið væri jafn umfangs­mikið og teygði anga sína jafn víða og rann­sóknin leiddi í ljós. Hvatinn í öllum tilvikum gróða­vonin og grunlaus almenningur getur fátt gert annað en treysta á eftirlit lögreglu og eftirlits­stofnana. Þessi ólöglega starfsemi veltir árlega þúsundum milljarða og hækkandi matarverð víða um heim kyndir enn frekar undir gróða­vonina.

Hugmynda­flugi þeirra sem þessa iðju stunda virðast lítil takmörk sett og margt af því sem nefnt er í tilkynningunni með hreinum ólíkindum.

Á Ítalíu lagði lögregla hald á 85 tonn af ólífum sem höfðu verið baðaðar í kopar­súlfati til að fá á þær sterkari grænan lit.

Í Belgíu gerði lögreglan upptækt apakjöt sem hafði verið flutt til landsins, slíkt er ólöglegt og veiðar á öpum víðast hvar bannaðar. Belgíska og franska lögreglan lögðu líka hald á engisprettur og lirfur, hvort tveggja ólöglegt og ekki vitað hver ætlunin með innflutningnum var.

Í Bolívíu fann lögreglan tugþúsundir sardínu­dósa og jafnframt límmiða með nafni þekkts niðursuðu­fyrirtækis í Perú. Eigandi sardínu­lagersins hafði vandað til prentunarinnar á miðunum því þeir voru nákvæmlega eins og fyrir­myndin.

Gríska lögreglan fann þrjú ólögleg víngerðarhús, þarsem fram­leiðsla var í fullum gangi. Þar fundust 7400 flöskur með merki­miðum þekktra fram­leiðenda og sömuleiðis tappar og merki­miðar í tugþúsunda­tali, ásamt tómum flöskum undir fram­leiðsluna.

Í Indónesíu lagði lögreglan hald á margskonar matvörur, bæði eftir­líkingar þekktra vöru­merkja og ýmiskonar ólöglegan varning. Sumt af þeim varningi hættulegt heilsu manna, þar á meðal 70 kíló af kjúklingagörnum, sem geymdar voru í formalíni.

Í Bretlandi fann lögregla 10 þúsund lítra af sterku ólöglega fram­leiddu víni sem blandað hafði verið með enn ódýrari vökva. Á vef breska útvarpsins BBC segir að alls hafi í þessari aðgerð víða um lönd fundist ólöglegt vín sem dugi til að fylla 10 þúsund baðker. Ekki algeng mæli­eining enda fremur ónákvæm!

Í Ungverja­landi, Litháen, Rúmeníu og á Ítalíu fann lögreglan tugi tonna af súkkulaði og kexi, pakkað í nákvæmar eftir­líkingar þekktra fram­leiðenda. Á Ítalíu fannst einnig, og ekki í fyrsta sinn, ólífuolía á flöskum merktum þekktum fram­leiðendum. Fyrir þremur árum kom upp hliðstætt mál, lögregla taldi þá að allt að 80 prósent af því sem selt væri sem ólífuolía í hæsta gæða­flokki væri ódýrt sull.

Þótt svindl­arar um allan heim séu hugvits­samir slá líklega fáir þeim tælensku við. Þar greip lögreglan nokkra menn sem voru að dunda sér við að breyta svína­kótelettum í nauta­steikur. Kótelettunum var dýft í pott með nauta­blóði sem natríum­blöndu hafði verið bætt í. Eftir ferðina í pottinn voru kóteletturnar blóð­rauðar en líktust kannski ekki, af myndum að dæma, að öðru leyti nauta­kjöti. Af því hvernig þessar litbreyttu svína­kótelettur smökkuðust fer ekki sögum. Tælenska lögreglan gerði auk þess upptæka tugi tonna af nauta­kjöti sem talið var óhæft til manneldis, en var eigi að síður á leið í verslanir.

Í Danmörku fann Matvæla­eftirlitið 81 tonn af sírópi sem eftir „lagfæringar” er selt sem hunang. Eitt stærsta fyrir­tækið á þessu sviði í Danmörku er nú til sérstakrar skoðunar þar sem ætlunin er að komast að hvort ”breytingin úr sírópi í hunang” hefur farið fram í Danmörku eða Kína en þaðan kemur stór hluti þess hunangs sem selt er í dönskum verslunum.

Hér hefur einungis fátt eitt verið nefnt af því sem fannst í rassíu Interpol og Europol. Einn af yfir­mönnum Europol sagði í viðtali að þótt mörgum blöskraði eflaust það mikla umfang sem getið væri um í tilkynningu Interpol og Europol væri það því miður aðeins toppurinn á ísjakanum.

Á allra síðustu árum hafa stjórn­völd víða um heim aukið mjög eftirlit með öllu því sem við kemur matvæla­iðnaðinum. Það gildir bæði um fram­leiðslu og sölu, merkingar og geymsluþol svo eitthvað sé nefnt. Evrópu­sambandið hefur lagt mikla áherslu á þessi mál, stundum svo mikla að ýmsir hafa kallað ofur­eftirlit. Miðað við niður­stöðurnar úr rassíu Alþjóða­lögreglunnar og Evrópu­lögreglunnar er ekki vanþörf á slíku eftirliti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár