264 milljarða króna halli á rekstri ríkissjóðs

Gert er ráð fyrir að 900 milljarða halli verði á rekstri ríkis­sjóðs næstu fimm árin. Yfir 100 milljarðar króna fara til greiðslu atvinnu­leysis­bóta, bæði í ár og á næsta ári. Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra kynnti fjár­laga­frumvarp ríkis­stjórnarinnar í dag.

Rekstur ríkisins fjármagnaður með lántöku
Rekstur rík­is­ins fjár­magn­aður með lán­töku Fjár­mála­ráð­herra segir að halda eigi úti opin­berri þjón­ustu með lán­töku á meðan að efna­hag­skreppan í kjöl­far Covid-19 far­ald­urs­ins gengur yfir. Mynd: Pressphotos

Ríkis­sjóður verður rekinn með 264 milljarða króna halla á næsta ári. Gert er ráð fyrir að hallinn verði 900 milljarðar króna á næstu fimm árum, á tímabili fjármála­áætlunar 2021-2025. Yfir 100 milljarðar króna munu fara til greiðslu atvinnu­leysis­bóta í ár og á næsta ári.

Þetta eru meðal lykil­talna í fjár­laga­frumvarpi ríkis­stjórnarinnar sem Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra er að kynnti í dag.

Skatt­tekjur ríkis­sjóðs verða 52 milljörðum lægri í ár en hefði verið, með aðgerðum ríkis­stjórnarinnar. Ekki á að bregðast við efnahagskreppunni með niður­skurði eða aukinn tekju­öflun með skatt­kerfinu heldur með því að ríkis­sjóður taki lán til að fjármagna rekstur hins opinbera.

Bjarni sagði að hverjum manni væri augljóst að hrun hefði orðið í afkomu ríkis­sjóðs. „Við höfum ekki til lengri tíma efni á því að halda úti þeirri opinberu þjónustu sem við gerum í dag. Við gerum það engu að síður vegna þess að við trúum því að þetta sé tíma­bundið ástand og við ætlum að vinna okkur út úr því.“

„Við höfum ekki til lengri tíma efni á því að halda úti þeirri opinberu þjónustu sem við gerum í dag“

Tekjum ríkis­sjóðs verður því leyft að falla en styrk staða ríkissjóð nýtt til að takast á við kreppuna, sagði Bjarni. Undan­farin ár hafi skuldir ríkis­sjóðs lækkað verulega og því sé ríkis­sjóður vel í stakk búinn til að takast á við verkefnið. Erlend staða ríkis­sjóðs sé sterk, verðbólga sé og hafi verið lág og stöðug og hagstjórn hafi verið agaðri en áður var.

Samkvæmt fjár­laga­frumvarpinu verða settir 430 milljarðar króna í aðgerðir til að styðja við hagkerfið. Stóra markmiðið sé að verja störf og skapa störf. Á þessu ári og því næsta muni þurfa að greiða yfir 100 milljarða króna í atvinnu­leysis­bætur. Gert er ráð fyrir að árin þar á á eftir verði enn greiddir yfir og um 40 milljarðar króna í atvinnu­leysis­bætur, nema því aðeins að hagkerfið taki við sér af krafti. 

Samkvæmt fjármála­áætlun áranna 2021-2025 stefnir á að halli ríkis­sjóðs verði á tíma­bilinu 900 milljarðar króna. Stefnt er að því að stöðva halla­reksturinn þá. 

Samkvæmt þjóð­hagsspá Hagstofu Íslands fyrir árin 2020-2026, sem birt var í morgun, dregst lands­framleiðsla saman um 7,6 prósent í ár. Bjarni sagði það mesta samdrátt síðustu 100 ára. Samkvæmt spánni er útlit fyrir að hagvöxtur verði 3,9 prósent á næsta ári. Bjarni benti enn fremur á að síðastliðinn áratug hefðu Íslendingar upplifað samfellda aukningu í kaupmætti launa. Samkvæmt spám væri gert ráð fyrir að sú þróun gæti haldið áfram, héldist friður á vinnu­markaði og verðbólga héldist áfram lág. Lítið þyrfti þó útaf að bera til að þær spár myndu ekki rætast. 

90 milljarða króna samdráttur verður á tekjuhlið ríkisins samkvæmt fjár­laga­frumvarpinu. Samkvæmt fjár­laga­frumvarpinu verður tekju­skattur lækkaður um næstu áramót. Lækkunin verður í lægsta tekju­þrepinu og nýtis upp allan tekju­stigann en gagnist þó best þeim sem lægstar tekjurnar hafi. Lækkun á tekjum ríkis­sjóðs vegna þessara skattkerfis­breytinga, sem þegar höfðu verið kynntar, nemur 14,5 milljörðum króna.  90 milljarða króna samdráttur verður á tekjuhlið ríkisins. 

Ríkis­stjórnin kynnti í vikunni aðgerða­áætlun í átta liðum til að auka stöðug­leika. Meðal breytinga þar eru tíma­bundin lækkun trygginga­gjalds út næsta ár. Tekjur ríkis­sjóðs vegna þess munu lækka um 4 milljarða króna. Þá verður átakið Allir vinna sömuleiðis framlengt út næsta ár, en með því verður full endur­greiðsla virðis­aukaskatts vegna framkvæmda tryggð. Áætlað er að kostnaður vegna endur­greiðslna nemi um 8 milljörðum króna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár