Helgi Björnsson er borgarlistamaður Reykjavíkur 2020

Maðurinn sem fann upp frasann „Eru ekki allir sexý!“ og söng sig enn á ný inn í hjört lands­manna með Heima-tónleika­röðinni á meðan að samkomu­bannið stóð yfir, hefur verið útnefndur Borgar­listamaður Reykja­víkur.

Tónlistar­maðurinn og leikarinn Helgi Björnsson var í dag útnefndur borgar­listamaður Reykja­víkur af Degi B. Eggerts­syni borgar­stjóri við hátíðlega athöfn í Höfða.

Útnefningin er heiðursviðurkenning til lista­manns sem með list­sköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi og samfélagi. Helgi vakti mikla athygli með þáttum sem hann, eiginkona hans Vilborg Halldórs­dóttir og margir helstu tónlistar­menn þjóðarinnar héldu úti kvöld­vökunum „Heima með Helga“ í sjónvarpi Símans á laugardags­kvöldum á meðan að samkomu­bann var í gildi á Íslandi.

Hjálmar Sveinsson formaður menningar-, íþrótta- og tómstunda­ráðs gerði grein fyrir einhuga vali ráðsins á Helga. Lista­manninum var veittur ágrafinn steinn, heiðurs­skjal og viðurkenningarfé.

Hjálmar sagði Helga vel að titlinum kominn. Hann hefði markað afgerandi spor í íslenskum sviðs­listum og dægur­menningu í hartnær 40 ár.

Eftir­farandi texti fylgdi með tilkynningunni um útnefndingu Helga:

„Helgi Björnsson er fæddur á Ísafirði 10. júlí árið 1958. Foreldrar hans eru þau María Gísla­dóttir fyrr­verandi leik­skóla­kennari og Björn Helgason fyrr­verandi málara­meistari, skíða­kappi og lands­liðsmaður í fótbolta. Eiginkona Helga er Vilborg Halldórs­dóttir leikkona, leikari, leið­sögumaður og texta­höfundur með meiru.

Helgi hefur sjálfur sagt að hann var farinn bæði að leika og syngja sem strákur og ákvað 10 ára að hann ætlaði að verða poppstjarna þegar hann yrði stór.

Hann komst inn í leiklistar­skólann haustið 1979 og útskrifaðist þaðan vorið 1983 ásamt Vilborgu og fleiri lands­þekktum leikurum.

Við útskrift úr Leiklistar­skólanum fékk Helgi tvö vinnu­tilboð: að syngja með hljóm­sveitinni Grafík og að taka að sér hlutverk Arngríms Árland í kvik­myndinni Atóm­stöðin. Hann tók báðum tilboðum og þannig hófst hans tvískipti ferill, en allt frá þessu fyrsta sumri hefur hann jöfnum höndum sungið og leikið.

Þó svo að Helgi hafi æ síðan sinnt þessum tveimur „músum“ sínum jöfnum höndum, þá er það sennilega rokkarinn Helgi Björns sem flestir bera sterkar taugar til. Flestir Íslendingar geta raulað með lögum sem hann hefur sungið inn í meðvitund okkar með Grafík, SSSól eða Reið­mönnum vindanna hin síðari ár. Helgi Björnsson er rokkari sinnar kynslóðar, ekki síst vegna öflugrar og litríkrar sviðs­framkomu – og svo vegna frasans sem eilíflega verður kenndur við hann: „Eru ekki allir sexý!“

Helgi Björns vann sig svo enn og aftur inn í hjörtu allra lands­manna með Heima-tónleikunum sjö sem sýndir voru beint í sjónvarpi Símans á meðan samkomu­bannið vegna Covid-19 stóð yfir . Hugmyndina fékk hann þegar hann fylgdist með vinum sínum á Ítalíu sem sungu á svölum og streymdu örtónleikum úr stofunum sínum í útgöngu­banni. Öllum viðburðum sem Helgi Björns hefði átt að taka þátt í hafði verið frestað og því fannst honum upplagt að gera eitthvað á þessa leið – búa til tónleika, nokkurs konar sveitaballs­stemningu heima í stofu og senda í stofur allra lands­manna, þjóðinni til ómældrar skemmtunar og gleði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár