Framlag til VIRK 200 milljónum lægra en það átti að vera vegna mistaka

Ríkið á að greiða árlegt framlag til VIRK - Starfs­endur­hæfingar­sjóðs. Í fjár­laga­frumvarpinu er framlagið mun lægra en lög og samningar segja til um. Félagsmála­ráðuneytið hefur staðfest að þetta verði leiðrétt.

VIRK - Starfs­endur­hæfingar­sjóður bendir í umsögum um fjár­laga­frumvarpið á að mistök hafi átt sér stað vegna framlags úr ríkis­sjóði til sjóðsins fyrir næsta ár.

Samkvæmt lögum og samningi milli VIRK og Félagsmála­ráðuneytisins eigi að renna 848,5 milljónir króna til VIRK á næsta ári úr ríkis­sjóði en í fjár­laga­frumvarpinu sé sú tala sögð vera 648,5 milljónir króna. Þar skeiki 200 milljónum króna.

Í umsögn VIRK, sem Vigdís Jóns­dóttir framkvæmda­stjóri skrifar undir, er þess óskað að þetta verði leiðrétt. „Forsvars­menn VIRK hafa verið í sambandi við félagsmála­ráðuneytið vegna þessa og þar hefur það einnig verið staðfest að að þetta verði leiðrétt.“

21,3 milljarða króna heildar­ávinningur var af starfsemi VIRK árið 2020 og ávinningur á hvern útskrifaðan einstakling er 13,3 milljón króna, samkvæmt úttekt ráðgjafa­fyrir­tækisins Talna­könnun sem metið hefur ávinninginn af starfsemi VIRK árlega frá 2013. Heildar­ávinningurinn nemur rúmum sexföldum rekstrar­kostnaði starfs­endur­hæfingar­sjóðsins.

Samið um aðkomu ríkisins 2015

Virk er starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður sem stofn­aður var af Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ) og Sam­tökum atvinnu­lífs­ins (SA) í maí 2008. Hlutverk hans er að efla starfs­getu einstaklinga með heilsu­brest sem stefna að aukna þátttöku á vinnu­markaði.

Í jan­úar 2009 var und­ir­rituð ný stofn­skrá og þá komu stétt­ar­fé­lög og atvinnu­rek­endur á opin­berum vinnu­mark­aði að sjóðn­um. Til­urð sjóðs­ins byggir á sam­komu­lagi milli þeirra sem að honum standa um nýtt fyr­ir­komu­lag starfsend­ur­hæf­ingar í kjara­samn­ingum á vinnu­mark­aði sem gert var árið 2008.

Síðan þá hafa atvinnu­rek­endur og líf­eyr­is­sjóðir greitt hlut­fall af stofni iðgjalds til sjóðs­ins til að standa undir rekstri hans og starfsend­ur­hæf­ingu þeirra sem eru virkir á atvinnu­mark­aði. Ríkið greiðir síðan, sam­kvæmt lögum sem sam­þykkt voru árið 2012 og samn­ingum sem voru gerðir þegar VIRK var sett á fót, fram­lag til sjóðs­ins. Það fram­lag á meðal ann­ars að fjár­magna starfsend­ur­hæf­ingu þeirra ein­stak­linga sem eru atvinnu­laus­ir, þiggja örorku­líf­eyri eða eru skjól­stæð­ingar félags­mála­stofn­ana. Erfilega gekk að ná saman um hvert framlagið yrði framan af en samkomulag náðist um það í mars 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár