Vilja auka sýnileika siðareglna alþingismanna

Samkvæmt stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd eiga siða­reglur að vera lif­andi og taka mið af þeim breyt­ingum sem verða í sam­fé­lag­inu. Nefnd­ar­á­lit hefur nú verið sam­þykkt varð­andi breyt­ingar á siða­reglum alþing­is­manna.

Til stendur að breyta siða­reglur alþing­is­manna en nefnd­ar­á­lit frá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd um til­lögu til þings­á­lykt­unar um breyt­ingu hefur nú verið sam­þykkt. Þetta kemur fram á vef Alþingis.

Nefndin telur að siða­reglur eigi að vera lif­andi og taka mið af þeim breyt­ingum sem verða í sam­fé­lag­inu eins og kveikjan var að þessu máli. Nefndin telur að til þess að svo megi verða sé nauð­syn­legt að auka sýni­leika siða­regln­anna og aðgengi að þeim á vef Alþingis. Þá sé einnig nauð­syn­legt að umfjöllun um þær verði reglu­leg á meðal alþing­is­manna, til dæmis með mál­stofum og fræðslu­fundum.

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga var lögð fram á Alþingi þar sem lagt var til að gerðar verði tvær breyt­ingar á siða­reglum fyrir alþing­is­menn. Hún var lögð fram þann 23. mars síð­ast­lið­inn en fyrsti flutn­ings­maður er Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is. Þverpóli­tísk sátt við­ist ríkja um málið þar sem flutn­ings­menn eru úr VG, Mið­flokkn­um, Píröt­um, Fram­sókn­ar­flokkn­um, Flokki fólks­ins, Við­reisn, Sjálf­stæð­is­flokknum og Sam­fylk­ing­unni.

Áhrif #metoo

Í fyrsta lagi er lagt til að nýjum staf­lið verði bætt við sem segir að alþing­is­menn verði að leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heil­brigt starfs­um­hverfi innan þings sem utan og hvar­vetna þar sem þeir sinna störfum sínum þar sem hafnað er hvers konar kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni, ein­elti eða annarri van­virð­andi fram­komu.

Í öðru lagi er lagt til að á eftir sjö­undu grein siða­regln­anna komi ný grein sem hljóði svo: „Þing­menn skulu ekki sýna öðrum þing­mönn­um, starfs­mönnum þings­ins eða gestum kyn­ferð­is­lega eða kyn­bundna áreitni, leggja þá í ein­elti eða koma fram við þá á annan van­virð­andi hátt.“

Þingmenn fái siðareglur strax að loknum kosningum

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur nú fjallað um málið og fékk hún á sinn fund Þórhall Vil­hjálms­son frá laga­skrif­stofu Alþingis, Jón Ólafsson frá Gagnsæi – sam­tökum gegn spill­ingu og Henry Alex­ander Henrys­son frá Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands.

Nefndin fjall­aði á fundum sínum um nokkur álita­efni máls­ins, meðal ann­ars gild­is­svið regln­anna gagn­vart vara­þing­mönnum og hvenær þing­menn ættu að kynna sér siða­regl­urnar og und­ir­rita yfir­lýs­ingu þar um. Samkvæmt grein í siða­regl­unum er kveðið á um að við upp­haf þing­setu sinnar skuli alþing­is­menn afhenda for­seta Alþingis und­ir­rit­aða yfir­lýs­ingu um að þeir hafi kynnt sér siða­regl­urnar og að sama gildi um vara­þing­menn sem hafa setið sam­fellt í fjórar vikur.

Í fram­kvæmd hefur þing­mönnum verið kynnt að á fyrsta fundi Alþingis eftir alþing­is­kosn­ingar liggi siða­regl­urnar á borðum þing­manna ásamt formi fyrir yfir­lýs­ingu sem þeir geti und­ir­ritað og afhent skrif­stof­unni til stað­fest­ingar þess að þeir hafi kynnt sér regl­urnar. Á fundum nefnd­ar­innar var rætt hvort ekki væri eðli­legt að þing­menn fengju siða­regl­urnar og yfir­lýs­ing­una sendar strax að loknum kosn­ingum og útgáfu kjör­bréfs frá lands­kjör­stjórn og að sama gilti um vara­þing­menn frá því þeir tækju sæti.

Siðareglur eiga að auka gagnsæi

Nefndin tekur fram að í siða­regl­unum komi fram for­sendur sem eru grunnur þess hlut­verks sem kjörnum full­trúum er falið. Þær eiga að vera almennar og til leið­sagnar fyrir þá um hvaða kröfur eru gerðar til þeirra. Nefndin telur því í ljósi þess hvernig litið er á þing­menn og hvaða kröfur eru gerðar til þeirra allt frá kjöri að mik­il­vægt sé að regl­urnar séu kynntar þeim strax eftir kosn­ingar svo að þeir geti skilað und­ir­rit­aðri yfir­lýs­ingu sem fyrst.

Nefndin telur enn fremur að sömu rök eigi við um vara­þing­menn og telur því rétt að leggja til að það verði for­taks­laus skylda allra sem taka sæti á Alþingi að þeir kynni sér siða­regl­urnar jafn­skjótt og þeir taka sæti og und­ir­riti yfir­lýs­ingu þar um á sínum fyrsta þing­fundi. Nefndin leggur því til breyt­ingu á þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni í þá veru.

Nefndin tekur fram að með siða­reglum sé verið að auka gagn­sæi í störfum alþing­is­manna, kynna hlut­verk þeirra og ábyrgð­ar­skyldu sem sé til þess fallið að dýpka þekk­ingu þeirra á hlut­verk­inu, sem og að auka til­trú og traust almenn­ings á Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár