Segir vændi „rústa“ konum í neyslu

Ung kona sem er á batavegi eftir að hafa verið háð ópíóðum segir algengara en fólk heldur að giftir menn sem ekki séu í neyslu kaupi vændi af ungum konum í ópíóðaneyslu og nýti sér þannig neyð þeirra. Hún segir hræðilegt að fylgjast með því hvað þeir hafi mikil völd yfir konum í afar viðkvæmri stöðu sem samfélagið vilji helst ekki vita af.

Konan segist oft hafa farið inn í hættulegar aðstæður til að verða sér úti um efni. Slíka neyð nýti sumir karlmenn sér og hafi „rosaleg“ völd yfir konum sem séu í afar viðkvæmri stöðu.
Konan seg­ist oft hafa farið inn í hættu­legar aðstæður til að verða sér úti um efni. Slíka neyð nýti sumir karl­menn sér og hafi „rosa­leg“ völd yfir konum sem séu í afar við­kvæmri stöðu. Mynd: Shutterstock

Konan sem er í viðtali hjá Eddu Falak í hlaðvarps­þættinum Eigin Konur segist hafa átt margar vinkonur sem séu fastar í vændi og að karlmenn nýti sér neyð þeirra. Flestar þeirra séu mjög veikar, sérstak­lega þær sem séu háðar ópíóðum því að þær þurfi skammtinn sinn daglega og stundum oft á dag til að forðast fráhvörf sem hún segir vera hræðilega erfið. Því grípi margar þeirra til alls kyns örþrifa­ráða til að „lifa daginn af“. Margar stundi vændi til að fjármagna neysluna. „Þetta rústar þeim og maður horfir uppá þær verða að engu,“ segir konan sem er nú á góðum batavegi eftir að hafa verið háð ópíóðum í nokkur ár. Á því tímabili segist hún hafa búið um tíma á götunni, í athvörfum fyrir heimilis­laust fólk og flakkað á milli íbúða vina og kunningja í leit að skjóli.  

Leiðirnar til að verða sér úti um efni oft skelfilegar 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár