Kynslóðabreyting knýr áfram sjálfbærni í fjármálageiranum

Með auknum fjölda yngri fjárfesta mun áhuginn á samfélags­lega ábyrgum fjár­festingum líklega aukast til muna. Þá verður mikilvægt að koma í veg fyrir grænþvott fyrir­tækja með gagnsærri upplýsinga­gjöf, segir sérfræðingur hjá Arctica Finance.

Vanesa Hoti, sérfræðingur í eignastýringu Arctica Finance.
Vanesa Hoti, sér­fræð­ingur í eigna­stýr­ingu Arctica Finance. Mynd: Arctica Finance

Aukin ítök aldamóta­kynslóðarinnar á fjármála­markaðnum mun líklega auka umfang umhverfis­vænna og samfélags­lega ábyrgra fjár­festinga á næstu árum. Þetta skrifar Vanesa Hoti, sérfræðingur í eigna­stýringu Arctica Finance, í síðasta tölublaði Vísbendingar.

Kynslóðaskipti hafa áhrif

Samkvæmt Vanesu hafa fyrirtæki orðið fyrir auknum þrýstingi frá hagaðilum þeirra þegar kemur að sjálfbærni og samfélags­lega ábyrgum fjár­festingum. Þar á meðal eru fjár­festar, sem líta nú í auknum mæli til þess að umhverfis-, félags- og stjórnar­hættir (UFS) séu viðunandi.

Hún segir yngri kynslóðina vera þann hóp sem hefur hvað mestan áhuga á þessum þáttum og því sé viðbúið að vinsældir fjár­festinga­sjóða sem taka tillit til þeirra muni verða vinsælli eftir því sem hún fjár­festir meiri.

Sér til stuðnings bendir Vanesa á könnun sem fjármála­fyrirtækið Morgan Stanley gerði árið 2019, en þar sögðust 95 prósent fjárfesta af aldamóta­kynslóðinni hafa áhuga á sjálf­bærum fjár­festingum. Einnig nefnir hún skýrslu sem endur­skoðunar­fyrirtækið Deloitte birti í fyrra, en þar var spáð að helmingur allra eigna í stýringu vestanhafs myndu taka tillit til UFS-þátta árið 2025.

Mikilvægt að hafa góða mælikvarða

Vegna þessarar fyrir­hugaðrar aukningar í eignum sem segjast taka tillit til UFS-þátta segir Vanesa að mikilvægt sé að fyrirtæki sýni hvernig það sé gert með góðum mæli­kvörðum og reglu­bundinni upplýsinga­gjöf. Fyrir­tækin sem gera það ekki séu líkleg til að falla undir svokallaðan grænþvott

Samkvæmt henni er hægt að beita ýmsum aðferðum til að forðast siðferðis­lega vafasöm viðskipti, en hún bendir á heimasíðu IcelandSIF fyrir ítarlegri upplýsingar um þær. Einnig bendir hún á UFS-leið­beiningar Kaup­hallarinnar, sem fyrirtæki geta byggt á til að samræma sína upplýsinga­gjöf í þessum þáttum.

Hægt er að lesa grein Vanesu í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár