Google fær stærstu sekt í sögu ESB

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins sektaði tölvu­fyr­ir­tækið Google um 4,34 millj­arða evra, en það er stærsta sekt sem sam­bandið hefur gefið í nokkru sam­keppn­is­máli.

Sekt Evrópusambandsins á hendur Google er sú stærsta í sögu sambandsins
Sekt Evr­ópu­sam­bands­ins á hendur Google er sú stærsta í sögu sam­bands­ins

Tölvuris­inn Google var sektaður um 4,34 millj­arða evra af fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins í dag vegna brota á sam­keppn­is­lögum. Sektin jafn­gildir 540 millj­örðum íslenskra króna, en hún er sú stærsta sem sam­bandið hefur gefið nokkru fyr­ir­tæki.

Í úrskurði Evr­ópu­sam­bands­insgegn tölvu­fyr­ir­tæk­inu segir að þær skorður sem Google hafi sett Android-símum til að auka umferð um eigin leit­ar­vél hafi verið gegn sam­keppn­is­lögum sam­bands­ins. Með þessu segir Evr­ópu­sam­bandið Google hafa notað Android sem tól til að styrkja mark­aðs­ráð­andi stöðu tölvu­fyr­ir­tæk­is­ins.

Tak­mark­anir Google á hendur Android-síma voru þrí­þættar:

  1. Í fyrsta lagi krafði tölvu­fyr­ir­tækið fram­leið­endur að setja upp leit­ar­vél sína og net­vafra sem skil­yrði þess að kom­ast að smá­forritum Google í gegnum Google Play Store.
  2. Í öðru lagi borg­aði Google fram­leið­endum og eig­endur far­síma­neta með því skil­yrði að þeir settu upp leit­ar­for­rit fyr­ir­tæk­is­ins á tækjum sínum.
  3. Í þriðja lagi hindr­aði fyr­ir­tækið fram­leið­endum sem vildu setja upp smá­forrit á þeirra vegum að selja far­síma sem gekk á Android-hug­bún­að­ar­út­gáfum sem væru ósam­þykktar af Google.

Vegna þeirra aðgerða var Google sektað til að greiða 4,34 millj­arða evra vegna brota á sam­keppn­is­lögum Evr­ópu­sam­bands­ins. Samkvæmt frétt BBC um málið munu heild­ar­skuldir Google til Evr­ópu­sam­bands­ins nú nema 6,7 millj­örðum evra, en fyr­ir­tækið var dæmt til að borga 2,24 milj­arða í fyrra þar sem fyr­ir­tækið hygldi eigin net­verslun á leit­ar­vél sinni.

Langhæsta sektin á eitt fyrirtæki

Sektin á hendur Google er sú stærsta sem Evr­ópu­sam­bandið hefur gefið í nokkru máli og sú lang­hæsta sem sam­bandið hefur gefið einu fyr­ir­tæki. Næst stærsta sekt sam­bandsis var gefin út vegna sam­ráðs vöru­bíl­stjóra í fyrra og nam um 3,8 millj­örðum, en hún dreifð­ist á þrjú fyr­ir­tæki. Í þriðja sæti situr svo fyrri sektin til Google, en í því fjórða er hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Microsoft sem var dæmt til að greiða alls 1,46 millj­arða evra vegna ólög­legrar sam­tvinn­unar hug­bún­aðar síns og net­vafrans Explorer.

Samkvæmt BBC hefur tölvu­fyr­ir­tækið sagst munu áfrýja dómnum, en Google er nú þegar í miðju áfrýj­un­ar­ferli vegna fyrri dóms fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár