Gjaldeyrisforðinn minnkaði um 14 milljarða í október

Eignir Seðla­bankans í erlendum gjaldeyri minnkuðu lítillega í síðasta mánuði, en hafa þó aukist töluvert frá áramótum. Þó er hann enn ekki orðinn jafn­mikill og hann var á miðju síðasta ári.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Alls minnkaði gjaldeyris­forði Seðla­banka Íslands um 1,5 prósent í október, en það samsvarar minnkun um 14,2 milljarða króna. Forðinn er ekki enn orðinn jafnstór og hann var á sumar­mánuðum 2020, en hann minnkaði um fimmtung samhliða miklum inngripum bankans á gjaldeyris­markaði á seinni hluta síðasta árs. Þetta kemur fram í hagtölum frá Seðla­bankanum.

15 prósent stærri forði í ár

Samkvæmt tölunum hefur gjaldeyris­forðinn aukist um 15 prósent, eða um 108 milljarða króna frá upphafi árs. Á sama tíma hefur gengi krónunnar gagnvart helstu viðskipta­myntum hennar haldist nokkuð stöðugt, en gengis­vísitalan styrktist um tvö prósent á milli janúar og október.

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um minnkaði gjaldeyris­forðinn hratt samhliða gengis­veikingu, miklum inngripum Seðla­bankans á gjaldeyris­markaði og reglu­bundinnar sölu hans á gjaldeyri á seinni hluta síðasta árs. Gjaldeyris­salan var algjört einsdæmi ef litið er aftur til síðustu aldamóta.

Einnig gengið á forðann í byrjun ársins

Seðla­bankinn hélt áfram að grípa inn í á gjaldeyris­markaði í stórum stíl á fyrstu mánuðum þessa árs, en hann seldi gjaldeyri fyrir tæplega 40 milljarða króna í janúar, febrúar, mars og apríl.

Á sumar­mánuðunum snerist hins vegar sú þróun við, þar sem seðla­bankinn brást við miklu innflæði fjármagns með kaupum á gjaldeyri, en kaupin námu um 20 milljörðum í maí, júní og júlí. Síðan þá hafa inngripin verið mun minni, þrátt fyrir að gengi krónunnar hafi veikst um tæp þrjú prósent á þessum tíma.

Krónan veikari eftir Delta

Íslands­banki rekur gengis­þróun krónunnar í nýlegri úttekt, en samkvæmt henni styrktist krónan á fyrri helmingi ársins, m.a. vegna umfangs­mikilla kaupa erlendra aðila á íslenskum verð­bréfum.

Í kjölfar hertra landamæra­aðgerða vegna ris Delta-bylgju kórónu­veirunnar hafi gengið hins vegar gefið eftir. Einnig hefur innlend eftir­spurn eftir vörum og þjónustu tekið við sér á síðustu mánuðum, sem hefur leitt til meiri innflutnings og þar af leiðandi aukið hallann á vöru- og þjónustu­viðskiptum við útlönd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár