Sérfræðingar HSBC vara við verðhruni á mörkuðum

Sérfræðingur HSBC bankans í New York, Murray Gunn, segir að líkur á verulegu falli hluta­bréfa á mörkuðum séu núna tölu­verðar. Margt bendi til þess að fjár­festar, ekki síst sjóðir og stærri fjár­festar, muni selja bréf á næstu misserum með tilheyrandi verðfalls­áhrifum.

Í bréfi sem hann sendi á viðskipta­vini bankans 11. október síðastliðinn, og vitnað er til á vef Bloomberg, kemur fram að margir þættir séu að valda óróleika. Þeir eru ekki allir í Banda­ríkjunum, heldur einnig í Evrópu.

Fjár­festar eru sagðir horfa með áhyggjum á kosningarnar í Banda­ríkjunum 8. nóvember og hvaða þýðingu þær muni hafa fyrir markaði, en við forseta­skipti hafa sögulega oft komið tölu­verðar sveiflur á hlutabréfa­mörkuðum.

Hlutabréfa­vísitölur allra helstu hlutabréfa­markaða heimsins í gær lækkuðu um 0,7 til eitt prósent, og búast sérfræðingar HSBC við frekari lækkunum á næstunni og jafnvel verulegu verðfalli, eins og áður sagði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár