Vísar gagnrýni um samráðsleysi til föðurhúsanna

Sóttvarna­læknir vísar á bug gagnrýni um að hann hafi aðeins samráð við sjálfan sig. Hann á ekki von á því að leggja fram nýtt minnis­blað þar til gildandi samkomu­takmarkanir renna út. Til greina kemur að stytta einangrun smitaðra.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir segir ekkert til í því að hann hafi einungis samráð við sjálfan sig um þær ráðleggingar sem hann gefur stjórn­völdum í minnis­blöðum. Þetta kom fram á upplýsinga­fundi almanna­varna í dag þar sem Þórólfur vísaði gagnrýni um samráðs­leysi á bug og nefndi marga aðila sem hann er í sambandi við daglega, svo sem samstarfs­menn innan embætti land­læknis, almanna­varna­deild ríkis­lögreglu­stjóra, yfir­stjórn Land­spítala, farsóttar­nefnd spítalans og heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins.

Þá sagðist Þórólfur vera í góðu samráði við kollega sína á Norður­löndunum um marg­vísleg mál sem tengjast COVID-19, sem og aðila innan Sóttvarna­stofnunar Evrópu­sambandsins. „Þannig vísa ég því til föður­húsanna þeirri gagnrýni að ekkert samráð sé haft, hvorki við vísinda­menn né aðra aðila.“

Smitum fjölgar en innlögnum fækkar

1.488 smit greindust innanlands í gær og 93 á landa­mærunum. Aðeins einu sinni hafa fleiri greinst innanlands frá því að faraldurinn braust út.10.234 eru í einangrun og 12.817 í sóttkví sem þýðir að sex prósent lands­manna eru ýmist í einangrun eða sóttkví. Mesta útbreiðsla smita hér á landi sem stendur er hjá grunn­skólabörnum en allt að 50 prósent af greindum smitum eru hjá þeim hópi.

Þrátt fyrir fjölgun smita hefur sjúklingum á Land­spítala með COVID-19 fækkað, í dag eru 33 inni­liggjandi og hafa ekki verið færri síðan í byrjun mánaðarins. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél, og hafa ekki verið færri síðan í desember.

Samkvæmt nýju spálíkani sem Land­spítalinn og Háskóli Íslands kynntu í gær er von á betri tíð. „Greinileg teikn eru á lofti um að ómíkron afbrigði veirunnar valdi minni veikindum og leiði til færri gjörgæslu­innlagna,“ segir í tilkynningu farsóttar­nefnd spítalans.

Fram kom í máli Þórólfs á upplýsinga­fundinum að ómíkron-afbrigðið er alls­ráðandi hér á landi en 90 prósent smita sem greinast í samfélaginu má rekja til þess. 0,2-0,3 prósent þeirra sem smitast þurfa á spítala­innlögn að halda vegna ómíkron-afbrigðisins, saman­borið við tvö prósent vegna delta-afbrigðisins.

„Við erum að sjá fleiri inni á spítala með vægari einkenni en áður. Hins vegar þarf að hafa í huga jafnvel þó að smit verði inni á sjúkra­húsi eða greinist í skimun þá getur COVID-sjúk­dómurinn orðið alvarlegur sem leiðir til meðferðar vegna COVID,“ sagði Þórólfur.

Til skoðunar að stytta einangrun

Sóttvarna­reglur voru hertar á föstudag en Þórólfur segir að árangur sé ekki enn farinn að sjást. Reynslan hafi sýnt að um vika þurfi að líða þar til árangur hertra aðgerða fari að skila sér. Þá minnti Þórólfur á ástæðu þess að tempra faraldurinn sé fyrst og fremst til að koma í veg fyrir fjölda spítala­innlagna.

Þórólfur á ekki von á að koma með tillögu að breytingum á samkomu­takmörkunum fyrr en stuttu áður en gildandi takmarkanir renna út 2. febrúar. „En auðvitað getur það breyst.“.

Meðal breytinga sem koma til greina er að stytta einangrun smitaðra en samkvæmt núgildandi takmörkunum er einangrun smitaðra sjö dagar. „Þetta er það sem við erum byrjuð á og þurfum að fara tiltölu­lega hægt í, við höfum brennt okkur á því áður, svolítið illa, að hætta öllu of hratt og fá hlutina í bakið og ég held að það vilji það ekki nokkur maður,“ sagði Þórólfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár