Vigdís Hauksdóttir hættir á Alþingi

Vigdís Hauks­dóttir, þingmaður Framsóknar­flokks, mun láta af þing­mennsku eftir næstu þing­kosningar.

Vigdís Hauks­dóttir, þingmaður Framsóknar­flokks og formaður fjár­laganefndar, hyggst ekki gefa kost á sér í næstu þing­kosningum og lætur því af þing­mennsku. Í yfir­lýsingu frá Vigdísi segir að hún sé stolt af verkum sínum á Alþingi. „Má þar nefna Icesave og baráttuna gegn ESB umsókninni, aðförina að stjórnar­skránni, baráttuna við kröfu­hafana sem leiddu loks til skulda­niður­fellingar fyrir heimilin í landinu svo eitthvað sé nefnt.“

Hér er yfirlýsing Vigdísar í heild:

– það er vel við hæfi þegar 240 ár eru liðin frá undir­ritun sjálfstæðis­yfir­lýsingar Banda­ríkjanna að kunngera eftir­farandi:

„Í samráði við mína nánustu hef ég ákveðið að sækjast ekki eftir oddvita­sæti Framsóknar­flokksins í Reykjavík og læt ég þar með af þing­mennsku fyrir flokkinn eftir næstu alþingis­kosningar. Hætta skal hverjum leik þá hæst hann stendur – ég er stolt af verkum mínum á Alþingi – þar sem ég hef lagt allt undir fyrir land og þjóð. Má þar nefna Icesave og baráttuna gegn ESB umsókninni, aðförina að stjórnar­skránni, baráttuna við kröfu­hafana sem leiddu loks til skulda­niður­fellingar fyrir heimilin í landinu svo eitthvað sé nefnt.

Nú er framtíðin björt fyrir land og þjóð – það var ekki svo þegar ég hóf störf sem þingmaður. Á árabilinu 2009 – 2013 var þjóðinni sundrað með sífelldum átaka­málum í stað samheldni.

Síðasta stóra verkefnið mitt áður en ég læt af þing­mennsku er að leiða fram stað­reyndir um afhendingu tveggja stóru bankanna til kröfu­hafanna og upplýsa um vinnu­brögð kringum Lands­bankann og Icesave. Öll gögn liggja nú fyrir og verður upplýst um þessi mál í sumarlok.

Lífið hefur alltaf verið mér gott og fært mér nýjar og spennandi áskoranir, tækifæri og úrlausnar­efni þegar ég hef ákveðið breyta um vettvang og trúi ég að svo verði einnig nú.

Ég þakka fram­sóknar­mönnum í Reykjavík og kjósendum mínum í Reykja­víkur­kjördæmi suður fyrir stuðninginn. Einnig þakka ég mikinn og áþreifanlegan stuðning í starfi mínu frá fólki hvaðanæva af landinu og Íslendingum búsettum erlendis langt, langt út fyrir flokks­raðir. Sá stuðningur er ómetanlegur og hefur drifið mig áfram í barátt­unni fyrir land og þjóð.

Megi Ísland verða frjálst, sjálfstætt og fullvalda ríki um ókomin ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár