„Let the good times roll ...“

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Fyrir­heitna landið í Landnáms­setrinu.

Landnámssetur: Fyrirheitna landið

Sögumaður: Einar Kárason

Landnáms­setur er iðið við sinn kola að bjóða upp á sögu­stundir á Sögu­loftinu og heiður ber því fyrir að halda í sögumanns­hefðina; þetta er sennilega það í okkar menningu nútildags sem kemst næst hinni fornu kvöldvöku – afþreyingu sveita­samfélagsins sem eflaust viðgekkst frá landnámi og allt fram til fyrri hluta tuttugustu aldar – og er þá ekki einungis átt við sögu­mennskuna sjálfa sem leyfir huganum að fara á flug og sækja heim fjarlæga staði og fjarlæga tíma, það er ekki síður notaleg tilfinning að sitja undir súð Sögu­loftsins og njóta þess arkitektúrs sem minnir á hina fornu baðstofu, heimili kvöld­vökunnar. Það vantar bara að áheyrendur allir sýsli við sitt – prjóni, kembi, spinni og hekli til að menningar­arfurinn lifni við og verði að núi. En það er nú kannski að ætlast til of mikils.

Einar Kárason hefur verið óþreytandi við að segja sögur af fjöl­skyldunni í Thulekampinum á Melunum. Þrjár bækur hafa komið út – Þar sem Djöfla­eyjan rís, Gulleyjan og Fyrir­heitna landið – og tvær þær fyrstu hafa verið færðar í búning kvik­myndar, og amk. tveggja verka fyrir leikhús. Og nú flytur Einar Kárason söguna af fólkinu eins og það kemur fyrir í þriðju bókinni, Fyrir­heitna landinu, en þar er að finna söguna af því þegar Ásmundur Grettisson, Mundi, og Manni, sonur Fíu og Tóta, halda til Ameríku til að finna þá meðlimi fjöl­skyldunnar sem hafa farið að leita gæfunnar í hinu fyrir­heitna landi.

Það sem einkum einkennir Einar Kárason sem sögumann er hversu gott vald hann hefur á sambandi sínu við áheyrendur. Hann beitir af öryggi og innsæi húmornum sem haldgóðu vopni við að halda áheyrendum við efnið. Þegar hann segir frá sögu­persónum sínum hittir hann ávallt á það sem er sérkennilegt og sérstakt við þær, og hann styrkir frásögn sína með því að breyta röddinni eilítið, og þannig lifna persónurnar við fyrir augum okkar – án þess að nokkrum öðrum meðulum sé beitt en rödd og æði sögumanns. Þannig kemst Einar ekki eingöngu í gott og traust samband við áheyrendur, hann nær þannig valdi á þeim að þeir gefa sig sögunni á vald.

Þessum krafti nær Einar og heldur honum allt til enda og þarf þess vegna ekki að beita neinni tilgerð fyrir sig eða stælum – í meðförum hans rennur sagan einsog lygnt stórfljót, nýtur þeirrar epísku breiddar sem örlög þeirra Munda og Manna, Ömmu Gógó og Badda frænda og Bóbó bróður – og allra hinna – krefjast.

Það er líka annað, sem einkennir sagna­mennsku Einars Kárasonar, ekki síst þar sem hann stendur sjálfur frammi fyrir áheyrendum sínum og segir frá því fólki, sem sumir myndu nú einfald­lega kalla „white trash“ okkar Íslendingar – fólksins, sem dagaði uppi í hreysum og kofum eftir­stríðs­áranna og tókst ekki að láta drauminn um betra líf rætast og hvarf á endanum í glitter og glamúr og yfirborðs­lega afþreyingar­mennsku hinnar amerísku menningar – hann dæmir engan.

Einar Kárason hefur engann á stall, hann veltir engum niður sem ekki gæti staðið upp sjálfur. Hann hefur einlæga og djúpa samúð með sínu fólki. Hann lýsir því af nánast klínískri nákvæmni, en tekur enga siðferðis­lega afstöðu til gjörða þeirra. Hann móralíserar ekki yfir sögu­persónunum, vandar ekki um fyrir þeim í okkar eyru. Hann ber persónur sínar fram eins og þær eru – veskú, þetta eru Mundi og Manni, Amma Gógó og Baddi og Bóbó bróðir, með öllum sínum kostum og göllum. Svona eru þau – þau geta vissulega gert ýmsa vitleysuna, þau taka feil­stefnu í lífinu en það eru bara ekki allir sem kunna á kompásinn. Gjörðir þeirra, sumar hverjar alveg út í hött og hugsunar­lausar, verða að meinlegum, skringi­legum og hlálegum uppákomum og við hugsum með okkur að þetta fólk er ekki með öllum mjalla, en alls staðar skín væntumþykja og virðing sögumanns í gegn og verður að okkar afstöðu til þessara persóna.

Þetta er fallegur eigin­leiki hjá sögumanni. Slíkur sögumaður beinir ekki aðeins athyglinni að því góða sem býr í sögu­persónum hans – hann vekur einnig upp hið besta í áheyrendum sínum.

Það er full ástæða til að hvetja fólk að bregða sér í Landnáms­setur í Borgarnesi til að láta snjallan sögumann vekja upp hið besta í manni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár