Stafræn bílasala á markað í Bretlandi, selur hlutabréf fyrir 490 milljarða króna

Auto Trader, bresk vefsíða sem selur nýja og notaða bíla á netinu, heldur hlutafjár­útboð í dag samhliða því að fyrir­tækið verður skráð á markað.

Í tilkynningu frá Auto Trader vegna skráningarinnar kemur fram að verð á hlut í útboðinu sé 235 pens, sem þýðir að heildar­virði þeirra hluta sem eru boðnir til sölu er 2,4 milljarðar punda, eða 490 milljarðar króna. Um er að ræða 59 prósent hlutafjár í fyrir­tækinu og því er heildar­virði þess, miðað við hlutafjár­útboðið, um 830 milljarðar króna. Business Insider greinir frá.

Auto Trader einbeitir sér einvörðungu að bílasölu í Bretlandi og Írlandi. Vöru­merkið fyrir­tækisins er eitt það þekktasta í breska bíla­iðnaðinum, en í könnun sem HPI Brand Tracker framkvæmdi í lok síðasta árs kom fram að 92 prósent aðspurðra Breta þekktu Auto Tracker og vissu hvernig þjónustu fyrir­tækið veitir.

Auto Trader breytti um stefnu sumarið 2013 og var eftir það einvörðungu stafrænt markaðs­torg. Áður hafði fyrir­tækið rekið bílasölur. Þessi breyting hefur skilað sér í gríðarlegri aukningu á markaðs­hlutdeild í bílasölu á markaðs­svæði Auto Trader.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár