Veðmálaskuld setti Phil Mickelson í vanda

Golfarinn Phil Mickelson verður ekki lögsóttur fyrir innherja­svik, en hann þarf að endur­greiða 931 þúsund Banda­ríkjdali, eða sem nemur um 120 milljónum íslenskra króna.

Phil Mickelson hefur verið einn allra besti kylfingur heimsins undan­farinn áratug. Hann hefur þrívegis unnið Masters-mótið, og margsinnis verið í allra fremstu röð á stórmótum. En honum er fleira til lista lagt. Hann hefur skapað sér gott orð á meðal verðbréfa­miðlara fyrir að hafa gott auga fyrir viðskipta­tækifærum.

Veðmálajöfurinn Billy

Stundum hefur hann líka fengið ábendingar, sem hafa gefið honum góða ávöxtun í viðskiptum. En hann hefur líka verið áhættu­sækinn veðmála­spilari og komst í mikla skuld árið 2012 við þekktan veðmála­jöfur í Las Vegas, William Walters, sem oftast er kallaður Billy.

Þegar gera átti upp skuldina, fór Billy fram á það, í júlí 2012, að Mickelson keypti hlutabréf í fyrir­tækinu Deans Food Co. Sagði Billy að viðskiptin myndu örugglega gefa vel af sér, og að Mickelson myndi hagnast á öllu saman, og gera upp við Billy um leið.

Hlutabréfin ruku upp

Mickelson fór að ráðum hans, og keypti hlutabréf í fyrir­tækinu í þremur aðskildum viðskiptum á sama viðskipta­deginum. Aðeins viku síðar hækkaði virði bréfanna um 40 prósent, eftir að tilkynning um gott gengi þess var birt. Billy virtist hafa búið innherja­upplýsingum um að rekstur fyrir­tækisins.

Hagnaður Mickelson á viðskiptunum var 931 þúsund Bandaríkja­dalir, eða um 120 milljónir króna, samkvæmt fréttum Bloomberg.

Bandarísk yfirvöld hófu árið 2013 rannsókn á viðskiptunum, en árið 2014 voru sagðar fréttir af því að Mickelson, veðmála­jöfurinn Billy og stjórnar­formaður Deans Food Co., Tom C. Davis, væru til rann­sóknar vegna innherja­viðskipta. Rannsókn málsins leiddi til þess að Billy og Davis voru ákærðir, og játa Davis sök í síðustu viku.

Ekki þótti sannað að Mickelson hefði brotið af sér, en hagnaður hans var gerður upptækur, þar sem viðskiptin fóru fram á grund­velli ólöglegra innherja­upplýsinga.

Mickelson hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu, og létu lögfræðingar hans í ljósi óánægju með þau málalok að hann þyrfti að skila hagnaðinum af viðskiptunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár