„Ýtt undir staðalmyndir um örorkulífeyrisþega sem byrði og svindlara“

Formaður Öryrkja­bandalags Íslands gagnrýnir Vigdísi Hauks­dóttur, formann fjár­laganefndar, harðlega vegna rang­færslna um málefni bótaþega

Ellen Calmon, formaður Öryrkja­bandalags Íslands, gagnrýnir Vigdísi Hauks­dóttur, formann fjár­laganefndar, harðlega vegna rangra full­yrðinga um málefni bótaþega. Stundin greindi frá því á miðvikudag að Vigdís hefði hallað réttu máli í viðtali við frétta­stofu RÚV daginn áður. Í grein Stundarinnar voru nokkrar rang­færslurnar hraktar en einnig vísað í pistil eftir Stefán Ólafsson, félagsfræði­prófessor við Háskóla Íslands sem rannsakað hefur félags­lega kerfið á Íslandi töluvert og borið það saman við velferðar­kerfi annarra Norður­landaþjóða.

Ellen bendir á að í viðtalinu hafi þing­maðurinn staðhæft að lauslega áætlað næmu bótasvik fjórum til fimm milljörðum á ári. „Alls er óljóst á hverju Vigdís byggir þessar tölur. Til saman­burðar eru áætlaðar upphæðir í skýrslu Ríkis­endur­skoðunar, Eftirlit Trygginga­stofnunar ríkisins með bóta­greiðslum, mun lægri eða á milli 2-3,4 milljarðar króna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár