Hagnaður BP fellur með lægra olíuverði

Olíu­risinn BP ræðst í aðhalds­aðgerðir til að mæta lægra olíuverði en gerir þó ráð fyrir að verð hækki á ný. Árið 2017.

Lágt olíuverð hefur haft gríðarleg áhrif á rekstur olíu­risans BP. Nýlega birt árshluta­uppgjör félagsins sýnir 1,8 milljarða dollara hagnað á þriggja mánaða tímabili, jafnvirði um 230 milljarða króna, saman­borið við um þriggja milljarða dollara hagnað ári áður. Samhliða uppgjörs­tilkynningu boðar fyrir­tækið miklar aðhalds­aðgerðir, þar sem draga á úr kostnaði um allt að sex milljarða dollara fyrir árið 2017.

Fleira hefur haft áhrif á afkomu og rekstur BP en olíuverð. Í júlí síðastliðnum komust strand­ríki Banda­ríkjanna við Mexíkóflóa að samkomu­lagi við BP um skaða­bóta­greiðslu olíu­félagsins fyrir olíuleka­slysið í flóanum árið 2010. Skaða­bæturnar jafngilda um 2.500 milljörðum króna og greiðist upphæðin á næstu átján árum.

Verð á olíu hefur lækkað gríðar­lega á síðasta eina og hálfa ári. í júní stóð verð á olíufati í um 115 dollurum á hrávöru­markaði en er nú 60 prósent ódýrara og kostar um 47 dollara. Verð­lækkanir, og sú staðreynd að verð hefur haldist lágt, er helst rakið til minnkandi eftir­spurnar frá Kína, metframleiðslu olíu í Banda­ríkjunum og ákvörðunar Sádi Arabíu um að draga ekki úr fram­leiðslu.

Í uppgjörs­tilkynningu BP er því spáð að olíuverð á mörkuðum verði 60 dollarar árið 2017, samkvæmt frétt Business Insider um málið. Spáin og áætlun um að draga úr kostnaði fór vel í fjárfesta á hlutabréfa­markaði í dag og hækkuðu um rúmlega tvö prósent við opnun markaða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár