BP þarf að borga 18,7 milljarða dala skaðabætur fyrir olíuslys

Strand­ríki Banda­ríkj­anna við Mexík­óflóa hafa kom­ist að sam­komu­lagi við olíu­fé­lagið BP um að breska olíu­fé­lagið borgi 18,7 millj­arða banda­ríkja­dala á næstu 18 árum í skaða­bætur fyrir Deepwater Horizon slysið árið 2010. Þetta var til­kynnt í dag í New Orleans í Luoisi­ana.

Skaða­bæt­urnar jafn­gilda um það bil 2.479 millj­örðum íslenskra króna á núver­andi gengi en til sam­an­burðar var verg lands­fram­leiðsla Íslands árið 2014 rúm­lega 1.993 millj­arðar króna.

Olíu­meng­unin á Mexík­óflóa, í kjöl­far þess að Deepwater Horizon-olíu­bor­p­all­ur­inn sprakk í loft upp, er sú allra mesta í sögu olíu­vinnslu úr set­lögum undir sjáv­ar­máli. Talið er að umfang meng­un­ar­innar hafi verið um það bil 8 til 31 pró­sent meira en í Ixtoc I-slys­inu 1979, en það er jafnan talið næst stærsta olíuslys sög­unnar.

Bor­p­all­ur­inn sem var í eigu BP sökk eftir að spreng­ing varð um borð með þeim afleið­ingum að ell­efu starfs­menn fór­ust og bor­holan spúði olíu upp úr hafs­botn­inum í 87 daga áður en henni var lokað um mitt sumar 2010. Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum telja að ígildi 4,9 milljón olíu­tunna hafi farið í sjó­inn, eða því sem nemur inn­flutn­ingi Íslands af olíu allt árið 2011. Enn er talið að olía leki fram hjá „tapp­anum“ sem settur var til að stöðva flæðið úr hafs­botn­inum.

BP greiðir nærri 50 milljarða dala


Á þeim fimm árum sem liðin eru síðan slysið varð hefur BP eytt um 30 millj­örðum banda­ríkja­dala í hreinsun á slys­stað og miska­bætur vegna tjóns sem hlaust af slys­inu. Fyr­ir­tækið hefur einnig við­ur­kennt sekt sína fyrir dóm­stólum og reist sokk­inn bor­p­all­inn af hafs­botn­inum. BP hefur þó vísað á verk­taka­fyr­ir­tækin Halli­burton og Transocean sem ráku bor­p­all­inn og sagt þau bera jafn mikla ábyrgð á slys­inu.

Skaða­bæt­urnar sem BP mun borga á næstu 18 árum er nið­ur­staða máls­höfð­unar strand­ríkj­anna Alabama, Flórída, Louisiana, Miss­issippi og Texas auk alrík­is­stjórn­ar­innar á hendur BP. Síð­ast­liðið haust sagði New York Times frá því að upp­hæðin gæti orðið allt að 18 millj­arðar dala. BP hafði aðeins lagt til hliðar 3,5 millj­arða til að borga sig frá lög­sókn­inni.

„Þessi nið­ur­staða setur tón­inn,“ lét Robert Bentley, rík­is­stjóri í Alabama, hafa eftir sér þegar sam­komu­lagið var kynnt. „Upphæðin er til þess að koma til móts við ríkin vegna þess tjóns sem orðið hefur, bæði hvað varðar umhverfið og efna­hag­inn.“

[caption id="" align="alignnone" width="1071"] Magnið af olíu sem fór í sjó­inn jafn­gildir því sem Íslend­ingar flytja inn af olíu á ári, eða um 4,9 milljón tunnur. (Mynd: EPA)[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár