Andrés Ingi og Rósa Björk fóru gegn flokkslínunni og studdu vantraust

Það er ekki nóg að stofna starfs­hópa til að skapa traust á stjórn­málunum, sagði Rósa Björk Brynjólfs­dóttir sem studdi vantrausts­tillögu Pírata og Samfylk­ing­ar­innar gegn dómsmála­ráðherra vegna Lands­réttar­málsins.

Rósa Björk Brynjólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson, þingmenn Vinstri grænna, voru einu stjórnar­liðarnir sem studdu vantrausts­tillögu stjórnar­andstöðunnar gegn Sigríði Andersen dómsmála­ráðherra. Ráðherra stóð af sér vantrausts­tillöguna sem var felld með 33 atkvæðum gegn 29, en einn þingmaður sat hjá. 

„Sumir vilja meina að siðferði og rétt breytni skipti litlu máli í stjórn­málum. Ég er ósammála því. Þessi afstaða mín var ein af ástæðum þess að ég studdi ekki stjórnar­samstarf Vinstri grænna, Fram­sóknar og Sjálfstæðis­flokks þegar til þess var stofnað,“ sagði Andrés Ingi þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu.

„Á þeim tíma taldi ég að nóg væri af dæmum um mál sem sýndu að ekki væri hægt að treysta samstarfs­flokkunum. Það var sérstak­lega framganga Sjálfstæðis­flokksins í málum sem tengdust uppreist æru, harðnandi afstaða flokksins í útlendinga­málum og loks skipan dómara í Landsrétt.“

Hann sagði Sigríði Andersen hafa sýnt að hún væri ekki traustsins verð. „Vinnu­brögðin sæma ekki ráðherra og almenningur getur ekki treyst því að vandað sé til verka til að tryggja óháða dómstóla. Mín afstaða er einföld. Ég styð ekki áfram­haldandi setu dómsmála­ráðherra í ríkis­stjórn. Ég segi já.“

Rósa Björk gagnrýndi Sigríði Andersen dómsmála­ráðherra hafa veitt skipun nýrra dómara við Landsrétt í farveg tortryggni og vantrausts.

„Það blasir við öllum. Líka æðsta dómstigi Íslands, Hæstarétti sem stað­festir þetta með skýrum hætti í dómi sínum um skipunina í desember,“ sagði hún.

„Traust á stjórn­völdum vinnst ekki með því að stofna starfs­hópa. Traust til stjórn­valda er áunniðmeð sanngirni, virðingu og heiðar­legum vinnu­brögðum, ekki vinnu­brögðum sem veikja dóms­kerfið eða réttar­kerfið í heild sinni og vekja athygli á alþjóða­vísu eða kosta okkur formúu úr sameiginlegum sjóðum. Traustið verður að vinnast með verkum en ekki slælegum embættis­færslum sem enginn ber pólitíska ábyrgð á. Hér verður ráðherra dómsmála í landinu að bera pólitíska ábyrgð á sínum embættis­verkum.“ Rósa Björk sagðist styðja vantrausts­tillöguna, því hún vildi ekki fúin og trénuð vinnu­brögð, heldur ný og betri vinnu­brögð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár