Bíl ekið inn í hóp af fólki í London

Margir eru sagðir hafa slasast, en ekki liggur fyrir hver tildrög þessa atburðar voru eða hvort einhver lét lífið.

Bifreið var ekið inn í hóp gangandi vegfarenda í Finsbury Park-hverfinu, við Seven Sisters Road, í norður­hluta London skömmu eftir miðnætti.

Í tilkynningu frá lögreglunni í London er atvikið sagt alvarlegt og að margir hafi slasast. Ekki er vitað á þessari stundu hvort einhver lét lífið, eða hvernig það komi til að bifreiðinni var ekið á hóp fólks.

Samkvæmt umfjöllun BBC og The Independent eru lögreglan og sjúkra­flutninga­menn að störfum á vettvangi. Ekki hafa komið fram upplýsingar að um hryðju­verk hafi verið að ræða, en samkvæmt lýsingum fjölmiðla og fólks á vettvangi, í gegnum samfélags­miðla, þá eru aðstæðurnar „skelfilegar“ á vettvangi og fjöldi fólks alvarlega slasaður. Hópur múslíma var að koma frá bænastund úr mosku í nágrenninu þegar atvikið varð.

Einn hefur verið hand­tekinn.

Uppfært 9:17: Tveir eru mjög al­var­lega særðir eft­ir árásina. Einn lést og tíu særðust þegar 48 ára gam­all maður ók sendi­bif­reið inn í hóp fólks á gang­stétt skammt frá mosku. Öll fórn­ar­lömb árás­ar­inn­ar eru mús­lím­ar. Um hryðjuverka­árás, sem beindist gegn múslimum, er að ræða, að sögn lögreglu­yfirvalda í London.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár