Áfangastaðir innanlands grænka

Náttúru­perlur Íslands fá ekki frí í sumar þótt erlendum ferða­mönnum hafi snar­fækkað. Helstu ferðamanna­staðir innan frið­lýstra svæða eru þó mun betur í stakk búnir til að taka við ágangi en áður vegna uppbyggingar undan­farinna ára.

Foss ofan við Skógafoss þar sem gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls hefst. Á síðasta ári þurfti að loka hluta af Skógaheiði ofan við Skógafoss vegna ágangs um svæðið.
Foss ofan við Skóga­foss þar sem göngu­leiðin yfir Fimm­vörðu­háls hefst. Á síð­asta ári þurfti að loka hluta af Skóga­heiði ofan við Skóga­foss vegna ágangs um svæðið. Mynd: Eyrún Magnúsdóttir

Árið 2016 voru sex ferðamanna­staðir innan frið­lýstra svæða á rauðum lista Umhverfis­stofnunar, sem þýðir að þeir voru í verulegri hættu hvað varðar verndar­gildi vegna ágangs, en á árinu 2019 voru aðeins tveir staðir á rauða listanum. Aðrir höfðu náð að komast af listanum vegna þess að áhersla var lögð á uppbyggingu þeirra og verndun. Þá hefur fjölgað á sérstökum grænum lista en sá listi geymir þá ferðamanna­staði sem standast vel álag og hafa sumir verið byggðir sérstak­lega upp til að taka við miklum fjölda gesta.

Íslendingar ferðast meira um landið nú en fyrri ár, enda færri á leið til útlanda en vanalega. Undan­farin ár hefur mikið verið fjallað um ágang á ferðamanna­stöðum og áhyggjur verið viðraðar af því að dýrmætar perlur nátt­úrunnar verði fótum troðnar vegna mann­mergðar. En einmitt vegna mikillar ásóknar ferða­manna hefur verið ráðist í uppbyggingu innviða á mörgum af helstu ferðamanna­stöðum innan frið­lýstra svæða. Umhverfis­stofnun hvetur landsmenn raunar alveg sérstak­lega til þess að ferðast um friðlýst svæði.

Skógafoss ekki lengur í hættu

Ástand frið­lýstra svæða, sem geyma helstu náttúru­perlur landsins og fjölsótta sem fáfarna ferðamanna­staði, er metið reglulega af Umhverfis­stofnun. Sé áfanga­staður eða svæði talið í sérstakri hættu er það sett á rauðan lista svo hægt sé að „forgangs­raða kröftum og fjármunum til verndunar,” eins og segir í nýjustu skýrslu stofnunarinnar um ástandsmat ferðamanna­staða innan frið­lýstra svæða. Rauði listinn er nú gefinn út árlega, en var áður gefinn út annað hvert ár. Appelsínu­gulur listi er næsta stig fyrir ofan, þá er aðeins hluti svæðis talinn í hættu.

Á árunum 2012-2016 rötuðu vinsælar perlur eins og Skógafoss, Friðland að Fjalla­baki og Geysir á áður­nefndan rauðan lista og voru þannig talin „svæði í hættu.” Þessi svæði hafa þó öll náð að komast af rauða listanum samhliða aukinni uppbyggingu innviða.

Alls eru 106 áfanga­staðir ferða­manna innan frið­lýstra svæða metnir í ástands­skýrslunni. Af þeim eru tveir staðir sem rata á rauða listann miðað við stöðu mála 2019 og eru þannig metnir sem áfanga­staðir í hættu: Dettifoss (að austan­verðu) og Rauðu­fossar innan Friðlands að Fjalla­baki.

Friðlýst svæði eða áfanga­staðir innan þeirra sem talið er að geti tapað verndar­gildi sínu verði ekki gripið til aðgerða fara á appelsínu­gulan lista. Göngu­leiðin vinsæla Lauga­vegurinn var til að mynda á appelsínu­gulum lista árið 2018 og einnig Skóga­heiði við Skógafoss, sem er upphaf göngu­leiðarinnar um Fimm­vörðuháls, en báðar leiðirnar eru komnar af þeim lista í nýjustu skýrslunni sem miðar við stöðu mála 2019.

Fleiri rata á grænan lista

Tekinn var upp sérstakur grænn listi fyrir ferðamanna­staði innan frið­lýstra svæða árið 2018 og hefur fjölgað á honum milli ára. Á árinu 2018 rötuðu 23 staðir á listann en þeim fjölgar í 34 á árinu 2019. Grænir áfanga­staðir teljast þeir sem taldir eru standast vel það álag sem er á þeim. Bæði er þar að finna staði sem hafa sérstak­lega verið byggðir upp til að geta tekið á móti miklum fjölda gesta, eins og til að mynda Dynjandi og áfanga­staðir innan Þjóð­garðsins Snæfells­jökuls en einnig fáfarnari slóðir svo sem Veiðileysu­fjörð á Horn­ströndum.

Meðal nýrra staða á græna listanum árið 2019 eru Öndverðarnes innan Þjóð­garðsins Snæfells­jökuls, Þríhnúka­gígar, Hraun­fossar og Arnar­stapi. Aðrir staðir sem ná á græna listann bæði 2018 og einnig 2019 eru Dynjandi, Dimmu­borgir, Grábrók, Búðahraun og Húsafell svo eitthvað sé nefnt.

Ferðamenn eigi stefnumót við náttúruna

Forstjóri Umhverfis­stofnunar hvetur þá sem eru á ferð um landið til að heimsækja friðlýst svæði. „Það var full þörf á því að byggja upp innviðina og við erum klárlega að njóta þess núna að gert hefur verið átak í þessum efnum undan­farin ár,” segir Sigrún Ágústs­dóttir forstjóri stofnunarinnar.

Hún bendir á að stofnunin hafi ekki þurft að loka neinu svæði í ár á grund­velli laga um náttúru­vernd eins og gerst hafi síðustu ár. Í fyrra þurfti til að mynda að loka Fjaðrár­gljúfri tíma­bundið og einnig Skóga­heiði ofan við Skógafoss. Engar lokanir nú segir hún að séu ekki aðeins vegna færri ferða­manna heldur vegna þess að ferðamanna­staðirnir séu einfald­lega betur í stakk búnir til að taka við fólki en áður vegna sterkari innviða.

„Almennt þá er aðstaðan til að taka við mikilli umferð fólks um friðlýst svæði orðin miklu betri. Það er líka skemmtilegt að sjá hvað ferða­þjónustan víða um land hefur gert mikið, þetta spilar mjög vel saman. Nú er hægt að njóta þess að skoða náttúru­perlu og fara svo líka á einhvern góðan veitinga­stað í nágrenninu til dæmis, það er víða svo margt í boði. Ég held að Íslendingar séu að fá mjög gott frí á Íslandi í sumar, í boði nátt­úrunnar.”

Stefnumót við náttúruna er nafn á fræðslu- og kynningar­átaki sem Umhverfi­stofnun hefur blásið til í því skyni að hvetja fólk til að sækja náttúru­perlur innan frið­lýstra svæða heim. „Við viljum með því benda Íslendingum sérstak­lega á þessa staði sem við höfum verið að vinna hörðum höndum á til að byggja upp innviðina,” segir Sigrún. Umræddir innviðir vísa bæði til uppbyggingar á borð við betri göngu­stíga og bættra merkinga en einnig aukinnar land­vörslu og fræðslu.

Víða er nú hægt að fara í göngu­ferðir undir leiðsögn landvarða á frið­lýstum svæðum og hafa þær að sögn Sigrúnar hafa hlotið góðar viðtökur. Hægt er að fá upplýsingar um fræðslu­göngurnar undir aðganginum Náttúru­verndar­svæði á Facebook og einnig heldur Umhverfis­stofnun úti Instagram-reikningi undir sama nafni í því skyni að upplýsa almenning betur um friðlýst svæði á borð við Friðland að Fjalla­baki, Þjóð­garðinn Snæfells­jökul og fleiri og fleiri, og þau undur sem þessi stór­brotnu svæði hafa upp á að bjóða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár