Líka saga um okkur …

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fór að sjá Kæru Jelenu eftir Ljúdmílu Razúmovskaja í Borgar­leikhúsinu.

Borgarleikhúsið: Kæra Jelena

Höfundur: Ljúdmíla Razúmovskaja

Þýðing: Ingibjörg Haralds­dóttir/Kristín Eiríks­dóttir

Leik­stjórn: Unnur Ösp Stef­ánsdóttir

Leikmynd og búningar Filippía I. Elís­dóttir

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist: Valgeir Sigurðsson

Hljóð: Þórður Gunnar Þorvaldsson

Leikgervi: Elín Gísla­dóttir

Leikarar: Halldóra Geirharðs­dóttir, Aron Már Ólafsson, Þuríður Blær Jóhanns­dóttir, Haraldur Ari Stef­ánsson, Sigurður Þór Óskarsson.

Mennta­skóla­kennarinn Jelena undirbýr kósíkvöld, gengur hógværlega, snyrti­lega og skipulega frá öllu, hitar sér te, setur plötu á fóninn og sest niður með bók. Kyrrðin ríkir, Jelena á afmæli, en það vitum við ekki – ekki enn. Allt í einu er kyrrðin rofin, dyra­bjalla hringir og fjögur vingjarnleg ungmenni birtast allsendis óvænt, færa afmælis­barninu gjöf, syngja afmælis­sönginn og fagna sinni kæru kennslu­konu. Þau eru að útskrifast og vilja gleðja bestu kennslu­konuna sína áður en leiðir skilja og þau halda út í lífið.

Fljótlega kemur þó í ljós að sitthvað fleira býr undir hjá krökkunum. Þeim hefur gengið illa á stærðfræði­prófi og það mun hafa áhrif á framtíð þeirra og frama. Lausn á þeim vanda er þó í sjónmáli: ef kæra Jelena lánar þeim lykilinn að skápnum þar sem prófúrlausnir eru geymdar svo þau komist þar inn og geti skipt út röngum svörum fyrir rétt – sem þau eru þegar búin að afla sér – þá er málið dautt og enginn verður fyrir neinum skaða.

Jelena neitar. Hún er prinsíp­manneskja. Svona lagað gerir maður ekki. Og hún verður eðlilega algerlega bit á nemendum sínum, að þeim skuli detta annað eins í hug, fyrir nú utan það að þau skuli trúa því upp á hana að taka þátt í svona svindli.

En hvað sem Jelena heldur að nemendur hennar trúi upp á hana, þá er engum vafa undirorpið að þeir eru til ýmislegs vísir sem hún hefði aldrei trúað upp á þá. Þau Valdi, Lilja, Pétur og Viktor hefja líkt og forlaga­knúinn leik sem gengur út á það eitt að brjóta andspyrnu Jelenu niður og fá hana til að afhenda lykilinn; Jelena sjálf er harðákveðin í að standast árásir ungmennana enda eru hennar prinsíp göfug og góð og skulu ekki brotin. Hennar prinsíp eru jafnrétti og heiðar­leiki – sem gerir hana svo algerlega gamaldags að hún reynist auðveldur skotspónn fyrir þá kynslóð sem hræðist ekkert og verður einna skýrast í uppgjöri milli Jelenu og Lilju þar sem Jelena spyr hreint út: “Af hverju eruð þið ekki hrædd við neitt?” og svar Lilju er jafn harmrænt og það er grát­broslegt: „Ég veit það ekki!“ Í því atriði flettir svo Lilja ofan af Jelenu og það er í samræmi við það sem á eftir fer, þegar kemur að hápunkti sýningarinnar – en hér verður ekki uppljóstrað hvernig fer að leiks­lokum enda óhætt að segja að Kæra Jelena er að sumu leyti verk um siðferði, en að öðru leyti vissulega spennu­saga sem heldur áhorfanda í helgreipum allt til loka.

Jelena er í öruggum og þraut­þjálfuðum höndum Halldóru Geirharðs­dóttur sem túlkar menntaskóla­kennslu­konuna trúverðug­lega. Í meðförum hennar verður Jelena enginn engill, þvert á móti – þegar Valdi, aðal­hvatinn að árásinni á Jelenu, býður henni sjúkra­heimilis­vist fyrir aldraða og veika móður hennar verður ekki betur séð en Jelena sé hreinlega til í að ræða málin á þeim grund­velli. Prinsíp­manneskjan gefur í skyn að samningur sé í boði. Þróun atburða verður þó til þess að þetta tilboð er ekki frekar rætt, en óneitanlega hefur nokkur skuggi fallið á Jelenu – sem gerir hana bæði mannlegri og skiljanlegri. Halldóra Geirharðs­dóttir vinnur full­kominn leiksigur í hlutverki hinnar siðmenntuðu kennslu­konu Jelenu.

Nemendurnir eru ekki síður vel leiknir af fjórum leikurum af yngri kynslóðinni, sem hafa sannað sig á síðustu árum: Aron Már Ólafsson leikur Valda, sem á frum­kvæðið að því að falast eftir lyklinum dýrmæta, hann er siðblindan uppmáluð og skilar því með virktum og er einmitt svona ofur­geðfelldur, óhugnanlegur náungi sem maður vill hreint ekki hafa að óvini og jafnvel enn síður að vini.

Hlutverk Lilju er í höndum Þuríðar Blævar Jóhanns­dóttur og hún skilar Lilju á áhrifa­mikinn hátt. Það er enginn vandi að finna til samúðar með þessari stúlku sem hefur barist áfram þrátt fyrir að búa við verri kjör en félagar hennar, búandi með einstæðri móður sinni, borin áfram af draumum sem má efast um að verði nokkurn tímann að veruleika – og kannski einmitt þess vegna lætur hún leiða sig svo langt í þeim hættulega og viðurstyggilega leik sem Valdi leik­stýrir.

Haraldur Ari Stef­ánsson leikur Pétur, þann sem er í mestri þörf fyrir leið­réttingu á einkunnum og það er fyrir hann sem öll atburða­rásin er sett af stað. Hann er auk þess kærasti Lilju og um það má segja að hann bregst henni verst. Haraldur Ari fer vel með hlut­verkið og tekur vel utanum umkomu­leysi þessa ístöðu­litla drengs .

Viktor er lúserinn í þessum hóp og er undur­samlega fallega leikinn af Sigurði Þór Óskars­syni. Þessi drengur er ljúfur og blíð­lyndur inn við beinið, en átakanlega aumkunarverður. Hann er heltekinn af alkóhólisma og svo veik­lundaður og örgeðja að hann á sér enga framtíð nema hann taki sig taki. Samt er alveg auðséð að hann mun sennilega aldrei taka sig því taki, hans örlög eru líkt og endanlega ráðin. Og það er sárt, ákaflega sárt, vegna þess að undir lokin, þegar allt er um seinan, örlög ráðin, spilið búið, er það þó hann sem virðist eiga þann kærleika innanbrjósts sem hefði annars getað gefið einhverja von.

„ … sem hefði annars getað gefið …“ – svona verður ekki sagt nema um harmleik sé að ræða og víst er Kæra Jelena harm­leikur fremur en spennu­verk. Sú þraut, sem persónur verksins takast á um er í raun óleysanleg og texti Ljúdmílu Razúmovskaju nær vel utan um það, togstreitan er ósvikin, hann nær tökum á áhorf­endum og heldur þeim í helgreipum allt til loka.

Það fer vel á að gefa þessum harmleik rými á Litla sviði Borgar­leikhússins, og skapa þá miklu nánd við áhorf­endur og gert er. Rýmið er líka vel notað, bæði til að sýna hinn lokaða heim Jelenu, en ekki síður í stað­setningum og hreyfingum og ber góðri leik­stjórn vitni. Þá er ekki síður um að ræða góða persónu­leikstjórn, Unnur Ösp treystir sínum leikurum, þeir fá að vinna hlutverk sín á eigin forsendum og það er óhætt að segja, að allur leik­hópurinn vinni leiksigur, hvor fyrir sig og sameiginlega!

Tónlistin og hljóð­myndin fylgir leik­stjórnar­lögninni fast eftir, þótt megi kannski deila um lok sýningarinnar – það er útskýrt í viðtali í leikskrá hvers vegna það lokalag sem leikið er var valið, en hefði ekki verið einfald­lega sterkara að ljúka sýningunni í þögn?

Texti Ljúdmílu Razúmovskaju er það klassískur að hann þolir vel tilfærslu í tíma og rúmi. Þýðing Ingibjargar Haralds­dóttur, sem hefur verið yfirfarin og löguð að nútíma af Kristínu Eiríks­dóttur ýtir undir þann skilning, að þeir mannlegu breysk­leikar sem fjallað er um í Kæru Jelenu blómstri ekki eingöngu í því samfélagi þar sem verkið var upphaf­lega skrifað og síðar bannað, þeir blómstri líka hjá þjóð eins og okkur Íslendingum.

Svo nefnd sé ekki nema spill­ingin af þeim mann­legu veik­leikum sem hér er einn af drif­kröftum sög­unn­ar, þá má auð­veld­lega taka per­sónur leiks­ins í Kæru Jel­enu og raða þeim á hið íslenska flokka­kerfi, og ef byrjað er á slíkum leik á annað borð – sem sjálf­sagt er að gera, því saga Jel­enu og nem­enda hennar er að sumu leyti tíma­laus – má upp­götva sér til nokk­urs óhugn­aðar að Kæra Jel­ena er líka saga um okkur Íslend­inga og er að ger­ast allt í kringum okk­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár