„Þar koma samningsmarkmiðin fram svart á hvítu“

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir utan­ríkis­ráðherra segir samnings­markmið Íslands í mögulegum aðildar­viðræðum við Evrópu­sambandið liggja fyrir.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Utan­rík­is­ráð­herra birti grein um hvað atkvæða­greiðslan í ágúst þýðir. Mynd: Golli

„Sumir fjöl­miðlar hafa lagt sig fram um að mála þetta ferli sem eitthvað annað en það er. Ég ætla ekki að eyða dýrmætum tíma kjósenda í að eltast við hvert einasta slíkt skot. Þjóðin á betra skilið en þras. Hún á skilið stað­reyndir.“

Þetta skrifar Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir utan­ríkis­ráðherra í grein á Vísi í dag. Greinin ber yfir­skriftina „Aðildar­viðræður eru samninga­viðræður“ og í henni leggur hún áherslu á að þjóðar­atkvæða­greiðslan 29. ágúst snúist ekki um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópu­sambandið heldur hvort eigi að ganga til samninga­viðræðna. Samningur yrði í kjölfar viðræðna lagður undir aðra þjóðar­atkvæða­greiðslu.

„Þetta er grundvallar­atriði sem hefur því miður kafnað í hávaðanum undan­farnar vikur,“ skrifar hún. „Í stað þess að ræða inntak málsins, hvað við ætlum okkur að fá út úr slíkum viðræðum og hvernig við ætlum að verja íslenska hagsmuni, hefur umræðan aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúr­snúninga.“

…
Kjósa
77
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SH
    Sigurður Halldórsson skrifaði
    JÁ GEFUR OKKUR tækifæri sem vert er að grípa til SJÁ hvað getur orðið okkur sem þjóð FARSÆLLA til framtíðar!
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Takk fyrir það.

    JÁ til að SJÁ hvernig okkur tekst til.

    Annað væri heimska eða óheiðarleiki nema hvort tvegga væri.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ESB-aðild

InnlentHorft til Evrópu

„Eins spennandi og það gæti orðið“

Mjótt er á munum í þjóð­art­kvæða­greiðslu um hvort Ísland eigi að fara í aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið. Halldór Benjamín Þorbergsson fagnaði á meðan nei var yfir og sagði að í dag hafi tæplega 300 mætt til þess að hringja út, 19 hafi hringt yfir 400 símtöl hver og einn yfir 700 símtöl. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að búið sé að kljúfa þjóðina og Reykjavík frá lands­byggðinni. Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir segir að sama hvernig fer þá séum „við öll í sama liði“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár