Leyfi Eykon til olíuleitar á Drekasvæðinu afturkallað

Orku­stofnun hefur aftur­kallað leyfi Eykon Energy til olíu­leitar og vinnslu á Dreka­svæðinu á þeim grund­velli að félagið hafi hvorki tæknilega né fjárhags­lega getu til að takast eitt á við kröfur og skilmála leyfisins eða vera rekstrar­aðili þess.

Orku­stofnun hefur aftur­kallað leyfi Eykon Energy til olíu­leitar og vinnslu á Dreka­svæðinu á þeim grund­velli að félagið hafi hvorki tæknilega né fjárhags­lega getu til að takast eitt á við kröfur og skilmála leyfisins eða vera rekstrar­aðili þess. Þannig uppfylli félagið ekki skilyrði kolvetnis­laga. Þetta kemur fram á heimasíðu Orku­stofnunar.

Félögin CNOOC Iceland ehf. og Petoro Iceland AS hafa áður dregið sig út úr leyfi til olíu­leitar og vinnslu á svæðinu.

Í fréttinni segir að stofnunin telji sér ekki heimilt að verða við þeirri ósk Eykon Energy ehf. að félagið fái sérstakan frest til að finna sér nýjan rekstrar­aðila til samstarfs um olíuleit á Dreka­svæðinu. Það bryti í bága við jafnræðis­reglu stjórnsýslu­réttarins og ákvæði kolvetnis­laga, að veita nýjum aðila forgang að sérleyfi á Dreka­svæðinu, án auglýsingar. Að jafnaði skal auglýsa eftir umsækjendum, áður en leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetnum er veitt.

Orku­stofnun hefur í bréfi sínu í dag til Eykon Energy ehf. bent á að finni félagið samstarfs­aðila eða ef aðrir mögulegir áhuga­aðilar um leit og vinnslu kolvetna á Dreka­svæðinu óski þar eftir sérleyfi, muni Orku­stofnun ígrunda að birta auglýsingu um skilmála nýrra leyfa á lögform­legan hátt. Svæðið yrði þá opið til umsókna, í samræmi við ákvæði kolvetnis­laga, án sérstaks útboðs.

Í samtali við mbl.is í janúar á þessu ári sagði Heiðar Guðjónsson, fjár­festir og stjórnar­formaður Eykon, að samstarf félags hans, CNOOC og Petoro hafi verið til fyrir­myndar, þar til tvö síðarnefndu fyrir­tækin drógu sig út úr leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetni á Dreka­svæðinu.

Á þessum tíma tilkynnti Orku­stofnun Eykon niður­stöðu sína, sem nú hefur verið staðfest og leyfið aftur­kallað. Heiðar sagði í janúar að Eykon hafi þá þegar byrjað hafa samband við stór­fyrirtæki í olíuleit og fyrir­tækið sé ósammála mati Orku­stofnunar að það geti ekki haldið áfram með leyfið. „Mér finnst Orku­stofn­un vera að reyna að loka þessu máli frek­ar en að leyfa því að halda áfram sem mér fynd­ist heppi­legra fyr­ir land og þjóð,“ sagði Heiðar og sagðist ekki ætla að leggja árar í bát - hann væri alltaf bjartsýnn.

Þrjú sér­leyfi voru árið 2013 veitt til leit­ar og vinnslu á olíu á Dreka­svæðinu. Þeim hefur nú öllum verið annað hvort skilað til stjórn­valda eða aftur­kölluð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár