Fréttablaðið ekki lengur borið í hús

Útgáfa Frétta­blaðsins tók stakka­skiptum um áramót en hætt hefur verið að dreifa því í hús. Þess í stað verður blaðið aðgengilegt í verslunum á höfuð­borgar­svæðinu og Akureyri.

Bjartsýnn
Bjart­sýnn Jón Þórisson, for­stjóri Torgs og fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, segir enga ástæðu að ætla að lest­ur­inn muni drag­ast saman, þó frídreif­ingu blaðs­ins í hús sé hætt. Mynd: Fréttablaðið / Anton Brink

Frétta­blaðið hefur verið borið í hús í síðasta sinn en nú um áramót varð grundvallar­breyting á útgáfu þessa rúmlega tveggja áratuga gamla fríblaðs. Í stað frídreifingar á höfuð­borgar­svæðinu og á Akureyri verður blaðið skilið eftir í bunkum í verslunum og ýmsum þjónustu­stöðum, svo sem sund­laugum og heilbrigðis­stofnunum. Þetta kemur fram á vef Frétta­blaðsins í dag. 

Haft er eftir Jóni Þóris­syni, for­stjóra Torgs, út­gáfu­fé­lags Frétta­blaðsins, DV og  Hring­brautar, að dreifingin sé óhemju kostnaðarsöm, en hann tiltekur líka að horft hafi verið til þess að dreifingunni fylgdi óþarfa sóun. „Það er í takti við vaxandi um­hverfis­vitund að lág­marka kol­efnis­spor í okkar starf­semi,“ er haft eftir Jóni á vef Frétta­blaðsins. 

Hann segist ekki eiga von á því að lesturinn muni dala við þessa breytingu. „Það er engin á­stæða til að ætla annað en lesturinn gæti orðið að minnsta kosti sam­bæri­legur eftir þessa breytingu,“ segir hann við Frétta­blaðið og vísar til þess að aukning varð á lestri blaðsins síðustu tvo mánuði. Samkvæmt lestrar­könnun Gallup lesa um 28 prósent lands­manna blaðið en 27 prósent lestur mældist í september. 

Þrátt fyrir þessa sveiflu á milli mánaða verður ekki annað sagt en að lesturinn hafi hrunið síðustu ár. 30,5 prósent lásu blaðið í nóvember á síðasta ári, 33,8 prósent árið þar áður og 37,1 prósent í nóvember árið 2019. Útgáfan var lengi með yfir 50 prósenta lestur en hefur ekki náð slíkum hæðum síðan undir lok árs 2015.

Samhliða minnkandi lestri hefur verið viðvarandi tap á rekstri útgáfu­félagsins. Torg tapaði árið 2021 var rúmar 252 milljónir, sem þó var talsvert betri afkoma en árið áður, þegar tapið nam 600 milljónum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Á. skrifaði
    Tiltekt og þrif eftir Blaðarusl Fréttablaðsins og Morgunblaðsins sem skilið er eftir í mínu fjölbýlishúsi, er óvinsælasta skylduverk allra í húsinu.
    Næst óvinsælast er að moka snjóinnn frá inngangi hússins.
    Einnig er síður vinsælt að líta eftir sorptunnunum þó flestir láti sig nú hafa það.

    Þau ykkar sem ekki fengu þessi blöð í sín fjölbýlishús mega vera fegin að hafa ekki fengið þettat rusl í sameignina ykkar og það sem fylgir því á hverjum einasta aðalfundi húsfélagsins að skammast sé yfir hversu illa fólk stendur sig að þrífa þetta upp og koma blaðaruslinu í rétta sorptunnu.

    Sumir láta þetta nefnilega bara fara í gráu tunnuna. Sorphirðan svarar síðan með því að neita að hirða sorpið nema að íbúar hússins taki allt sorpið sitt upp úr tunnunum og flokki það rétt.

    Þú getur rétt ímyndað þér hversu vinsælt það er, að banka uppá hjá öllum íbúum og spyrja hvort þau hafi sett pappírsruslið í gráu tunnuna. Flestir berhentir að fiska hvern úldinn ruslapokann á fætur öðrum upp úr tunnunum, með hálsinn og höfuðuðið sveigt frá óþefnum, anda djúpt inn og stinga sér síðan ofan í tunnuna eftir öðrum ýldupoka.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár